Fréttir

true

Fjarlægja gáma við Gufuá vegna slæmrar umgengni

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lagt fram minnisblað verkefnastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs um slæma umgengni á gámasvæðum. Í minnisblaðinu var sérstaklega fjallað um slæma umgengni við gámasvæðið við Gufuá í Borgarhreppi. Lagðar voru fram nokkrar tillögur um viðbrögð við því ástandi sem þar hefur ríkt. „Byggðarráð samþykkti að láta fjarlægja gámana við…Lesa meira

true

Elín Dögg opnar sýningu á Írskum dögum

Elín Dögg Baldvinsdóttir opnar myndlistarsýninguna „Ekki eins og fólk er flest“ fimmtudaginn 4. júli klukkan 16 í Galleríi Bjarna Þórs við Kirkjubraut 1 á Akranesi. Opið verður þann dag til kl. 22. Elín er búin með eitt ár í sjónlistardeild Myndlistarskóla Reykjavikur, nokkur módelteikningarnámskeið, olíumálningarnámskeið i Tækniskólanum, er hússtjórnarskólamenntuð og með stúdentspróf. Sýningin verður svo…Lesa meira

true

Blíða í gær en bræla í dag

Það var óvenjulega stillt og fallegt veður á miðunum norðan við Snæfellsnes í gær. Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns var á strandveiðum og fagnaði því að fá einn svona blíðviðrisdag til tilbreytingar. „Ég var á Flákanum, um 24 sjómílur norður af Ólafsvík. Aflinn var blandaður, en þó betri en hann er nær landi. Menn hafa því…Lesa meira

true

Ráðherra framlengir samning um eftirlit með heimagistingu

Heimagistingarvaktin hefur á liðnum misserum stuðlað að auknu eftirliti með heimagistingu hér á landi og þar með aukið yfirsýn stjórnvalda yfir raunverulegt umfang hennar. Að sama skapi hefur hún tryggt rétt skattskil einstaklinga og að lögaðilar sem stunda gististarfsemi afli sér rekstrarleyfis og fari þannig að gildandi lögum. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og…Lesa meira

true

Glæsileg dagskrá á Ólafsvíkurvöku um helgina

Bæjarhátíðin Ólafsvíkurvaka verður haldin um komandi helgi og er dagskráin í ár fjölbreytt og sniðin að allri fjölskyldunni. Hátíðin hefst annað kvöld þegar bæjarbúar hittast í sínum hverfum og skreyta en venja er fyrir að hvert hverfi fái sinn þemalit yfir hátíðina. Á föstudaginn verður krakka crossfit á sparkvellinum fyrir káta krakka á aldrinum 6-15…Lesa meira

true

Bjarmar byggir þúsund fermetra atvinnuhúsnæði

Meðfylgjandi mynd var tekin síðastliðinn föstudag. Á henni er verið að skrifa undir samning um kaup á tæplega þúsund fermetra atvinnuhúsnæði fyrir Bjarmar ehf. við Kalmansvelli 7 á Akranesi. Húsið verður byggt úr forsteyptum einingum frá Loftorku. Skrifborðið við undirritun samningsins við Loftorku var húddið á glansandi fínum Bens árgerð 1952 í einkennislitum Bjarmars. Skömmu…Lesa meira

true

Laganna vörður í Vesturheimi

Á síðustu áratugum 19. aldar fluttu fjölmargir Íslendingar til Kanada eins og alkunna er. Flesta rak nauður til, vonin um betra líf í nýrri heimsálfu togaði þá vestur um haf. Einn þeirra sem heimdraganum hleypti á þessum árum var maður að nafni Kristján Fjeldsted. Kristján var fæddur árið 1866, sonur Andrésar Fjeldsted, bónda á Hvítárvöllum…Lesa meira

true

Írskir dagar hefjast á Akranesi á morgun

Bæjarhátíðin Írskir dagar hefst á morgun á Akranesi og mun standa fram á sunnudagskvöld. Er þetta jafnframt 20 ára afmæli hátíðarinnar og eins og venja er fyrir verður þétt dagskrá alla hátíðina og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að sögn Fríðu Kristínar Magnúsdóttur, viðburðarstjóra Akraneskaupstaðar, hefur undirbúningur fyrir hátíðina gengið mjög…Lesa meira

true

Jarðgöng og lágbrú taldir fýsilegir kostir fyrir Sundabraut

Starfshópur á vegum ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem fjallaði um Sundabraut hefur lokið störfum og skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil og í skýrslunni eru nokkrir valkostir vegnir og metnir. Í niðurstöðum hópsins eru tveir valkostir taldir koma til greina; jarðgöng yfir í Gufunes og lágbrú…Lesa meira

true

Langtímaveikindi kosta bæjarsjóð 36 milljónir á hálfu ári

Á fundi bæjarráðs Akranesaupstaðar í lok júní voru samþykktar fjárveitingar til að mæta langtímaveikindum starfsfólk bæjarins. Samþykkt var að úthluta 18,2 milljónum króna úr veikindapotti Akraneskaupstaðar vegna tímabilsins janúar til og með júní 2019. „Um er að ræða helming af heildarfjárhæð umsókna, en ákvörðun um endalega úthlutun vegna tímabilsins verður tekin í lok árs þegar…Lesa meira