Fréttir

true

Tap í Kaplakrikanum

Skagamenn heimsóttu FH-inga í Kaplakrikann á sunnudagskvöldið í annarri umferð Pepsí Max deildarinnar í fótbolta. Hart var barist strax á upphafsmínútum leiks og jafnræði með liðunum en hægt og rólega fóru heimamenn að síga framúr og gerðu öftustu línu Skagamanna erfitt fyrir. Engin mörk komu þó í fyrri hálfleik þrátt fyrir fín marktækifæri. Í síðari…Lesa meira

true

Samið um verulega aukið landsvæði til skógræktar í Ólafsvík

Skógræktarfélag Ólafsvíkur og Snæfellsbær hafa náð samkomulagi um stækkun landsvæðis til ræktunar trjágróðurs í hlíðunum ofan við byggðina í Ólafsvík. Um er að ræða samning til ræktunar á svokölluðum landgræðsluskógi. Skógræktarfélag Íslands er því einnig aðili að samningnum. Heildarstærð lands sem nýi samningurinn nær til er 39,5 hektarar sem er ríflega 40% stækkun á því…Lesa meira

true

Kolbrún Katla og Kristín Eir Íslandsmeistarar

Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum fór fram á Brávöllum á Selfossi um helgina. Tvær stúlkur úr hestamannafélaginu Borgfirðingi komu heim með gullverðlaun. Það voru þær Kolbrún Katla Halldórsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari í A úrslitum í fjórgangi unglinga og því Íslandsmeistari í þeirri grein. Í barnaflokki varð Íslandsmeistari Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á…Lesa meira

true

Íslandsmeistarar í holukeppni

Íslandsmótinu í holukeppni 2020 í golfi lauk í gær á Jaðarsvelli á Akureyri. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Axel Bóasson úr GK fögnuðu sigri eftir spennandi keppni í úrslitaleikjunum. Þetta er í þriðja sinn sem Ólafía Þórunn sigrar á þessu móti og í annað sinn sem Axel vinnur Íslandsmótið í holukeppni. Hákon Örn Magnússon…Lesa meira

true

Hætt kominn eftir að kajak valt

Lögregla, sjúkraflutningamenn og félagar í björgunarsveitinni Klakki í Grundarfirði voru kölluð út seinnipartinn í gær þegar kajakræðari hafði fallið útbyrðis nokkur hundruð metra frá ströndinni. Maðurinn náði að synda í átt að landi en auk þess var vindur hagstæður. Maðurinn náði landi með aðstoð sjúkraflutningamanna en var örmagna. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á…Lesa meira

true

Beggi Ólafs með fyrirlestur á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi

Síðdegis í dag, klukkan 17, verður Beggi Ólafs með fyrirlestur á Amtsbókasafninu undir yfirskriftinni „Betri í dag en í gær.“ Markmið Begga er að gera allt í hans valdi til að hjálpa fólki að eflast og þróast í lífinu með aðferðum og inngripum úr sálfræði. „Lífið er fullt af erfiðleikum og áskorunum en á sama…Lesa meira

true

Starfsemi og rekstur VLFA gekk vel

Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness var haldinn þriðjudaginn 9. júní síðastliðinn. Vilhjálmur Birgisson formaður fór yfir skýrslu stjórnar og þar kom fram að starfsemi og rekstur hafi gengið vel á liðnu ári. Félagsmenn voru 3100 talsins, að meðtöldum gjaldfrjálsum félagsmönnum. Fram kom í máli formanns að 1250 félagsmenn hefðu fengið greitt úr sjúkrasjóði félagsins á liðnu ári.…Lesa meira

true

Sláttur er nú víða að hefjast

Bændur víða um vestanvert landið byrjuðu slátt á þurrkdögunum í vikunni sem leið. Spretta er almennt að verða nokkuð góð og því ekkert því til fyrirstöðu að byrja að afla góðrar töðu. Samhliða því að tæki til sláttar og heyverkunar verða tæknivæddari og stórvirkari er algengt að bændur slái tún sín tvisvar eða jafnvel þrisvar…Lesa meira

true

Kristín Eir og Ísar sigurvegarar í fimi – Jakob Svavar er Meistarinn

Um helgina lauk Meistaradeildinni í hestaíþróttum eftir frekar óvenjulegar vetur vegna Covid. Jakob Svavar Sigurðsson úr hmf. Dreyra var með nokkuð örugga forystu fyrir lokakvöld mótsins og náði hann að halda henni og er því Meistarinn 2020. Jakob hlaut 48,5 stig. Þetta er annað árið í röð sem hann sigrar í deildinni. Í öðru sæti…Lesa meira

true

Knattspyrnufólk framtíðarinnar steig sín fyrstu skref á Akranesi

Norðurálsmótið í 7. aldursflokki í knattspyrnu fór fram á Akranesi um helgina og lýkur í dag. Mótið var að þessu sinni það 35. í röðinni. Mikil og góð stemning einkenndi mótið allt. Alls tóku um 1.200 iðkendur þátt og eru þeir á aldrinum 7 til 8 ára. Sú nýjung var á mótinu í ár að…Lesa meira