Fréttir

true

Áætla að neikvæð áhrif Covid-19 á sveitarfélög nemi 33 milljörðum

Í liðinni viku var kynnt í ríkisstjórn og fyrir fulltrúum sveitarfélaga ný skýrsla starfshóps um áhrif Covid-19 á fjármál sveitarfélaga. Starfshópur sem skrifaði skýrsluna áætlar að verulegur samdráttur verði í tekjum flestra sveitarfélaga miðað við áætlanir og að neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu þeirra nemi alls rúmlega 33 milljörðum króna. Í niðurstöðum segir að gera megi…Lesa meira

true

Jafntefli gegn toppliðinu

Lið Skallagríms í 4. deild karla í knattspyrnu gerði jafntefli við topplið Hamars á laugardaginn, þegar liðin mættust í 13. umferð deildarinnar. Leikið var á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Hamarsmenn komu beittir til leiks og slógu tóninn strax á 6. mínútu þegar Magnús Ingi Einarsson skilaði knettinum í netið og kom gestunum yfir. Eitthvað hefur forskot…Lesa meira

true

Tap gegn meisturunum

Lið ÍA í knattspyrnu karla fékk skell gegn Íslandsmeisturunum í KR þegar liðin mættust í 13. umferð Pepsi Max deild karla í Vesturbænum í gærkvöldi. KR vann fyrri leik liðanna í sumar, 2-1, sem fram fór á Akranesi svo Skagamenn áttu harma að hefna gegn Vesturbæjarliðinu. Fyrsta mark leiksins kom strax á 4. mínútu. Þar…Lesa meira

true

Tap hjá Hólmurum

Snæfellingar máttu sætta sig við eins marks tap gegn Stokkseyri þegar liðin mættust í 13. umferð 4. deildar karla í knattspyrnu í gær. Spilað var í Stykkishólmi. Engin mörk litu dagsins ljós í fyrri hálfleik og var hann frekar tíðindalítill. Milos Janicijevic í liði Snæfells nældi sér í rautt spjald á 40. mínútu og neyddust…Lesa meira

true

Manni færri en hættulegri

Víkingur Ó. og ÍBV skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Ólafsvík. Ólafsvíkingar voru líflegir í upphafi leiks en það voru gestirnir frá Vestmannaeyjum sem skoruðu á undan. Á 9. mínútu leiksins átti Felix Örn Friðriksson góða fyrirgjöf frá vinstri, beint á kollinn á Gary…Lesa meira

true

Misstu niður tveggja marka forystu

Káramenn máttu sætta sig við jafntefli, 2-2, þegar þeir mættu KF í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Akraneshöllinni og þar komust heimamenn tveimur mörkum yfir, áður en gestirnir jöfnuðu. Allt gerðist þetta áður en flautað var til hálfleiks. Það var Hilmar Halldórsson sem kom Kára yfir á 13. mínútu leiksins,…Lesa meira

true

Fengu hámeri í netin

Áhöfnin á netabátnum Bárði SH, sem rær frá Arnarstapa, fékk 120 kíló hámeri í netin í liðinni viku. Þorkell Símonarson vert í Langaholti keypti fiskinn. Keli sagði aðspurður um hvernig hámeri væri elduð að hann gerði steikur út henni, setti einfaldlega olíu á pönnuna og hvítlauk. Þá væri sömuleiðis ekkert mál að skella henni á…Lesa meira

true

Hátíð íslenska fisksins hafin í Bretlandi

Hafin er markaðsherferð á Bretlandseyjum til að auka vitund fólks um gæði og heilnæmi íslensks fisks og að fiskistofnar við Ísland séu nýttir á sjálfbæran hátt. Best er að borða fisk tvisvar í viku árið um kring eins og segir í nýrri auglýsingu, enda hrein og holl afurð. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa sameinast undir slagorðinu „Seafood…Lesa meira

true

Greina efnahagsáhrif sóttvarna

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem mun vinna reglulegar greiningar á efnahagsáhrifum valkosta í sóttvarnarmálum, með tilliti til hagsmuna ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Bæði verða metin skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til að taka við sér að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá. Vart þarf að taka fram…Lesa meira

true

Makríllinn langt frá miðunum

Sameiginlegum uppsjávarleiðangri Íslendinga, Grænlendinga, Færeyinga, Norðmanna og Dana lauk 4. ágúst síðastliðinn, en hafði þá staðið yfir frá 1. júlí. Niðurstöður leiðangursins hafa nú verið teknar saman á vef Hafrannsóknarstofnuna, en meginmarkmið hans var að meta magn uppsjávarfiska í Norðaustur-Atlantshafi að sumarlagi. Það ber helst að nefna að vísitala lífmassa makríls var metin á 12,3…Lesa meira