Fréttir

true

Íslandsmeistaramótið í holukeppni fór fram á Akranesi

Íslandsmeistaramótið í holukeppni í golfi fór fram á Garðavelli á Akranesi um liðna helgi. Sigurvegarar á mótinu urðu þau Saga Traustadóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Rúnar Arnórsson úr Golfklúbbi Keili. Alls voru 55 keppendur skráðir til leiks þar af 32 karlar og 23 konur. Boðið var upp á mikla spennu í kvennaflokki þar sem úrslit…Lesa meira

true

Húsbíll brann við sumarbústað

Eldur kom upp í húsbíl sem stóð við sumarbústað í landi Galtarholts III í Borgarbyggð skömmu fyrir hádegi í dag. Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út og slökkti í síðustu glæðunum, en eins og sjá má á myndinni er ekkert eftir af bílnum nema vélin og járnagrindin. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf fljótt…Lesa meira

true

Valdís Þóra upp um tvö sæti

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbi Leyni lék Ladies European Thailand meistaramótið á fimm höggum yfir pari og endaði í 54. sæti á mótinu sem lauk aðfaranótt sunnudags. Valdís spilaði fyrsta mótsdag á 72 höggum eða á pari vallarins. Dagur tvö gekk ekki eins vel sjá Skagakonunni þar sem hún spilaði á þremur höggum yfir…Lesa meira

true

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst

Síðastliðinn laugardag voru 80 nemendur útskrifaðir úr námi við Háskólann á Bifröst. Nemendahópurinn kom úr viðskiptadeild, félags- og lagadeild og Háskólagátt. Í hátíðarræðu Vilhjálms Egilssonar rektors kom hann inn á breyttar aðstæður á vinnumarkaði og hækkandi menntunarstig þjóðarinnar. „Háskólarnir hafa ekki lokið hlutverki sínu þótt fólk hafi þegar lokið háskólaprófi. Margir vilja eða þurfa að…Lesa meira

true

Hollvinasamtök Þórðar Halldórssonar lögð niður

Árið 2005 voru Hollvinasamtök Þórðar Halldórssonar frá Dagverðará stofnuð, en það ár voru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Markmiðið var að halda á lofti minningu þessa merka sagnamanns og vísnamanns, refaskyttu, málara, sjóara, Jöklara og lífskúnsters. Með því að drekka ölkelduvatn daglega, varð hann næstum 100 ára. Meðal verkefna Hollvinasamtakanna var að láta gera…Lesa meira

true

Opinn kynningarfundur um stuðning við bókaútgáfu

Kynningarfundur verður haldinn í mennta- og menningarmálaráðuneytinu í Reykjavík miðvikudaginn 26. júní nk. kl. 13 um nýtt endurgreiðslukerfi vegna útgáfu bóka á íslensku. „Stuðningskerfi sem heimilar endurgreiðslu 25% beins kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku var komið á með lögum í vetur en markmið þess er að efla bókaútgáfu á íslenskri tungu í ljósi mikilvægis…Lesa meira

true

Héldu kveðjumessu í Stafholtskirkju

Í gær var haldin kveðjumessa í Stafholtskirkju í Borgarfirði. Hjónin sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson og sr. Elínborg Sturludóttir predikuðu og þjónuðu fyrir altari. Séra hefur þjónað söfnuði Stafholtsprestakalls síðasta árið og þar áður eiginkona hans, sr. Elínborg sem þjónaði til tíu ára í prestakallinu og fór þaðan til starfa sem dómkirkjuprestur. Kirkjan var þétt setin…Lesa meira

true

Brenna nú metangasi úr safnhaugnum í Fíflholtum

Jákvætt skref var í síðustu viku stigið í umhverfismálum hjá Sorpurðun Vesturlands í Fíflholtum. Þá var formlega tekinn í notkun sérhæfður brennari sem brennir metangasi sem leitt er úr núverandi urðunarrein þar sem metangasframleiðslan er mest. Rörum er komið niður í safnhauginn og eftir þeim leitt metangas til brennslu í sérstökum brennara. Með því móti…Lesa meira

true

Arnar Smári aftur til Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Borgnesinginn Arnar Smára Bjarnason um að spila með liðinu í 1. deild karla næsta vetur. Arnar Smári er 19 ára og uppalinn Skallagrímsmaður og spilar stöðu bakvarðar. Hann hefur verið með félaginu undanfarin tímabil en fór til ÍR á miðri síðustu leiktíð í Reykjavík þar sem hann spilaði með unglingaflokki…Lesa meira

true

Ólafsvíkurvaka verður fyrstu helgina í júlí

Ólafsvíkurvaka verður haldin fyrstu helgina í júlí og er undirbúningur í fullum gangi. Að þessu sinni eru það appelsínugula og græna hverfið sem standa að hátíðinni. Að sögn þeirra Ara Bjarnasonar úr appelsínugula hverfinu og Ríkarðs Kristjánssonar úr því græna gengur undirbúningur vel og hafa allir í hverfunum verið áhugasamir og margir komið að undirbúningnum.…Lesa meira