Fréttir

true

Matarvagninn Caliber opnaður á Akranesi

Fyrir viku síðan var matarvagninn Caliber opnaður við íþróttahúsið á Jaðarsbökkum á Akranesi. það eru Jósef Halldór Þorgeirsson og Andri Sævar Reynisson sem eiga vagninn en þar er hægt að kaupa acai skálar. „Þetta eru skálar fylltar með berjagrunni sem við framleiðum sjálfir. Það er mjög gott jafnvægi milli þess sæta og súra, sem gerir…Lesa meira

true

Ferðagjöfin til Íslendinga er nú aðgengileg

Fimm þúsund króna ferðagjöf er eins og kunnugt er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda og liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins. Þannig er greinin efld samhliða því að landsmenn eru hvattir til að eiga góðar stundir á ferðalagi víðs vegar um landið. Á vef Ferðamálastofu www.ferdalag.is má nú…Lesa meira

true

Mokveiði úr Langá á fyrsta klukkutímunum

Eftir því sem líður á júnímánuð fjölgar þeim laxveiðiám sem veiðar eru leyfðar í. Í morgun hófust veiðar í ám á borð við Langá á Mýrum og Grímsá í Borgarfirði. Tíðindamaður Skessuhorns var við Langá þar sem allavega fimm löxum var landað á fyrstu klukkutímunum í morgun. „Það var gaman að fá fyrsta laxinn sinn…Lesa meira

true

Fjármagna þrjú björgunarskip

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um áframhaldandi samstarf ríkisins og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar um kaup á þremur nýjum björgunarskipum. Tillagan gerir ráð fyrir að 150 milljóna króna árlegri fjárveitingu úr ríkissjóði í þrjú ár með fyrirvara um breytingar og samþykki Alþingis. Samhliða verði gert samkomulag við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu um fjármögnun og viðhald…Lesa meira

true

Undir áhrifum í æfingaakstri

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði för ökumanns í æfingaakstri í Borgarnesi aðfararnótt síðasta sunnudags. Í dagbók lögreglu kemur fram að ökumaðurinn hafi sjáanlega verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann gekkst við notkun kannabisefna og fíkniefnapróf gaf jákvæða svörun við neyslu slíkra efna. Enn fremur framvísaði ökumaðurinn kannabisefnum. Ökumaðurinn var sem fyrr segir í æfingaakstri og…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Norðurálsmótið hafið á Akranesi

Það var líf og fjör á Akranesi klukkan 11 í morgun þegar skrúðganga með á annað þúsund ungum knattspyrnumönnum hélt af stað frá Stillholti og áleiðis á Jaðarsbakka. Norðurálsmótið er jafnan eitt stærsta pollamót ársins í knattspyrnu hér á landi og er að þessu sinni haldið í 35. skipti. Í ár fer mótið fram í…Lesa meira

true

Tinna Royal er Bæjarlistamaður Akraness

Myndlistarkonan Tinna Rós Þorsteinsdóttir, sem gengur undir listamannsnafninu Tinna Royal, er Bæjarlistamaður Akraness árið 2020. Það var Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri sem greindi frá valinu í sérstöku hátíðarstreymi sem sent var út á vegum Akraneskaupstaðar á þjóðhátíðardaginn, þar sem fallið hafði ferið frá hefðbundinni hátíðardagskrá vegna Covid-19. Lýsti hann því að bæjarlistamaðurinn væri ung, framsækin,…Lesa meira

true

Halldór Steingrímsson þjálfar Snæfell

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur samið við Halldór Steingrímsson um að þjálfa meistaraflokka Stykkishólmsliðsins. Halldór samti við Snæfell til tveggja ára. Hann hefur um árabil verið viðloðandi íþróttastarf og þjálfun og er menntaður í íþróttastjórnun, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Snæfells. Halldór starfaði fyrir kkd. Fjölnis um 17 ára skeið, sem þjálfari auk…Lesa meira

true

Safetravel dagurinn og hálendisvaktin fer á fjöll

Félagar úr Slysavarnafélaginu Landsbjörg verða á ferðinni á fjölförnum stöðum um land allt í dag og taka tali ökumenn og aðstoðarmenn þeirra og spjalla um hlutverk aðstoðarbílstjórans. Þá er hópur björgunarsveitarfólks á leiðinni á hálendisvakt sumarsins. Á 50 stöðum á landinu munu félagar Í björgunarsveitum og slysavarnadeildum standa vaktina í dag og taka tali ökumenn og…Lesa meira

true

Tilraunaverkefni um heimaslátrun

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra og Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi á Straumi í Hróarstungu og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, hafa undirritað samkomulag um tilraunaverkefni um heimaslátrun. „Markmið verkefnisins er leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði.…Lesa meira