Fréttir

true

Knattspyrnuleikjum frestað

Öllum knattspyrnuleikjum í meistaraflokki karla og kvenna sem fara áttu fram á morgun, laugardaginn 8. ágúst, hefur verið frestað. Ákvörðun um leiki sunnudagsins 9. ágúst verður tekin í dag. Ástæða frestunarinnar er óvissa um mótahald vegna Covid-19. Mótanefnd KSÍ hefur sömuleiðis ákveðið að fresta öllum leikjum í 2. flokki karla og kvenna sem eru á…Lesa meira

true

Hafnarstjóraskipti hjá Faxaflóahöfnum

Gísli Gíslason lét á miðvikudag af störfum sem hafnarstjóri Faxaflóahafna, en hann hefur gegnt starfinu frá því í nóvember 2005. Hann sagði starfi sínu lausu í febrúar síðastliðnum og var Magnús Þór Ásmundsson valinn úr hópi 26 umsækjenda í kjölfar auglýsingar. Magnús tók við lyklavöldum á skrifstofu hafnarstjóra á miðvikudaginn. Hann er rafmagnsverkfræðingur að mennt…Lesa meira

true

Plan B hefst í dag

Listahátíðin Plan B hefst í dag í Borgarnesi og verður í gangi fram á sunnudag. Umgjörð hátíðarinnar hefur tekið breytingum sökum Covid-19 og hafa skipuleggjendur hátíðarinnar brugðið á það ráð að breyta sniði að uppsetningu hátíðarinnar svo að íbúar og gestir í Borgarnesi geti notið listar á öruggan hátt. Í dag kl. 17:00 opnar gluggasýning…Lesa meira

true

Fjögur ný smit og þar af eitt á Vesturlandi

Fjögur ný innanlandssmit Covid-19 greindust í gær í landinu og þar af eitt á Vesturlandi. Tveir bíða auk þess niðurstöðu mótefnamælingar eftir landamæraskimun. Enginn er nú innlagður á sjúkrahús vegna veirunnar. 97 eru í einangrun á landsvísu og fjöldi þeirra sem eru í sóttkví er 795. Nú eru 10 í einangrun með veiruna á Vesturlandi…Lesa meira

true

Páll sækir um leyfi til að rífa nýlegt legsteinahús í Húsafelli

Páll Guðmundsson, listamaður á Húsafelli, sótti 3. ágúst síðastliðinn um leyfi til sveitarfélagsins Borgarbyggðar til að fá að rífa nýlegt steinsteypt legsteinahús sem stendur á spildunni Bæjargili í Húsafelli. Eins og kunnugt er höfðaði Sæmundur Ásgeirsson, þinglýstur eigandi Gamla bæjarins á Húsafelli I, mál gegn Páli fyrir héraðsdómi þar sem hann krafðist þess að legsteinahús,…Lesa meira

true

Isaiah Coddon á förum frá Skallagrími

Bakvörðurinn Isaiah Coddon mun ekki leika með Skallagrími í 1. deild karla í körfuknattleik næsta vetur, eins og áður hafði verið áformað. Hann flyst búferlum til Reykjavíkur vinnu sinnar vegna, auk þess sem hann og sambýliskona hans eiga von á sínu fyrsta barni, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu kkd. Skallagríms. Isaiah…Lesa meira

true

Meiri umferð í júlí en júní – útlit fyrir samdrátt á ársgrunni

Umferð um hringveginn var 13% meiri í júlí en í júní síðastliðinum. Hún var hins vegar 3,4% minni en í júlí á síðasta ári. Þetta kemur fram í samantekt Vegagerðarinnar. Aukningin milli mánaða er einkum talin vera vegna aukins sumarfrísaksturs landsmanna, en ferðamönnum fjölgaði einnig hérlendis milli mánaða og umferð þeirra um þjóðvegina þar með.…Lesa meira

true

Ólafsdalshátíð aflýst

Hin árlega Ólafsdalshátíð, sem áformað var að halda 13. sinni laugardaginn 15. ágúst næstkomandi, hefur verið blásin af í þetta skipti vegna hertra samkomutakmarkana. Á Facebook-síðu Ólafsdalsfélagsins segir að félaginu séu mikil vonbrigði að þurfa að hætta við hátíðina, en hún hefur verið eitt af mikilvægustu verkefnum þess ár hvert. Hundrað manna samkomutakmarkanir og skyldubinding…Lesa meira

true

Ísak Bergmann áfram hjá Norrköping

Sænska knattspyrnufélagið IFK Norrköpking greindi frá því í dag að Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefði endurnýjað samning sinn við félagið. Ísak er 17 ára gamall og gekk til liðs við Norrköping fyrir tveimur árum síðan, þá 15 ára gamall. Hann þykir mikið efni og hefur hlutverk hans sænska liðinu vaxið stöðugt. Hann hefur spilað ellefu…Lesa meira

true

Einn kaldasti júlí seinni ára

Júlímánuður var fremur kaldur miðað við það sem verið hefur frá aldamótum, að því er fram kemur í yfirliti Veðurstofu Íslands um tíðarfar í júlí. Meðalhiti í Reykjavík var 10,7 stig, 10,1 stig á Akureyri en 9,9 gráður í Stykkishólmi. Miðað við síðustu tíu ár voru hitavik aðeins jákvæð á örfáum stöðum á Suðausturlandi, en…Lesa meira