Fréttir

true

Brautskráning nemenda frá Landbúnaðarháskóla Íslands

Síðastliðinn föstudag útskrifuðust búfræðingar og nemendur úr grunn- og framhaldsnámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Athöfnin fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi. Guðmunda Smáradóttir mannauðs- og gæðastjóri stýrði athöfninni og flutti Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor ávarp. Rektor bauð viðstadda velkomna og stiklaði á stóru í starfsemi skólans þetta skólaárið og stefnu skólans til framtíðar. „Brautskráning markar stór…Lesa meira

true

Dularfullt símtal snerist um meint sjónvarpstæki

Kona ein í umdæminu hafði samband við Lögregluna á Vesturlandi og tjáði henni að hún hefði fengið undarlegt símtal skömmu fyrir miðnætti kvöld eitt í liðinni viku. Sagði hún frá því að maður frá ákveðnu fyrirtæki í Reykjavík hefði hringt í sig, spurt hana um nafn og síðan tjáð henni að hann væri að koma…Lesa meira

true

Menntasjóður námsmanna tekur við af LÍN

Frumvarp mennta- og menningarmálaráðherra um Menntasjóð námsmanna var samþykkt á Alþingi í dag. Frumvarpið er afrakstur heildarendurskoðunar námslánakerfis hér á landi og miðar að því að jafna stuðning og dreifingu styrkja ríkisins til námsmanna sem taka námslán. „Menntasjóður námsmanna verður bylting fyrir fjölbreyttan hóp fólks sem stundar háskólanám hér á landi og fjölskyldur þessa lands.…Lesa meira

true

Rafeldsneyti verður framleitt á Grundartanga

Nú í hádeginu var undirritaður samstarfssamningur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Þróunarfélags Grundartanga um þróun og framleiðslu á rafeldsneyti. Það voru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ólafur Adolfsson, stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga, sem undirrituðu samninginn. Hann felur í sér 50 milljóna króna styrk ríkisins við verkefnið sem unnið verður undir stjórn þróunarfélagsins. Verkefnið…Lesa meira

true

Umferð tekin niður í Mosfellsbæ

Nú eru að hefjast framkvæmdir við tvöföldun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ milli Skarhólabrautar og Langatanga. Framkvæmdin hefst kl 19:00 í kvöld, þriðjudaginn 9. júní. Á meðan á framkvæmdum stendur verður umferð á einni akrein í hvora átt. Búast má við því að umferð gangi hægt og einhverjar tafir verði um vinnusvæðið en hámarkshraði verður tekinn niður…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit – „Þar sem lífið er ljúft“

Í lok síðasta mánaðar auglýsti menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar eftir tillögum að slagorði fyrir sveitarfélagið til að nota við gerð kynningarmyndbands til markaðssetningar á sveitarfélaginu. Leitað var að slagorði sem væri lýsandi fyrir sveitarfélagið og bárust nefndinni fjörutíu tillögur að slagorðum frá átta aðilum. Var nefndin sammála um að slagorðið: „Þar sem lífið er ljúft“…Lesa meira

true

Óvíst hvenær gróður nær sér á strik að nýju

Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands hafa metið gróðurskemmdir í Norðurárdal í Borgarfirði eftir elda sem loguðu þar 18. maí í vor. Svæðið sem brann var 13,2 ha að flatarmáli, einkum birkiskógur en einnig mosi og víðir. Óljóst er hversu lengi svæðið verður að jafna sig, segir í tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun. „Skógurinn var illa útleikinn eftir brunann og…Lesa meira

true

Innlend kortavelta var mikil í maí

Kortavelta Íslendinga hérlendis var 13,6% hærri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra. Íslendingar kaupa nú gistiþjónustu í auknu mæli, leigja bílaleigubíla og kortavelta verslana vex enn mikið. Í maí nýttu Íslendingar sér það aukna neyslusvigrúm sem færri utanlandsferðir og minni þjónustukaup undanfarinna mánaða hefur skapað í kaup á innlendum vörum og þjónustu. Í…Lesa meira

true

Sex piltar lánaðir úr Víkingi til Snæfells

Sex ungir og efnilegir leikmenn fóru á dögunum í lán frá Víkingi Ó til nágrannafélagsins Snæfells. Þetta voru þeir Anel Crnac, Brynjar Vilhjálmsson, Leó Örn Þrastarson, Sanjin Horoz, Sigurjón Kristinsson og Þráinn Sigtryggsson. Urðu þeir allir löglegir með Snæfelli í bikarleiknum sem spilaður var gegn Selfossi síðasta föstudagskvöld. Þetta var gert til að hjálpa piltunum…Lesa meira

true

Fögnuðu opnun Sjúkraþjálfunar Akraness

Sjúkraþjálfararnir Anna Sólveig Smáradóttir, Einar Harðarson, Gunnar Smári Jónbjörnsson og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir opnuðu Sjúkraþjálfun Akraness seinni hluta maímánaðar. Eru þau fjögur eigendur og rekstraraðilar stofunnar, sem staðsett er við Suðurgötu 126. Til að halda upp á opnun stofunnar buðu eigendurnir til opnunarteitis síðastliðinn föstudag, þar sem gestum var boðið að koma og skoða nýju…Lesa meira