Fréttir

true

Víkingur tapaði á heimavelli

Víkingur Ó. þurfti að sætta sig við tap þegar liðið tók á móti Fram í 8. umferð fyrstu deildar í gær á Ólafsvíkurvelli. Strax á sjöttu mínútu fengu Víkingsmenn á sig víti. Michael Newberry missti boltann klaufalega frá sér rétt fyrir utan eigin teig. Tiagi Fernandes hjá liði Fram, lét sér ekki segjast, náði í…Lesa meira

true

Gestastofa opnuð í Breiðabliki

Í gær var stór dagur fyrir íbúa og sveitarfélög á Snæfellsnesi. Í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi var formlega opnuð ný gestastofa og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Gestastofan er á vegum Svæðisgarðsins Snæfellsness og þannig sameinast sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi og atvinnulífið um rekstur hennar. Gestastofan Breiðabliki er hugsuð sem gátt ferðafólks inn á svæðið,…Lesa meira

true

Þrír tapleikir í röð hjá ÍA

ÍA tapaði gegn HK í nýliðaslag þegar liðin mættust í 10. umferð karla í Pepsi Max deildinni í gær. Bæði lið komu sér upp úr 1. deildinni fyrir ári síðan þar sem ÍA var efst að tímabilinu loknu og HK-ingar næstefstir og liðin því vel kunnug hvor öðru. Leikurinn fór fram á Akranesvelli. Upphafsmínúturnar voru…Lesa meira

true

Grisjunarviðurinn kurlaður í stígagerð

Í vetur vann Friðrik Aspelund skógfræðingur að grisjun elsta hluta Reykholtsskógar. Þeim hluta skógarins var plantað á sjöunda áratugnum að frumkvæði Kjartans Sigurjónssonar þáverandi kennara og organista í Reykholti, skammt ofan við íbúðarhúsagötuna og Höskuldargerði. Skógrækt ríkisins lagði til tæki og mannskap til kurlunar, auk þess sem Skógræktarfélag Borgarfjarðar kemur að verkinu með framlagi Friðriks…Lesa meira

true

Norðurálsmótið sett

Um 1.500 ungir og efnilegir fótboltaguttar í 7. flokki, ásamt fjölskyldum sínum og þjálfurum, voru saman komnir fyrir framan ráðhús Akraness við Stillholt rétt fyrir klukkan 11:00 í morgun. Hefð er fyrir því að keppendur á mótinu ganga frá ráðhúsinu að Akraneshöllinni á Jaðarsbökkum í sínum liðsbúningi með tilheyrandi fánum, köllum og hrópum á leiðinni.…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst áfram í Taílandi

Atvinnukylfingurinn og Skagakonan, Valdí Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbi Leyni, er komin áfram á Ladies European Thailand meistaramótinu sem fram fer á Taílandi. Valdís Þóra lék fyrsta hring sinn á mótinu á 72 höggum eða á pari vallarins og var í 26. sæti eftir fyrsta keppnisdag. Skagakonan átti svo teigtíma klukkan 1:20 að íslenskum tíma í…Lesa meira

true

Glæsilegt nýtt fjós risið á Snorrastöðum:

Á Snorrastöðum í Kolbeinstaðarhreppi hafa feðgarnir Kristján Ágúst Magnússon og Magnús Kristjánsson unnið að fjósbyggingu í vetur. Blaðamaður Skessuhorns sótti þá feðga heim í liðinni viku en þá höfðu þeir lokið við að heyja deginum áður. „Við byrjuðum síðast svona snemma í heyskapnum fyrir tveimur árum og þá náðum við að slá þrisvar sinnum,“ segir…Lesa meira

true

Götulistahátíð hefst á Hellissandi í dag

Alþjóðlegir listamenn úr margvíslegum greinum götulista koma til landsins og skemmta heimamönnum og gestum á Götulistahátíð sem haldin verður á Hellissandi um helgina í boði Kára Viðarssonar og félaga í Frystiklefanum Rifi. Í boði verða danssýningar, tónlist, andlitsmálarar, hoppukastali, Sirkus Íslands, Kareoke Party, námskeið, lifandi tónlist, leiksýningar og margt fleira. Sjá nánar meðfylgjandi auglýsingu um…Lesa meira

true

Hefur elskað hákarl frá fyrsta smakki

Á hákarlasafninu í Bjarnarhöfn í Helgafellssveit geta gestir fengið persónulega leiðsögn og fræðslu um hákarla og hákarlaverkun, en fjölskyldan í Bjarnarhöfn hefur stundað hákarlaverkun í nokkrar kynslóðir. Síðustu ár hafa margir gestir fengið leiðsögn frá Mariu Stellu Faccin sem flutti fyrst til Íslands árið 2016 til að vinna í Bjarnarhöfn. „Í byrjun var ég bara…Lesa meira

true

Fengu loksins að fara á gröfu í skólann

Gamall draumur bræðranna Hafþórs og Sævars Benediktssona hjá BB og sonum í Stykkishólmi varð loksins að veruleika á þriðjudaginn í síðustu viku. Þá hófst jarðvinna við lóð grunnskólans og Amtsbókasafnsins. „Okkur bræður hafði alltaf dreymt um að fá að fara á beltavél í skólann,“ segir Hafþór í samtali við Skesshorn en bætir því við að…Lesa meira