Fréttir

true

Menningardagskrá í Bókakaffinu á Selfossi

Sunnudaginn 14. júní mun Bókakaffið á Selfossi hleypa af stokkunum þematengdri viðburðaröð sem ber heitið Menningarsumarið í Bókakaffinu. Viðburðirnir sem verða samtals fjórir munu taka mið af fordæmalausu ástandi með fjöldatakmörkunum og því er mikilvægt að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti. Dagskráin er þrjátíu mínútna löng og verður flutt tvisvar sinnum. Í fyrra skiptið…Lesa meira

true

Helgi opnar ljósmyndasýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar

Helgi Bjarnason blaðamaður á Morgunblaðinu verður með ljósmyndasýninguna „353 ANDLIT“ í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar í sumar. Sýningin verður opnuð á morgun, fimmtudaginn 11. júní. Myndirnar eru teknar af mannlífi í Borgarnesi snemma á níunda áratugnum þegar Helgi var fréttaritari Morgunblaðsins í Borgarnesi. „Ég tók margar myndum á þessum tíma, bæði fyrir blaðið og einnig…Lesa meira

true

Kenna krökkum hlutverkaspil með ímyndunaraflið og sköpunargáfuna að vopni

Egill Hansson og Samúel Halldórsson hafa í vetur verið með námskeið fyrir elsta stig í Grunnskólanum í Borgarnesi. Þar kenna þeir krökkunum hlutverkaspilið D&D, Dýflissur og Drekar. Um er að ræða spunaspil þar sem ímyndunaraflið og sköpunargáfan er notuð til að búa til sögu. Einn leikmaður er master og sér hann um að stjórna söguþræðinum…Lesa meira

true

Ákærður fyrir að stinga samfanga sinn

Eins og greint var frá í Skessuhorni í febrúar stakk maður samfanga sinn á Kvíabryggju í fótinn með eggvopni eftir deilur þeirra í millum.Hann hefur nú verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, að því er RÚV greinir frá. Honum er gefið að sök að hafa stungið samfanga sinn alls sex sinnum með skærum sem hann…Lesa meira

true

Ársþing ÍA var haldið í 76. skipti

Ársþing Íþróttabandalags Akraness var haldið í 76. skiptið mánudagskvöldið 8. júní síðastliðið. Í ársskýrslu ÍA, sem lögð var fram á fundinum, kemur fram að bandalagið hafi verið rekið með lítilsháttar tapi á liðnu ári. Rekstrar- og vaxtatekjur námu rúmum 45,5 milljónum króna og rekstrargjöld tæpum 46,9 milljónum króna. Að meðtöltum fjármagnsliðum og afskriftum varð 1,3…Lesa meira

true

Nýtt útlit verður á nýjustu sjúkrabílunum

Síðar í sumar koma 25 nýir sjúkrabílar af Mercedes Benz gerð á götur landsins. Frá því er greint á heimasíðu Rauða kross Íslands að RKÍ muni eiga og reka bílana, líkt og síðustu 90 árin. Þessa dagana er verið að vinna við framleiðslu bílanna og merkingar þeirra. Þeir verða með nýju útliti, en svokölluð Battenburg…Lesa meira

true

Opna sýningu á Laxárbakka á föstudaginn

Anna G. Torfadóttir og Gunnar J. Straumland opna myndlistarsýninguna Málverk og grafík á Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit næstkomandi föstudag kl. 18:00. Mun sýningin standa yfir til 7. júlí næstkomandi. Anna sýnir margs konar grafíkverk og Gunnar sýnir málverk. Á opnunardaginn mun Alma Rut syngja nokkur lög og Gunnar kveður og les úr ljóðabók sinni Höfuðstaf. Auk…Lesa meira

true

Verkalýðsfélag Akraness kaupir framtíðar skrifstofuhúsnæði

Verkalýðsfélag Akraness hefur fest kaup á 311 fermetra húsnæði við Þjóðbraut 1 á Akranesi og mun því flytja frá Sunnubraut 13, þar sem félagið hefur verið undir þaki undanfarna áratugi. Kaupin voru kynnt á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Nýju skrifstofur verkalýðsfélagsins eru í hluta þess rýmis þar sem verslunin Model er nú…Lesa meira

true

Kynntu breytingar á aðalskipulagi vegna fyrirhugaðra vindorkugarða

Haldnir voru tveir kynningarfundir í Dalabúð síðastliðinn miðvikudag fyrir íbúa Dalabyggðar. Boðað var til þeirra til að kynna fyrirhugaða auglýsingu um breytingu á aðalskipulagi í sveitarfélaginu. Báðir fundirnir fjölluðu um breytingar á aðalskipulagi vegna skilgreiningar á iðnaðarsvæði á landi í gamla Laxárdalshreppi. Annars vegar í landi Sólheima og hins vegar í landi Hróðnýjarstaða. Þar er…Lesa meira

true

Elín er fyrsti kvenformaður Brákar

Á aðalfundi björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi miðvikudaginn 27. maí sl. lét Einar Örn Einarsson af starfi formanns eftir fjögur ár. Nýr formaður sveitarinnar var kosin Elín Matthildur Kristinsdóttir en hún hefur verið varaformaður sveitarinnar síðustu þrjú ár. Elín er fyrsti kvenformaður Brákar en það er einnig kona sem tekur við af Elínu sem varaformaður, Vigdís…Lesa meira