Fréttir

true

Dauð smásíld í Kolgrafafirði

Mikið fuglalíf var norðanmegin við veginn yfir Kolgrafafjörð í gærkveldi og þegar betur var að gáð var mikið magn af dauðri kópsíld á svæðinu. Ekki er vitað af hverju smásíldin drapst þarna en þetta er á flæðum sem fjarar út af á skömmum tíma og spurning hvort að síldin hafi orðið innlyksa. En það eru…Lesa meira

true

Hefja tónleikaferð sína um Vesturland í dag

Söngvararnir Svavar Knútur og Kristjana Stefáns leggja land undir fót og halda af stað um Vesturland í dag.  júlímánuði og ætla að syngja dúetta og spila létta tónlist á vel völdum stöðum í landshlutanum. Tónleikaröðin ber það ljúfa heiti; Með faðmlög í farteskinu. Fyrstu tónleikar þeirra verða klukkan 20 í kvöld í gömlu kirkjunni í…Lesa meira

true

Vistaður í pappakassa eftir að átök brutust út

„Eftir að átök brutust út milli þriggja aðila í gærkvöldi fyrir utan veitingastað á Skallagrímsvelli í Borgarnesi var þessi handsamaður af lögreglu. Var hann nokkuð vankaður eftir atið og vistaður í pappakassa. Létu tveir aðilar sig hverfa af vettvangi og eru þeir grunaður um aðild að málinu. Öðrum var lýst sem bröndóttum og hinum hvítum.“…Lesa meira

true

Kynningarmyndband fyrir Hvalfjarðarsveit

Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur í samstarfi við Hrafn Art unnið að gerð kynningarmyndbanda fyrir sveitarfélagið. Annars vegar myndband fyrir þá sem eru á ferðalagi um Hvalfjarðarsveit og hins vegar kynningarmyndband um hvernig sé að búa í sveitarfélaginu. Kynningarmyndbandið fyrir þá sem eru að ferðast í sumar hefur verið birt og sett upp á heimasíðu…Lesa meira

true

Hringur dró Baldur í Stykkishólm

Í gærkvöldi kom ferjan Baldur til hafnar í Stykkishólmi eftir vélarbilun á mánudaginn. Það var Hringur SH-153, skip GRun í Grundarfirði sem dró skipið frá Flatey í Hólminn. Ferðin gekk vel. Ný túrbína og aðrir varahlutir í Baldur eru nú á leið frá Danmörku samkvæmt tilkynningu frá Sæferðum. Ekki liggur enn fyrir hversu langan tíma…Lesa meira

true

Sannfærandi heimasigur Borgnesinga

Skallagrímsmenn sýndu góða frammistöðu gegn KFB í Borgarnesi er þeir sigruðu Bessastaðamenn 5-1 í gærkvöldi. Liðin leika í C riðli 4. deildar karla í knattspyrnu og var þetta þriðja umferð móts sem endaði eins og fyrr segir, með Skallasigri. Heimamenn byrjuðu í vægast sagt banastuði og skoruðu fyrstu þrjú mörkin á innan við fyrstu tíu…Lesa meira

true

Írskir Dagar um næstu helgi á Akranesi

Líkt og hvert undanfarin ár verður bæjarhátíðin Írskir dagar haldin á Akranesi fyrstu helgina í júlí. Hátíðin verður með breyttu sniði vegna Covid-19 og ýmis hagræðing og breytingar gerðar á dagskrá til að gæta að öryggi íbúa og gesta. „Við verðum með dagskrána víðar um bæinn til að dreifa fjöldanum eins og kostur er. Dagskráin…Lesa meira

true

Alþýðutónlist í Búðakirkju á laugardaginn

Sumartónleikar Menningarsjóðsins undir Jökli fara fram næstkomandi laugardag í Búðakirkju og er hún öllum opin af því tilefni. Það er þríeykið Hljómórar sem flytur tónlistardagskrá við allra hæfi, í heldri stofu stíl. Rúna Esradóttir, Dagný Arnalds og Jón Gunnar B. Margeirsson mynda dægurorganismann í Hljómórum en þríradda söngur og „stofuhljóðfæri“ bera dagskrána uppi. Það eru…Lesa meira

true

Covid-19 tekur sig upp að nýju

Smitum af Covid-19 hefur verið að fjölga að nýju frá því landið var opnað fyrir ferðalög 15. júní síðastliðinn. Staðfest smit á landinu eru nú 12 og 415 eru í sóttkví. Á Vesturlandi eru sjö í sóttkví samkvæmt tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi í dag; fimm á Akranesi, einn í Borgarnesi og einn í Stykkishólmi.…Lesa meira