Fréttir

true

Bjarki og Ragnhildur í forystu fyrir lokadaginn

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson, sem spilar fyrir GKG, er með tveggja högga forystu í karlaflokki fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Lokahringurinn verður spilaður í dag. Bjarki, sem setti vallarmet á Hlíðavelli á öðrum keppnisdegi, fylgdi eftir góðri spilamennsku með því að leika á 69 höggum í gær eða…Lesa meira

true

Fótboltanum frestað til fimmtudags

Beiðni Knattspyrnusambands Íslands um undanþágu frá nándartakmörkunum og sótthreinsun búnaðar í æfingum og keppni í knattspyrnu hefur verið hafnað. Því hefur mótanefnd KSÍ ákveðið að fresta öllum leikjum í meistaraflokkum, sem og í 2. og 3. flokki karla og kvenna, til og með fimmtudeginum 13. ágúst. „Knattspyrnuleikir eru í eðli sínu þannig að ekki er…Lesa meira

true

Gott útlit með berjasprettu

Meðfylgjandi mynd var tekin af bláberjalyngi í uppsveitum Borgarfjarðar í gær, 6. ágúst. Þar má sjá að bláberjalyng hefur blómgast vel og ber náð að þroskast með ágætum. Með nokkrum sólríkum dögum til viðbótar, á einni eða tveimur vikum, má ætla að þessi ber verði öll orðin blá og safarík um miðjan ágúst. Skessuhorn hefur…Lesa meira

true

Búast má við hertum aðgerðum vegna fjölgunar covidsmitaðra

Sautján ný tilfelli Covid-19 voru greind á landinu í dag. Að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á daglegum upplýsingafundi almannavarna, sem var að ljúka, er veiran nú á svipuðum stað og hún var í vetur, veldisvöxtur er hafinn að nýju. Því megi búast við ákvörðun um enn hertar aðgerðir að nýju jafnvel strax um eða eftir…Lesa meira

true

Boða aukið samráð til að landsmenn geti lifað með veirunni

Ljóst er að íslenskt samfélag er nú að hefja annan kafla í glímunni við Covid-19 þar sem vera kann að beita þurfi aðgerðum bæði innan lands og á landamærum um langt skeið til að hefta útbreiðslu veirunnar. Hún er nú enn í vexti víða um lönd og sumsstaðar verið að herða reglur á nýjan leik.…Lesa meira

true

Fresta upphafi saltfiskvinnslunnar

Upphaf saltfiskvinnslu Agustson ehf. í Stykkishólmi frestast. Vinnslan átti að fara af stað seinni partinn í ágúst en hefur verið frestað um einn til einn og hálfan mánuð, að sögn Sigurðar Ágústssonar, eiganda og framkvæmdastjóra. Hann segir ástæður frestunarinnar vera erfiðar markaðsaðstæður sem rekja megi til Covid-19 faraldursins. „Okkar markaðssvæði eru Spánn og Ítalía sem…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá Borgarbyggð vegna Húsafells

Vegna frétta um málefni bygginga í Bæjargili í landi Húsafells í Borgarfirði hefur sveitarfélagið Borgarbyggð sent frá sér yfirlýsingu. Hún er er hér birt í heild sinni: „Árið 2018 felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála úr gildi byggingarleyfi sem Borgarbyggð hafði gefið út fyrir legsteinaskála að Bæjargili í landi Húsafells þar sem umrætt leyfi væri hvorki…Lesa meira

true

Takmörkun á heimsóknum inn á hjúkrunarheimili vegna Covid-19

Samráðshópur hjúkrunarheimila fundaði í gær með fulltrúum allra hjúkrunarheimila í gegnum fjarfundarbúnað. Þar var kynntur uppfærður upplýsingabæklingur fyrir heimilin til að vinna út frá á meðan að hættustig almannavarna vegna Covid-19 varir eins og nú er. Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar í Borgarnesi og varaformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu fer yfir reglurnar í tilkynningu. Þar…Lesa meira

true

Leiðrétting á frétt vegna fundar skipulagsnefndar

Í frétt hér á skessuhorn.is í gær, þar sem fjallað var um umsókn Páls Guðmundssonar um niðurrif á legsteinasafni í Húsafelli, var farið rangt með fundartíma í skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar. Fundur var sagður á dagskrá í dag, föstudag. Það er rangt því fundartíminn er næstkomandi mánudagsmorgun, 10. ágúst. Beðist er velvirðingar á þessu.Lesa meira

true

Sauðfjárbændur krefjast leiðréttingar á afurðaverði

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda hefur gefið út viðmiðunarverð fyrir dilkakjöt haustið 2020. Félagið krefst þess að bændur fái að lágmarki 132 kr/kg hækkun frá reiknuðu meðalverði haustið 2019 að viðbættum þeim viðbótargreiðslum sem greiddar hafa verið. Það gerir reiknað meðalverð um 600 kr/kg. Í tillögu Landssamtaka sauðfjárbænda er sömuleiðis gert ráð fyrir að fram fari leiðrétting…Lesa meira