Fréttir

true

Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs hefur sagt upp störfum

Ragnar Frank Kristjánsson hefur sagt upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar. Tilkynnti hann um uppsögn sína síðastliðinn mánudag. Þetta staðfestir Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, í samtali við Skessuhorn. Hún segir að ákvörðun Ragnars hafi verið kynnt formlega á fundi byggðarráðs sem lauk nú skömmu fyrir hádegi, þar sem honum hafi verið…Lesa meira

true

Fráveituframkvæmdir í Búðardal ganga vel

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir framkvæmdir við fráveituna í Búðardal. Verið er að sameina útrásirnar tvær sem hafa verið í sitthvorum hluta bæjarins í eina, sem verður úti fyrir miðri Búðarbraut. Um er að ræða fyrsta áfanga af þremur við fráveituna og það er verktakafyrirtækið Stafnafell ehf. sem annast hann. Þónokkuð rask hefur fylgt þessari…Lesa meira

true

„Tónlist er allstaðar“

Anna Sólrún Kolbeinsdóttir hefur verið ráðin tónmenntakennari við Grunnskólann í Borgarnesi. Hún byrjaði í nýja starfinu á mánudag í síðustu viku og er full tilhlökkunar fyrir vetrinum. „Þetta er algjörlega nýtt fyrir mér og ég er mjög spennt fyrir þessu,“ segir Annar Sólrún í spjalli við blaðamann Skessuhorns. „Ég ætla mér að hafa þetta létt…Lesa meira

true

Kurr í stjórn Sorpurðunar vegna afstöðu Borgarbyggðar

Eins og greint var frá í Skessuhorni í júlí hefur byggðarráð Borgarbyggðar lýst sig andsnúið því að sorpurðun verði aukin í Fíflholtum með því að sótt verði um aukið starfsleyfi. Slíkt samræmist ekki framtíðaráformum stjórnvalda eða stefnumörkun sveitarfélasins, þar sem markvisst væri unnið að því að draga úr urðun meðal íbúa. Tilefni umfjöllunar byggðarráðs þá…Lesa meira

true

Vegaframkvæmdir víða í landshlutanum

Í nýjasta tölublaði framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar má sjá yfirlit yfir helstu framkvæmdir í vega- og brúargerð á árinu 2020. Þar eru taldar upp ellefu framkvæmdir á Vesturlandi. Flestar framkvæmdanna eru í Borgarfirði og á Mýrum. Fyrst skulu talin þau verk í landshlutanum sem áformað er að ljúka í ár. Þau eru: Endurbygging og klæðning eins km…Lesa meira

true

Mesti skellur að hruninu frátöldu

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, segir útlit fyrir mesta skell í afkomu- og skuldaþróun hins opinbera á lýðveldistímanum, að undanskildum afleiðingum bankahrunsins 2008. Forsendur gildandi fjármálastefnu séu með öllu brostnar vegna Covid-19 faraldursins og þeirra sóttvarnaraðgerða sem grípa hefur þurft til vegna hans. Fullt tilefni sé til að endurskoða hana vegna dýpstu efnahagslægðar sem riðið hefur yfir…Lesa meira

true

Jörð skelfur á Suðurnesjum – skjálftinn fannst greinilega á Akranesi

Öflugur jarðskjálfti upp á 4,6 stig á Richterskvarða varð um tvo km. suðaustan við Keili á Reykjanesi um klukkan 16:15 í dag. Þetta er þriðji skjálftinn sem mælist á svæðinu í dag, en sá síðasti upp á 3,7 stig varð austur af Fagradalsfjalli um kl. 13:45. Skjálftinn nú á fimmta tímanum fannst greinilega á Akranesi,…Lesa meira

true

Nýtt fimleikahús tekið í notkun

Fimleikafélag Akraness hóf formlega æfingar í nýju fimleikahúsi við Vesturgötu á mánudaginn. Sigrún Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikafélags Akraness, segir nýju aðstöðu félagsins langþráða. „Við vorum ekki á pari við önnur fimleikafélög í landinu og gátum ekki boðið okkar iðkendum upp á þá aðstöðu sem þarf fyrir keppendur í fimleikum.” Fimleikafélagið hefur aðstöðuna alla daga á milli…Lesa meira

true

Tekjutengdar atvinnuleysisbætur og hlutabótaleiðin framlengd

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp félagsmálaráðherra um breytingu á lögum er varða vinnumarkaðinn til að mæta efnahagslegum áhrifum Covid-19 heimsfaraldursins. Með frumvarpinu mun réttur til tekjutengdra atvinnuleysisbóta fara úr þremur mánuðum í sex mánuði, enda séu ákveðin skilyrði uppfyllt. Hlutabótaleiðin verður sömuleiðis framlengd um tvo mánuði. Greiðslur launa vegna einstaklinga í sóttkví munu einnig halda…Lesa meira

true

Fékk gæsahúð að upplifa mikla samkennd og stuðning íbúa Stykkishólms

Síðastliðinn laugardag var boðað til áheitahlaups í Stykkishólmi til stuðnings Berglindi Gunnarsdóttur, 27 ára körfuboltakonu úr Snæfelli og læknanema við HÍ. Berglind slasaðist á hálsi og mænu í rútuslysi í byrjun þessa árs og er nú í stífu endurhæfingarverkefni. Mikið keppnisskap hefur hjálpað henni í gegnum hennar endurhæfingu, en þó er enn langt í land…Lesa meira