Fréttir

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris um vestanvert landið

Spáð er vaxandi sunnan- og suðaustanátt á vestanverðu landinu þegar líður á daginn, með úrkomu og hvassviðri. Gul viðvörun er í gildi vegna hvassviðris á suðvestanverðu landinu, Faxaflóa og Breiðafirði. Meðalvindur verður 13-20 metrar á sekúndu í vindstrengjum en hvassast verður á norðanverðu Snæfellsnesi þar sem vindur gæti farið í 25-30 m.sek. í hviðum. Slíkur…Lesa meira

true

Minnismerki um Jón Vídalín afhjúpað í dag

Í dag, sunnudaginn 30. ágúst, eru 300 ár liðin frá andláti Jóns Þorkelssonar Vídalín, Skálholtsbiskups. Á þessari 300. ártíð Jóns biskups verður tímamótanna minnst með ýmsum hætti að tilstuðlan Biskupsstofu og fleiri. Meðal annars verður vígður nýr kross og afhjúpað minnismerki í Biskupsbrekku á Uxahryggjum sem Páll Guðmundsson listamaður á Húsafelli hefur gert að tilstuðlan…Lesa meira

true

Leita að framúrskarandi ungum Íslendingum

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar er veitt árlega af JCI á Íslandi. Fyrst og fremst er um að ræða hvatningarverðlaun til ungs fólks sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni og ná góðum árangri. „Markmið verðlaunanna er að verðlaunahafar hljóti hvatningu til frekari dáða og vekja athygli á verkum þeirra,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Vinna við kantinn í Grundarfjarðarhöfn að hefjast

Þessa dagana hafa síðustu stálþilin farið niður á Grundarfjarðarhöfn og vinna við kantinn að hefjast. Verkinu miðar ágætlega þó að einhver skakkaföll hafi orðið í sumar vegna veðurs. Runólfur SH, Sigurborg SH og Vörður ÞH komu öll til hafnar síðasta mánudag og lönduðu ágætis afla. Næstu mánuði þurfa þeir sem fara um bryggjuna og höfnina…Lesa meira

true

Fleiri kennslustundir í íslensku og raungreinum

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, vill fjölga kennslustundum í íslensku og raungreinum í grunnskólum landsins frá og með haustinu 2021. Áformin hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðsgáttinni kemur fram að tilefni breytinganna sé viðvarandi slakur árangur nemenda í lesskilningi og náttúrufræði, samanborið við önnur lönd. Í því samhengi er vísað til PISA-kannanarinnar svokölluðu,…Lesa meira

true

Skellur á heimavelli

ÍA fékk skell gegn Haukum, 1-4, þegar liðin mættust í 12. umferð 1. deildar kvenna á Akranesi í gærkvöldi. Skagastúlkur hafa ekki fundið taktinn á leiktíðinni og einungis unnið einn leik í sumar. Hafnarfjarðarliðið mætti einbeitt til leiks í Akraneshöllinni, þar sem leikurinn fór fram. Strax á upphafsmínútunum slógu Haukastúlkur tóninn þegar Sæunn Björnsdóttir skoraði.…Lesa meira

true

Ísak Snær til ÍA á láni

Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður enska knattspyrnuliðsins Norwich City, er kominn á lánssamningi til ÍA. Mun hann leika með liði Skagamanna út keppnistímabilið 2020. Ísak Snær er 19 ára gamall miðjumaður og á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Íslands, þar af níu með U19 ára liðinu. Hann hefur einnig verið fyrirliði U19 ára landsliðsins.…Lesa meira

true

Fá leyfi til að byggja við Grímshúsið

Leyfi hefur verið veitt til að reisa viðbyggingu við Grímshúsið í Brákarey í Borgarnesi. Eins og greint var frá í Skessuhorni í fyrra tók enski ginframleiðandinn Martin Miller‘s Gin húsið á leigu til næstu 25 ára, með það fyrir augum að opna gestastofu fyrir gináhugafólk um allan heim. Sótt var um byggingarleyfi vegna viðbyggingarinnar fyrir…Lesa meira

true

Vetrarvertíðin að ganga í garð

Nú styttist í að kvótaáramótin gangi í garð og eru nokkrir bátar þegar farnir til hafs til veiða og sumir að gera sig klára, eins og áhöfnin á Ólafi Bjarnasyni SH frá Ólafsvík. Þeir byrja veiðar 1. september á dragnót og því tíminn notaður til þess að yfirfæra og laga það sem er ekki í…Lesa meira

true

Enginn í umdæminu verið kærður fyrir brot á sóttvarnalögum

Lögreglan á Vesturlandi heldur uppi reglubundnu eftirliti með stærri verslunum og veitingastöðum í umdæminu. Þar fylgist lögregla með því hvort farið er að sóttvarnareglum. Að sögn lögreglu hefur enginn í umdæminu verið kærður fyrir brot á sóttvarnarlögum. Þó hefur það gerst mönnum hefur verið veitt tiltal og þeim leiðbeint frekar, en það er þó aðeins…Lesa meira