Fréttir

true

Hringvegur 2 opnaður um leið og Dýrafjarðargöng

Vestfjarðastofa og Vesturlandsstofa skrifuðu í gær undir samstarfssamning sem snýr að þróun ferðamannaleiðarinnar Hringvegs 2. Um er að ræða ferðamannaleið sem er um 850 km löng og liggur um sjö sveitarfélög á Vestfjörðum auk Dalabyggðar á Vesturlandi. „Lagt er upp með að ferðaleiðin Hringvegur 2 verði aðdráttarafl fyrir svæðið allt árið, en það verður raunhæfur…Lesa meira

true

Áhættumatsnefnd í landbúnaði

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað áhættumatsnefnd vegna matvæla, fóðurs, áburðar og sáðvöru eins og mælt er fyrir um í matvælalögum og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Hlutverk nefndarinnar er að veita og hafa umsjón með framkvæmd vísindalegs áhættumats á sviði matvæla, fóðurs, áburðar og sáðvöru. Með vísindalegu áhættumati er…Lesa meira

true

Vel heppnuð Skotthúfa á laugardaginn í Stykkishólmi

Hin árlega þjóðbúningahátíð Skotthúfan var haldin í Norska húsinu – Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla síðastliðinn laugardag. Hátíðin hófst með fyrirlestri í Eldfjallasafninu þar sem Guðrún Hildur Rosenkjær hélt fyrirlestur um endurgerðar kvenpeysur frá 19. öld. Fyrirlesturinn var vel sóttur og kom þar margt fróðlegt og skemmtilegt fram. Að fyrirlestri loknum var gestum í þjóðbúningum boðið…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið var um helgina

Snæfellsjökulshlaupið var haldið í níunda sinn á laugardaginn en hlaupið var frá Arnarstapa yfir Jökulháls og enduðu hlauparar 22 kílómetrum síðar í Ólafsvík. Snæfellsjökulshlaupið er orðið með vinsælustu hlaupakeppnum landsins og voru að þessu sinni skráðir keppendur um 140 talsins. Hjónin Fannar Baldursson og Rán Kristinsdóttir hafa haft veg og vanda að hlaupinu alla tíð…Lesa meira

true

Ýmsar framkvæmdir í gangi í Reykholti

Á liðnum dögum hafa ýmsar framkvæmdir verið í gangi í Reykholti í Borgarfirði. Unnið hefur verið við hellulögn og fegrun umhverfis Snorralaug þar sem tugþúsundir gesta koma við á hverju ári. Þá hófust í vor að nýju eftir nokkuð hlé framkvæmdir við stækkun Fosshótels Reykholti. Viðbyggingin er nú ríflega fokhelt en í henni verða 28…Lesa meira

true

Stærsta Lopapeysan hingað til

Lopapeysan verður haldin í sextánda sinn á Írskum dögum á laugardagskvöldið næstkomandi. Um er að ræða stórtónleika í anda sveitaballanna sem haldin voru hér á árum áður. Lopapeysan hefur mikið vaxið frá fyrstu tónleikum og í ár verða tónleikarnir þeir stærstu hingað til. Það eru Vinir Hallarinnar með Ísólf Haraldsson í fararbroddi sem standa fyrir…Lesa meira

true

Smáprent opnað í stærra húsnæði á morgun

Smáprent á Akranesi mun opna í nýju og stærra húsnæði á morgun, fimmtudaginn 4. júlí, við Dalbraut 16. Smáprent er í eigu hjónanna Tinnu Óskar Grímarsdóttur og Axels Freyrs Gíslasonar og hefur undanfarið verið til húsa við Skagabraut 6. Hjá Smáprenti er hægt að fá prentun og merkingar á fatnað fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök…Lesa meira

true

Lífsbjörg fékk afhentan nýrri og öflugri björgunarbát

Í gær kom björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson til hafnar í Rifi í Snæfellsbæ. Hann kemur í stað Bjargar, sem hefur þjónað Lífsbjörgu í mörg ár, og reynst sveitinni afar vel. Að sögn Helga Más Bjarnasonar formanns Lífsbjargar er Björgin orðin lúin vélarlega séð og var því Gunnar Friðriksson fenginn frá Ísafirði en hann er samskonar bátur…Lesa meira

true

Opið hús á laugardaginn hjá Jóhannesarstúkunni Akri

Á þessu ári eru eitt hundrað ár síðan fullgilt stúkustarf frímúrara hófst hér á landi. Það gerðist þegar Jóhannesarstúkan Edda var vígð 6. janúar 1919. Hún heyrði í fyrstu undir dönsku frímúrararegluna, eða allt þar til formleg frímúrararegla var stofnuð hér á landi árið 1951. Aldarafmælis íslensks frímúrarastarfs verður minnst með ýmsum hætti á þessu…Lesa meira

true

Áttræðar konur dönsuðu við Kaleo

Í vefritinu Úr vör er rætt við áhugvert fólk víðsvegar af landinu. Nýverið birti ritið viðtal við Kára Viðarsson sem stýrir Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi. Blaðamaður Úr vör svalaði forvitni sinni og sló á þráðinn til Kára, til að heyra meira um þennan spennandi stað: „Í Frystiklefanum á Rifi hefur verið starfrækt menningarstarf síðan…Lesa meira