Fréttir

true

43 eru nú í sóttkví á Vesturlandi

Fjöldi þeirra íbúa á Vesturlandi sem dvelja í sóttkví vegna Covid-19 tók stökk um helgina. Nú eru 43 í sóttkví í landshlutanum og þar af 31 á svæði heilsugæslustöðvar HVE á Akranesi, sem nær yfir Akranes og Hvalfjarðarsveit. Nú eru tveir í einangrun. Alls hafa 42 sýkst af veirunni á Vesturlandi frá upphafi.Lesa meira

true

Fiskeldi sífellt að aukast

Útflutningsverðmæti eldisafurða í laxeldi í fjörðum við landið nam 2.739 milljónum króna í mars. „Þetta er fjórði stærsti mánuður frá upphafi á kvarða útflutningsverðmæta, hvort sem mælt er í krónum eða erlendri mynt. Þetta er um 27% aukning í krónum talið frá mars í fyrra. Aukningin er ívið minni í erlendri mynt út af veikingu…Lesa meira

true

Verknámsnemar FVA mæta í skólann en aðrir ljúka námi heima

Frá því að samkomubann vegna kórónuveiru var sett mánudaginn 16. mars sl. hefur nám í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi farið fram með fjarkennslulausnum. Frá og með deginum í dag hefur formlega verið opnað á kennslu í framhaldsskólum en áfram þó með þeim takmörkunum að tryggt skuli að ekki verði fleiri en 50 manns inni í…Lesa meira

true

Góðar viðtökur við stóðhestaveltu LH

Landssamband hestamannafélaga gekkst fyrir nýstárlegri fjáröflunarleið í lok síðustu viku, svokallaðri stóðhestaveltu. Um er að ræða happdrætti þar sem vinningur kemur á alla selda miða, sem voru 100 talsins. Seldust miðarnir, sem kostuðu 40 þúsund krónur, allir upp á tveimur dögum. Í boði var folatollur undir þekkta stóðhesta sem þó er misjafnlega dýrt að leiða…Lesa meira

true

Tilslakanir á samkomutakmörkunum gengnar í gildi

Í morgun gekk í gildi fyrsta tilslökun takmarkana á samkomuhaldi frá 24. mars. Nú mega til dæmis 50 manns koma saman í stað 20. Sem dæmi má nú hefja starfsemi hárgreiðslustofa, safna, kvikmyndahúsa og sjúkranuddstofu, en eins og það er unnt skal gæta að tveggja metra reglunni. Matvöruverslanir og apótek eru enn undanskilin fjöldatakmörkunum. Slíkum…Lesa meira

true

Niðurstöður um stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum

Út er komin skýrsla Hafrannsóknastofnunar þar sem gerð er grein fyrir framkvæmd og helstu niðurstöðum stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum. Mælingar fóru fram dagana 27. febrúar til 20. mars sl. Niðurstöður eru bornar saman við fyrri ár, en verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá 1985. Stofnvísitala þorsks hefur lækkað síðustu þrjú ár,…Lesa meira

true

Aukinn rækjukvóti við Snæfellsnes

Hafrannsóknastofnun ráðleggur í samræmi við varúðarsjónarmið að rækjuafli á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí 2020 til 15. mars 2021 verði ekki meiri en 491 tonn. „Á árunum 2008 til 2016 var stofnvísitalan í meðallagi en sveiflukennd. Árið 2017 lækkaði hún töluvert og hefur haldist á því bili undanfarin þrjú ár. Ráðgjöf fyrir 2019/2020 var…Lesa meira

true

Landsvirkjun veitir stórnotendum tímabundna lækkun raforkuverðs

Eftirspurn eftir raforku hefur dregist saman um heim allan, sem bein afleiðing af kórónuveirufaraldrinum. Til að koma til móts við stórnotendur hér á landi hefur Landsvirkjun ákveðið að koma til móts við þá með tímabundinni lækkun á raforkuverði. Í fréttapistli sem birtur var á heimasíðu Landsvirkjunar 28. apríl síðastliðinn segir m.a.: „Margir viðskiptavina Landsvirkjunar finna…Lesa meira

true

Erlend netverslun dróst mikið saman í mars

Erlend netverslun Íslendinga, líkt og hún kemur fram í tollskráningu, dróst saman um 18% milli ára í mars og nam 195 milljónum að tollvirði í mánuðinum. Tollverð er verðmæti sendinga án skatta og gjalda. Netverslun frá Kína dróst mest saman í mars og minnkaði um meira en helming, fór úr 38,9 mkr. í mars 2019…Lesa meira

true

Eitt smit greint á Vesturlandi og á þriðja tug í sóttkví

Í gær voru tekin 404 sýni vegna Covid-19 veirunnar, þar af 369 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 35 hjá veirufræðideild Landspítalans. Eitt smit var greint og reyndist það vera á Vesturlandi í umdæmi heilsugæslustöðvar HVE á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Viðkomandi er unglingur sem var utan sóttkvíar þegar sýnið var tekið. Samnemendum viðkomandi og kennurum á…Lesa meira