Fréttir

true

Sveitalíf sem kitlar hláturtaugarnar

Næstu skemmtanir: Grundarfjörður – Borgarnes – Akranes Friðrik Ómar og Jógvan ferðast nú um landið á húsbíl og heimsækja yfir 20 staði víðsvegar um landið með skemmtun sem ber nafnið Sveitalíf. Þeir gáfu saman út plötuna Vinalög árið 2009, með íslenskum og færeyskum dægurlögum. Í framhaldinu fóru þeir í ferð um landið og um síðustu…Lesa meira

true

Miðnæturopnun verður í Lýsulaug í kvöld

Svæðisgarðurinn á Snæfellsnesi stendur fyrir viðburðarveislunni „Saman á Snæfellsnesi“ í sumar. Eitt af því sem á dagskrá verður er Miðnætursund í Lýsulaugum sem er á dagskrá í kvöld 14. júlí frá klukkan 21:30 til miðnættis. „Miðnætursund í Lýsulaugum er „Ones in að livetime viðburður“,“ segir í tilkynningu. „Laugin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi,…Lesa meira

true

Framlag Snorrastofu á Reykholtshátíð 2020

Eins og undanfarin ár fagnar Snorrastofa í Reykholti Reykholtshátíð, sem haldin verður með hefðbundnu sniði dagana 24.-26. júlí næstkomandi. Ánægjulegur áfangi náðist þegar séð varð framá að hægt yrði að halda hátíðina þrátt fyrir þrengingar vegna Covid-faraldurs og samkomubanns, sem nú hefur verið aflétt nægjanlega mikið. Á Reykholtshátíð flytja framúrskarandi listamenn sígilda tónlist á fernum…Lesa meira

true

Dagur íslenska fjárhundsins er 18. júlí

Að venju er 18. júlí ár hvert tileinkaður Degi íslenska fjárhundsins. Hann hefur verið haldinn hátíðlegur hér á landi og víðar. „Vaxandi áhugi er fyrir deginum og margir eigendur íslenskra fjárhunda taka þátt í að gera daginn sérstakan með ýmsum viðburðum ár hvert. Meðal dagskráliða í ár munu nokkrir eigendur íslenskra fjárhunda verða með hunda…Lesa meira

true

Sögurölt um Ásgarðsstapa í Dölum

Sögurölt nefnist samstarfsverkefni Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjársetursins á Ströndum. Í þriðja sögurölti sumarsins verður gengið á Ásgarðsstapa í Hvammssveit í Dölum. Röltið verður fimmtudaginn 16. júlí og hefst klukkan 19:30 við afleggjarann að Ásgarði. „Í stapanum búa álfar og verður sagt frá samskiptum þeirra við okkur mannverurnar, auk þess sem Ásgarðsfeðgar segja frá og sýna…Lesa meira

true

Brú á bláþræði

Brúin yfir Geirsá á tengivegi neðst í Reykholtsdal á milli bæjanna Kletts og Runna hangir nú á bláþræði. Brúarbitarnir hvíla á trébúkkum og er nú annar búkkinn hruninn og brúin hefur sigið talsvert niður, en hangir þó enn uppi. Það var steypudælubíll sem var á ferðinni yfir brúna þegar trébúkkinn gaf sig en bíllinn slapp…Lesa meira

true

ÍA áfram í Mjólkurbikar kvenna

Kvennalið ÍA tryggði farseðil sinn í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir dramatískan sigur gegn Kópavogsliðinu Augnabliki á laugardag á Akranesvelli. Fyrsta mark kom frá heimastúlkum eftir um hálftíma leik. Það var Erla Karitas Jóhannesdóttir sem kom þeim stöllum yfir á 27. mínútu og leiddu þær gulklæddu í leikhléi. Í síðari hálfleik var allt í járnum og…Lesa meira

true

Skagamenn komnir í toppbaráttuna

Meistaraflokkur ÍA í knattspyrnu karla átti ekki í vandræðum með nýliða Gróttu þegar liðin mættust í sjöttu umferð Íslandsmótsins á Seltjarnarnesi á sunnudaginn. Gróttamenn unnu sinn fyrsta sigur í síðustu umferð og komu því fullir sjálfstrausts til leiks. Skagamenn aftur á móti skildu jafnir við HK á heimavelli í síðustu umferð, en þeir félagar hafa…Lesa meira

true

Fyrsta útboð vegna breikkunar vegar um Kjalarnes

Vegagerðin auglýsti í síðustu viku eftir tilboðum í fyrsta áfanga breikkunar hringvegarins á rúmlega fjögurra kílómetra kafla frá Varmhólum að Vallá á Kjalarnesi. Í útboðslýsingu er gert ráð fyrir hringtorgi við Móa og undirgöngum við Varmhóla og Saltvík, auk hliðarvega og stíga. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur. Breikka á núverandi tveggja…Lesa meira

true

Hlutfallslega mest fjölgun í Stofnun Múslima á Íslandi

Alls voru 230.626 einstaklingar, eða 62,9% landsmanna, skráðir í þjóðkirkjuna 1. júlí síðastliðinn samkvæmt samantekt Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.675 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.016 meðlimi. Hlutfallsleg fjölgun á sjö mánaða tímabili var mest í stofnun Múslima á Íslandi, þar sem fjölgaði um 90 félaga, eru nú 341. Það er…Lesa meira