Fréttir

true

Gamla kaupfélagið hefur opnað matstofu

Gamla kaupfélagið á Akranesi var enduropnað með nýjum áherslum fimmtudaginn 18. júní síðastliðinn. „Við breyttum heildarkonseptinu og nú er þetta ekki hefðbundinn veitingastaður lengur, heldur matstofa,“ segir Gunnar Hafsteinn Ólafsson, einn af eigendum Gamla kaupfélagsins í samtali við Skessuhorn. Matstofan er opin alla virka daga frá kl. 11:30-14 og boðið er upp á fimm heita…Lesa meira

true

Sýnir tálgaða fugla í Bókasafninu á Akranesi

Í Bókasafninu á Akranesi stendur yfir sýning þar sem Arnþór Ingibergsson sýnir handverk sitt, tálgaða fugla. Arnþór er fæddur og uppalinn í Reykjavík en flutti á Akranes árið 1976 ásamt Guðrúnu eiginkonu sinni. Saman eiga þau tvö börn og fimm barnabörn. Guðrún er ættuð frá Innra-Hólmi og ákváðu þau hjónin að prófa að búa á…Lesa meira

true

Unglingalandsmóti frestað

Framkvæmdarnefnd Unglingalandsmóts UMFÍ í samráði við sóttvarnarlæknir og Almannavarnir hafa ákveðið að fresta mótinu sem fara átti fram á Selfossi 31. júlí – 2. ágúst um eitt ár. Frá þessu er greint í frétt á vef UMFÍ en þar er haft eftir Ómari Braga Stefánssyni, landsfulltrúa og framkvæmdastjóra móta UMFÍ, að mikilvægt sé að sýna…Lesa meira

true

Tíu prósent þjóðarinnar óspenntir

Í byrjun mánaðarins var tekið í notkun nýjasta gerð af Volkswagen Golf. Bíll þessi er óvenjulegur fyrir þær sakir að í honum er ekki vél enda er honum ekki ætlað að aka með hefðbundnum hætti um vegi landsins. Þess í stað mun bíllinn velta á völdum stöðum vítt og breitt um landið með fólk innanborðs,…Lesa meira

true

Gleði framundan í Snæfellsbæ

Sandara- og Rifsaragleði fer fram um helgina. Fyrsti viðburður hátíðarinnar er kassabílarallí í Rifi í kvöld, fimmtudag kl. 18 og síðar í kvöld mun Sóli Hólm stíga á svið í Frystiklefanum. Á föstudaginn ætla landverðir þjóðgarðsins Snæfellsjökuls að hitta krakka á aldrinum 6-12 ára kl. 16 við Sjóminjasafnið og skoða hvað leynist í hrauninu. Þá…Lesa meira

true

Veggur málaður regnbogalitum í Borgarnesi

Skemmtileg sjón blasti við vegfarendum á leið inn í Borgarnes sunnan megin frá í gær. Ungmenni í vinnuskóla Borgarbyggðar hafa nú litað hluta af steinveggi sem afmarkar bílastæði N1 í bænum og liggur meðfram Brúartorgi í Borgarnesi í litum regnbogafánans. Markmiðið er að mála alla steinveggjalengjuna eins og hún leggur sig og er stefnan sett…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hvetur til lagningar ljósleiðara

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar fimmtudaginn 2. júlí hvatti bæjarstjórn Póst- og fjarskiptastofnun til að horfa sérstaklega til þess að að leggja ekki kvaðir á fjarskiptafyrirtæki sem gætu verið hamlandi fyrir frekari uppbyggingu ljósleiðaranets á landbyggðinni. „Bæjarstjórn Stykkishólmsbær telur mikilvægt að skapað verði umhverfi sem styður við áframhaldandi uppbyggingu ljósleiðarnets í þéttbýliskjörnum á landsbyggðinni,“ segir í…Lesa meira

true

Jafntefli í fjörugum leik

Karlalið ÍA í knattspyrnu skildi að jöfnu við lið HK úr Kópavogi þegar liðin mættust í fjörugum leik í fimmtu umferð Pepsi Max deildar karla á Akranesvelli í gærkvöldi. Skagamenn komu inn í viðureignina fullir sjálfstrausts eftir sannfærandi útisigur gegn Valsmönnum í síðustu umferð á meðan HK-ingar gerðu jafntefli í miklum markaleik gegn Gróttu. Eftir…Lesa meira

true

Ýmiskonar ferðamáti

Nýliðin helgi var líklega einhver stærsta ferðahelgi í langan tíma á Snæfellsnesi enda veðurspáin hagstæð og því mikið af ferðalöngum sem lögðu land undir fót og héldu á Vesturland. Víða voru tjaldsvæði þétt setin og var tjaldsvæðið í Grundarfirði engin undantekning. Þó voru ekki allir sem komu akandi með hjólhýsið eða fellihýsið í eftirdragi því…Lesa meira

true

Heilbrigðisstofnun Vesturlands vill ekki taka við rekstri Silfurtúns

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 13. febrúar í vetur var samþykkt að leita eftir því að Heilbrigðisstofnun Vesturlands tæki við rekstri Dvalar- og hjúkrunarhimilisins Silfurtúns í Búðardal. Þá sendi Kristján Sturluson sveitarstjóri bréf til Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra HVE þar sem hann óskaði eftir formlegri afstöðu HVE um að stofnunin tæki við rekstri Silfurtúns. Sagði hann…Lesa meira