Fréttir

true

Viðurkenning EarthCheck endurnýjuð

Nýverið hlutu sveitarfélögin á Snæfellsnesi framlengingu á umhverfisvottun EarthCheck fyrir starfsemi sína. Vottunin hefur nú verið endurnýjuð árlega frá 2008. Sveitarfélögin tóku sameiginlega ákvörðun um aldamótin að standa vörð um umhverfið og hófu að gera umbætur í starfsemi sinni og miðla fræðslu til íbúa. Árið 2003 hófu þau ásamt Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, umfangsmikla undirbúningsvinnu að umhverfisvottun…Lesa meira

true

Eldur í ruslageymslu á Akranesi

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út klukkan 22:40 í kvöld að húsi við Skólabraut á Akranesi. Þar var mikill eldur í ruslageymslu í þröngu porti milli húsanna við Skólabraut 21 og 23. Íbúar komust út og enginn slasaðist. Slökkvistarf gekk greiðlega en skemmdir urðu á klæðningu beggja húsanna og ljóst að ekki mátti miklu…Lesa meira

true

Fjölmiðlar fá einskiptisstuðning vegna áhrifa Covid 19

Á nýliðnu þingi var mennta- og menningarmálaráðherra falið að útfæra með reglugerð fyrirkomulag við úthlutun 400 milljóna kr. sérstaks rekstrarstuðnings við einkarekna fjölmiðla til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19. Reglugerðin liggur nú fyrir, kynnt ríkisstjórn og birt á vef Stjórnartíðinda. Við ákvörðun styrkja verður litið til launa, fjölda starfsmanna og verktakagreiðsla vegna miðlunar á fréttum…Lesa meira

true

Miklar umferðartafir á Kjalarnesi

Miklar umferðartafir eru á Kjalarnesi vegna malbikunarframkvæmda og umferð er handstýrt. Geta liðið allt að 20 mínútur á milli þess að skipt er um akstursstefnu. „Vegfarendum er bent á hjáleið um Mosfellsheiði, Kjósarskarð og Hvalfjörð.  Athugið að hin akreinin verður malbikuð á morgun þriðjudaginn 7. júlí og má þá einnig reikna með töfum,“ segir í…Lesa meira

true

Tóku þátt í Aldursflokkameistaramóti í sundi

Um síðustu helgi fór Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi fram í Hafnarfirði. Mótið er bæði keppni á milli liða, þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig, og einnig eru stigahæstu sundmenn hvers aldursflokks krýndir. Alls tóku 20 sundfélög þátt í mótinu og voru keppendur 285. Sundfélags Akraness mætti til leiks…Lesa meira

true

Nýr risi verður til á kjötvinnslumarkaði

Kjarnafæði og Norðlenska í eina sæng Eigendur kjötvinnslufyrirtækjanna Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála samruna félaganna. Um gríðarstóran samruna er að ræða á kjötmarkaði þar sem yfir 370 stöðugildi eru unnin á hverju ári hjá fyrirtækjunum. Kjarnafæði er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, en Norðlenska er í eigu Búsældar,…Lesa meira

true

HMS úthlutar til byggingar 63 hagkvæmra leiguíbúða á Vesturlandi

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur úthlutað ríflega 3,6 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á 600 hagkvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið, svokallaðra almennra íbúða. Leiguíbúðirnar verða í 15 sveitarfélögum og þar af verða 63 hér á Vesturlandi. Fjármunirnir eru hugsaðir til að styðja við framboð ódýrra leiguíbúða fyrir almenning og verða nýttir til byggingar á 438 íbúðum…Lesa meira

true

Vínlandssetur formlega opnað í Búðardal

Í gær fór fram formleg opnun á Vínlandssetrinu í Búðardal og var dagskráin liður í bæjarhátíðinni Heim í Búðardal. Húsfyllir var við vígsluna og vel það, því margir hlustuðu á opnunarathöfn í sólinni utandyra. Meðal gesta var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jacob Isbosethsen sendimaður Grænlands á Íslandi, Jeffrey Gunter sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi auk fulltrúa frá…Lesa meira

true

Hægt að spyrja spjallmennið Sæmi á heimasíðu Akraneskaupstaðar

Við stofnun Breiðar Þróunarfélags síðastliðinn fimmtudag, þar sem nýsköpun, hátækni og ýmsar rannsóknir munu m.a. fara fram, þótti við hæfi að vígja formlega nýsköpunarverkefni sem fyrirtækið Grammatek hefur unnið að síðastliðið ár í samstarfi við Akraneskaupstað. Spjallmennið Sæmi var formlega tekið í notkun á heimasíðu Akraneskaupstaðar en það gegnir því hlutverki að svara hinum ýmsum…Lesa meira

true

ÍA með stórsigur á Val á Hlíðarenda

ÍA heimsótti Val að Hlíðarenda í fyrsta leik fjórðu umferðar Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið. Valsmenn voru með sex stig fyrir leikinn eftir tvo sigra í röð en Skagamenn voru aftur á móti með þrjú eftir tvö töp í síðustu leikjum. Það voru þeir gulklæddu sem náðu forystunni snemma leiks en þar…Lesa meira