Fréttir

true

Endurskoðun á lögum um villt dýr í samráðsgátt

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Um er að ræða heildarendurskoðun laga þessa efnis. Frumvarpið verður aðgengilegt í samráðsgáttinni og hægt að gera athugasemdir við það til 10. ágúst næstkomandi. Lögin hafa nú verið endurskoðuð í samræmi við ákvæði…Lesa meira

true

Aukafjárveiting til landshlutasamtaka sveitarfélaga

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og framkvæmdastjórar sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga undirrituðu nýverið samninga um ráðstöfun 200 milljóna kr. aukafjárveitingar til sóknaráætlana landshluta. Fjárveitingin kemur í gegnum aukafjárlög ársins 2020 sem Alþingi samþykkti í lok mars til að bregðast við áhrifum Covid-19 faraldursins á landsbyggðinni. Ákveðið var að skipta 150 milljónum króna jafnt á milli…Lesa meira

true

Fasteignaviðskipti voru lífleg í júní

Á Vesturlandi var 64 samningum þinglýst um fasteignir í júnímánuði. Þar af voru 27 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um eignir í sérbýli og 19 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 2.017 milljónir króna í þessum viðskiptum og meðalupphæð á samning 31,5 milljón króna. Af þessum 64 voru 30 samningar um eignir…Lesa meira

true

Staðará í góðum gír

„Ég hef ekkert farið á Vatnasvæði Lýsu  nýlega, en Staðaráin er í góðum gír,“ sagði Magnús Anton Magnússon er við spurðum út í veiði á Snæfellnesinu, en hann veiðir víða á þessum slóðum. „Það hefur eitthvað veiðst í Staðaránni en veiðin er að glæðast þessa dagana. Laxinn og sjóbirtingurinn fer að ganga og ég á…Lesa meira

true

Rasísk ummæli í leik Skallagríms og Berserkja

Leiðinlegt atvik átti sér stað í leik Skallagríms og Berserkja á Skallagrímsvelli á föstudaginn þegar rasísk ummæli féllu í garð leikmanns Berserkja frá einum leikmanni Skallagríms. Dómari leiksins talaði ensku svo hann skildi ekki hvað fram fór á milli leikmanna. Gerðist þetta í upphafi seinni hálfleiks en leikmaður Skallagríms var tekinn útaf á 55. mínútu.…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn aftur á toppinn

Skallagrímsmenn tóku á móti liði Berserkja á föstudaginn þegar liðin mættust í fimmtu umferð C riðils fjórðu deildar karla í knattspyrnu. Í síðustu umferð töpuðu Borgnesingar sínum fyrsta leik, gegn liði KÁ, eftir að hafa unnið allar sínar viðureignir á mótinu. Eftir sigur á Berserkjum eru þeir félagar komnir á sigurbraut að nýju. Heimamenn voru…Lesa meira

true

Takk veggir á Vesturlandi

Fyrir 40 árum voru Íslendingar fyrstir allra þjóða að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Af því tilefni var efnt til hvatningarátaksins Takk fyrir að vera til fyrirmyndar en Karitas Diðrikdóttir, Marín Magnúsdóttir og Sigþrúður Ármann standa bakvið átakið. Hugmyndin er að fólk skrifi kveðju á sérútbúið þakkarbréf til þeirra sem…Lesa meira

true

Segja íbúa á Snæfellsnesi hafa lagt sig fram við flokkun á sorpi

Á miðvikudaginn síðastliðinn birtist hér á vef Skessuhorns frétt um að nágrannar við sorpurðunina að Fíflholtum á Mýrum séu óánægðir með að stjórn Sorpurðunar Vesturlands vilji auka það magn sorps sem heimilt er að urða í Fíflholtum. Í bréfi sem nágrannarnir sendu frá sér segir m.a. að; „Enn fremur vekur furðu þegar sveitarstjórnarmenn á Snæfellsnesi…Lesa meira

true

Tvær nýjar lögreglubifreiðar á Snæfellsnes

Bílafloti Lögreglunnar á Vesturlandi hefur verið endurnýjaður eftir þörfum og hafa nú verið teknar í notkun tvær nýjar birfeiðar sem staðsettar verða á Snæfellsnesi, að því er fram kemur í færslu á Facebook síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. „Um er að ræða tvo Land Rover Discovery jeppa sem búnir eru öllum þeim lögreglubúnaði sem þörf er…Lesa meira

true

Keppt í Mjólkurbikarnum

Leikið verður í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í dag og á morgun. Þar er eitt Vesturlandslið, ÍA. Mæta stelpurnar Augnabliki frá Kópavogi á Akranesvelli kl. 16:15 á morgun, laugardag. Karlalið ÍA er einnig komið í 16 liða úrslit í Mjólkurbikar karla en þeir leika í lok mánaðarins, föstudaginn 31. júlí, þegar þeir…Lesa meira