Fréttir

true

Skortir búnaðinn til að skanna rafræn ökuskírteini

Ökumenn eru nú farnir að framvísa rafrænum ökuskírteinum. Slík ökuskírteini þarf að skanna en lögregluembættið á Vesturlandi hefur ekki enn fengið slíkan skanna í hendur. Þarf lögreglan því að hafa samband við fjarskiptamiðstöðina til að kanna með ökumenn, hvort þeir hafi ekki örugglega réttindi til aksturs. Þegar hefur komið upp dæmi um ökumann sem hafði…Lesa meira

true

Gunnar Viðar varð fyrstur til að hlaupa 100 mílur á Íslandi

Gunnar Viðar Gunnarsson í Borgarnesi varð um helgina fyrstur allra til að ljúka viðurkenndu 100 mílna keppnishlaupi á Íslandi. Hlaupið var hluti af viðburðinum America to Europe Ultra, sem nú var haldinn í fyrsta sinn. Boðið var upp á nokkrar vegalengdir en Gunnar var sá eini sem lagði í 100 mílurnar. Hann hljóp af stað…Lesa meira

true

Mokveiði í Hraunsfirði

Veiðin hefur verið frábær í Hraunsfirði á Snæfellsnesi dag eftir dag og veiðimenn verið að fá mjög fallegar bleikjur. Einn veiðimaðurinn sagði: „Hraunsfjöðurinn hreinlega kraumar af fiski.“ Það eru víst orð að sönnu þessa dagana. ,,Veiðin gekk frábærlega, ég tók yfir 40 bleikjur í dag, mjög góðan matfisk,“ sagði Ingi Rafn er við heyrðum í…Lesa meira

true

Vestfjarðavíkingurinn fór fram um helgina

Um helgina fór aflraunakeppinn Vestfjarðavíkingurinn 2020 fram í Dölum og á Snæfellsnesi. Að þessu sinni fór keppnin ekki fram á Vestfjörðum, þrátt fyrir nafnið, en brugðið var á það ráð vegna sóttvarna vegna Covid-19. Magnús Ver Magnússon fjórfaldur sterkasti maður heims lýsti keppninni, en keppendur voru tíu talsins. Keppinn hófst i Búðardal á föstudaginn þar…Lesa meira

true

Friðsamir Írskir dagar

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlanda fóru Írskir dagar á Akrnesi að mestu friðsamlega fram. Nokkuð var um útköll vegna hávaða og lögregla þurfti aðeins að hafa afskipti af fólki vegna ölvunar. Þá ákvað hópur fólks að tjalda utan tjaldsvæðis og var þeim bent á að færa sig yfir á tjaldsvæðið. Einn maður undir áhrifum áfengis…Lesa meira

true

Veðurblíða á Meistaramóti GB

Meistaramót Golfklúbbs Borgarness fór fram á Hamarsvelli í Borgarnesi dagana 30. júní til 3. júlí. Mótið hófst á þriðjudegi og spiluðu kylfingar 18 holur, fjóra daga í röð. Mótið er höggleikur að undanskildum Opnum flokki, sem spilaði með punkta-fyrirkomulagi, en þessi flokkur er settur á laggirnar til að hvetja nýja kylfinga í sportinu til keppni.…Lesa meira

true

Mótmæla því að Sorpurðun ásælist að urða í Fíflholtum sorp úr öðrum landshlutum

Nágrannar við sorpurðunina að Fíflholtum á Mýrum hafa sent stjórn fyrirtækisins athugasemdir vegna frummatsskýrslu sem gerð hefur verið vegna áhrifa fyrirhugaðrar aukningar á magni sorps sem urða má í Fíflholtum. „Við nágrannar við urðunarstaðinn erum mjög óánægðir með þá ásókn stjórnar Sorpurðunar Vesturlands að vilja auka það magn sorps sem heimilt er að urða,“ segir…Lesa meira

true

Markalaust jafntefli gegn toppliðinu

Káramenn gerðu markalaust jafntefli gegn toppliði Kórdrengja í fjórðu umferð annarrar deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Kári er enn án sigurs eftir fjórar umferðir og fyrir síðustu umferð voru þeir með tvö töp og eitt jafntefli að baki. Kórdrengir voru aftur á móti með fullt hús stiga fyrir viðureignina. Eins og fyrr kemur fram…Lesa meira

true

Þrír tapleikir í röð hjá Víkingi

Enn þarf Víkingur Ólafsvík að sætta sig við tap. Liðið tók á móti Fram á Ólafsvíkurvelli í fjórðu umferð fyrstu deildar í knattspyrnu karla í gærkvöldi. Fyrir leikinn var Víkingur með tvo tapleiki í röð en Fram á sigursiglingu eða þrjá sigra í röð. Með sigurbragð í munni skoruðu gestirnir eftir um það bil kortersleik…Lesa meira

true

Sannfærandi fyrsti sigur Skagakvenna

Kvennalið ÍA í knattspyrnu átti fantagóðan leik þegar liðið sigraði Völsung í fjórðu umferð 1. deildar kvenna á Akranesvelli í gærkvöldi. Fyrir umferðina voru Skagakonur með þrjú jafntefli að baki og efalaust hungraðar í sigur og stigin þrjú. Völsungur aftur á móti hafði átt erfitt uppdráttar í mótinu og hafði liðið tapað öllum sínum viðureignum.…Lesa meira