Fréttir

true

Innbrot í Botnsskála

Í nótt var tilkynnt um innbrot í Botnsskála í Hvalfirði. Viðvörunarkerfi fór í gang en búið var að brjóta upp hurð þegar lögreglan kom á staðinn. Einn var stöðvaður skömmu síðar grunaður um aðild að málinu auk þess sem hann reyndist aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna en hann svaraði jákvætt við amfetamíni. Var hann…Lesa meira

true

Ætla að leita á Heydal á laugardaginn

Björgunarsveitir á Vesturlandi hafa verið boðaðar til leitar á laugardaginn í Hnappadal. Óskað hefur verið eftir allt að 150 björgunarsveitarmönnum til að taka þátt í leit að manni sem týndist 30. desember síðastliðin og hefur ekkert til spurst síðan. Búið er að vinna leitarskipulag og stefnt á að leita öll skilgreind leitarsvæði þar sem svæðið…Lesa meira

true

Magnús ráðinn hafnarstjóri Faxaflóahafna

Stjórn Faxaflóahafna sf. hefur samþykkt að ráða Magnús Þór Ásmundsson í starf hafnarstjóra. Tekur hann við af Gísla Gíslasyni 5. ágúst næstkomandi. Magnús Þór er rafmagsnsverkfræðingur að mennt. Hann starfaði hjá Marel frá 1990-2009 en hefur verið forstjóri Fjarðaráls á Reyðarfirði undanfarin ár.Lesa meira

true

Nýsamþykkt samgönguáætlun boðar framkvæmdir um land allt og fjölmörg ný störf

Samgönguáætlun til fimmtán ára 2020-2034 og aðgerðaáætlun til fimm ára 2020-2024 voru samþykktar samhljóða á Alþingi á mánudag. Um er að ræða uppfærða og endurskoðaða samgönguáætlun á grunni þeirrar sem samþykkt var í febrúar 2019. Nýsamþykkt samgönguáætlun er ein sú umfangsmesta sem samþykkt hefur verið og felur í sér framtíðarsýn og áform um nýframkvæmdir og…Lesa meira

true

Nýir rekstraraðilar að Kaldalæk í Ólafsvík

Kaffihúsið Kaldilækur var opnaður aftur á dögunum en Kaldilækur hefur verið rekinn yfir sumartímann síðan 2017 og er staðsettur í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Nýir rekstraraðilar hafa nú tekið við og opnuðu 25. júní. Það eru þau Jón Páll Pálmason þjálfari Víkings og eiginkona hans Kerry Palmason sem hafa tekið við rekstrinum.Lesa meira

true

Utanríkisráðherra Færeyja á ferð um Snæfellsnes

Jenis av Rana, mennta- og utanríkisráðherra Færeyja, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra Íslands heimsóttu Snæfellsnes í gær. Funduðu þeir á Hótel Búðum og fóru að því loknu í skoðunarferð um Snæfellsbæ. Farið var á Arnarstapa, Malarrif, Djúpalónssand og Sjóminjasafnið á Hellissandi undir leiðsögn Ragnhildar Sigurðardóttur. Á ferð sinni komu gestirnir við í Gallerí Jökli í…Lesa meira

true

Baldur bilaði í gær og mun ekki sigla næstu daga

Vélarbilun kom upp í flóabátnum Baldri þegar skipið var á siglingu yfir Breiðafjörð í gær. Tekið var land í Flatey þar sem bilanagreining hófst. Mikinn svartan reyk lagði frá vél skipsins við komuna til Flateyjar. Við bilanaleit kom í ljós að önnur af tveimur túrbínum í vél skipsins er ónýt og er búið að panta…Lesa meira

true

Lúsmý vaxandi plága í góða veðrinu

Lúsmý hefur plagað fólk víða um vestanvert landið að undanförnu. Fluga þessi er agnarsmá og kviknar ekki til lífs og ferðalaga fyrr en komið er fram í júní. Ólafur Adolfsson lyfsali í Apóteki Vesturlands segir ljóst að lúsmý hafi á undanförnum dögum verið í talsverðum vexti. Það tengist bæði árstímanum og hægviðrisdögum. Mest telur hann…Lesa meira

true

Sýningin Saga úr samfélagi í Safnahúsi

Ný örsýning var opnuð í Safnahúsinu í Borgarnesi 27. júní síðastliðinn og hefur hún hlotið heitið „Saga úr samfélagi“. Þar segir frá framtaki Eyglóar Lind Egilsdóttur í Borgarnesi, sjö barna móður og ömmu í Borgarnesi, sem gladdi marga á erfiðum Covid-tímum í vor með því að búa sig upp í mismunandi búninga og guða á…Lesa meira

true

Nýtt malbik verður lagt yfir á Kjalarnesi

„Nýtt malbik verður lagt yfir kafla á Kjalarnesi á milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga um leið og aðstæður leyfa, á þeim kafla þar sem nýlögn stenst ekki staðla og útboðsskilmála varðandi viðnám. Vegarkaflinn var mældur í morgun og reyndist mun hálli en kröfur eru gerðar um af Vegagerðinni,“ sagði í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á þessum vegarkafla…Lesa meira