Fréttir

true

Á Skotthúfunni kemur fólk saman í sínu fínasta pússi

Síðastliðinn laugardag fór þjóðbúningahátíðin Skotthúfan fram í Stykkishólmi. Þessi þjóðlega hátíð hefur rækilega fest sig í sessi í menningarlífinu og setur fallegan blæ á bæjarlífið hverju sinni. Á hátíðinni kemur áhugafólk af öllu landinu saman í Hólminum einn dag, klætt sínu fínasta pússi. Það er Byggðasafn Snæfellinga- og Hnappdæla sem hefur veg og vanda að…Lesa meira

true

„Ég elska að gera það sem ég geri og er alveg að lifa minn draum“

Blaðamaður Skessuhorns fékk heldur betur vinalegar móttökur heima hjá Sigrúnu Baldursdóttur á Akranesi. Það var hún Ronja, 8 mánaða Berner Sennen hvolpur sem var fyrst til að heilsa en á eftir fylgdu foreldrar hennar, þau Lady og Crazy, og að sjálfsögðu Sigrún. Eftir að allir höfðu fengið að heilsast smávegis fengum við okkur sæti og…Lesa meira

true

Þurfa að koma sér upp nýju húsi fyrir veturinn

Hjónin Guðrún María Björnsdóttir og Jóhann Páll Þorkelsson bændur á Snartarstöðum í Lundarreykjadal urðu fyrir því óhappi í byrjun júní að íbúðarhúsið þeirra og allt innbú eyðilagðist í eldi. Blessunarlega slasaðist enginn í brunanum og þeir sem í húsinu voru komust óskaddaðir út og náðu að kalla út aðstoð. Ljóst er að röð tilviljana réði…Lesa meira

true

Hreyfistöðvar settar upp í Garðalundi á Akranesi

Hreyfistöðvar voru formlega teknar í notkun í Garðalundi á Akranesi í blíðskaparveðri í dag. Um er að ræða samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness en hreyfistöðvarnar í Garðalundi eru hluti af Heilsueflandi samfélagi á Akranesi. Settar voru upp ellefu hreyfistöðvar í Garðalundi og eru upplýsingaskilti við hverja stöð með góðum leiðbeiningum um þær æfingar sem hægt…Lesa meira

true

Sumarmarkaður í Sólbyrgi á laugardaginn

Ábúendur í Sólbyrgi í Reykholtsdal ætla að endurtaka leikinn frá því fyrr í sumar og bjóða upp á sumarmarkað á laugardaginn. „Við ætlum að endurtaka leikinn og opna inn í gróðurhúsið í Sólbyrgi laugardaginn 11. júlí milli klukkan 13 og 17. Allir eru velkomnir. Hægt verður m.a. að kaupa grænmeti, blóm og pottaplöntuafleggjara, ljúfmeti frá…Lesa meira

true

Bæjarstjórn í beinni útsendingu

Upptökubúnaður var prófaður í fyrsta skipti á 388. fundi bæjarstjórnar Stykkishólms 4. júní síðastliðinn. Fundurinn var tekinn upp en ekki sendur út í beinni. Upptökunni var síðan deilt á Youtuberás Stykkishólmsbæjar daginn eftir. Síðasti fundur bæjarstjórnar, nr. 389, var svo haldinn fimmtudaginn 2. júlí. Hann var tekinn upp og sendur út í beinni útsendingu. „Ef…Lesa meira

true

Fimm ættliðir í beinan kvenlegg

Á meðfylgjandi mynd eru fimm ættliðir í beinan kvenlegg sem komu saman þegar yngsta manneskjan á myndinni fékk nafn. Hún er þriggja mánaða gömul og heitir Hrafney Dís Marinósdóttir. Móðir hennar er Vigdís Lilja Árnadóttir fædd 1999 en þær eru búsettar á Hellu. Þá er amma litla barnsins; Eiríka Benný Magnúsdóttir sem er fædd 1978…Lesa meira

true

Töluvert dregur úr lausum störfum á vinnumarkaði

Laus störf á íslenskum vinnumarkaði voru 2.600 á öðrum ársfjórðungi þessa árs samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 198.700 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 1,3%. Borið saman við fyrsta ársfjórðung 2020 fækkaði lausum störfum um 300 en hlutfall lausra starfa hefur haldist óbreytt. Borið saman við annan ársfjórðung 2019 má…Lesa meira

true

Baldur gæti komist í gang um næstu helgi

Vélarbilun í flóabátnum Baldri í síðustu viku reyndist meiri en í í fyrstu var talið. Ventill í heddi vélarinnar reyndist hafa farið inn í túrbínu og skemmt hana. Smíða þarf varahluti í vélina í Danmörku og á því verki að verða lokið um miðja þessa viku. Í tilkynningu frá Sæferðum kemur fram að vonast er…Lesa meira

true

Reykholtshátíð verður síðustu helgina í júlí

Reykholtshátíð verður haldin um síðustu helgina í júlí, venju samkvæmt, sem í ár ber upp á 24. til 26. júlí. Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af fernum tónleikum sem bjóða upp á afar fjölbreytta efnisskrá, bæði kammerverk, kórverk og einsöngslög. Einnig er fyrirlestur á vegum Snorrastofu fastur liður á dagskrá hátíðarinnar. Feðgar syngja í fyrsta sinn saman…Lesa meira