Fréttir

true

Lyfti 501 kílói í réttstöðulyftu

Hafþór Júlíus Björnsson aflraunamaður lyfti í gær 501 kílói í réttstöðulyftu sem jafnframt er mesta þyngd sem nokkur hefur lyft í slíkri aflraun. Lyftan verður þó ekki viðurkennt sem heimsmet hjá Alþjóða kraftlyftingasambandinu þar sem Hafþór keppir ekki samkvæmt reglum kraftlyftinga. Gildandi heimsmet á íþróttamaður Íslands 2019, Júlían K Jóhannesson, en metið setti hann í…Lesa meira

true

Landsmenn eru jákvæðir gagnvart lífrænni ræktun

Átaksverkefnið „Lífrænt Ísland“ fór formlega af stað í liðinni viku. Markmiðið er að efla og kynna lífræna framleiðslu á Íslandi. Um er að ræða samstarfsverkefni VOR, félags framleiðenda í lífrænum búskap, Bændasamtaka Íslands og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. VOR fer með framkvæmd verkefnisins og er Berglind Häsler verkefnastjóri. „Við hefjum átakið með því að kynna niðurstöður…Lesa meira

true

Opnað fyrir rafræna söfnun meðmælenda

Þjóðskrá Íslands hefur undanfarnar viku unnið að því að koma upp rafrænni söfnun meðmælenda fyrir forsetakjör sem ráðgert er að fari fram 27. júní næstkomandi. Ákveðið var að heimila rafræna söfnun meðmælenda í ljósi yfirstandandi faraldurs eins og fram kom í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Verkefnið um rafræna söfnun meðmælenda er unnið í samstarfi við dómsmálráðuneytið,…Lesa meira

true

Grásleppuveiðar stöðvaðar vegna mikils afla fyrir norðan

Heimilt verður að veiða í allt að fimmtán daga á Breiðafirði eftir 20. maí Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um stöðvun veiða á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Ástæðan er sú að fyrirséð er að veiðarnar muni fljótlega nálgast ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um að heildarafli á þessu fiskveiðiári verði ekki meiri en 4.646…Lesa meira

true

Ingibjörg Birna tekur að nýju við starfi sveitarstjóra

Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps í gær var ákveðið að ráða Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur í starf sveitarstjóra. Meirihluti sveitarstjórnar samþykkti eins og kunnugt er að segja Tryggva Harðarsyni sveitarstjóra upp störfum um miðjan apríl og hætti hann samdægurs. Hefur Árný Huld Haraldsdóttir oddviti gegnt starfi sveitarstjóra í þessu millibilsástandi. Ingibjörg Birna er flestum hnútum kunnug hjá…Lesa meira

true

Tveir skólar á Vesturlandi fá úthlutun úr Sprotasjóði

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2020-2021. Sprotasjóður hefur það hlustverk að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi leik,- grunn- og framhaldsskóla í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Samtals bárust 46 umsóknir og að þessu sinni hljóta 26 verkefni styrki og er heildarupphæð þeirra rúmlega 56 milljónir króna. Að þessu…Lesa meira

true

Baráttukveðjur í tilefni 1. maí

Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu hafa Alþýðusamband Íslands, BHM, BSRB og KÍ brugðist með að skipuleggja útsendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpunni í Reykjavík í kvöld og sjónvarpað í Ríkissjónvarpinu kl. 19:40.…Lesa meira

true

Safnkostur Kvikmyndasafns Íslands gerður aðgengilegur

Kvikmyndasafn Íslands hefur opnað nýjan vef undir yfirskriftinni Ísland á filmu. „Tilgangur vefjarins er að opna almenningi sýn inn í fágætan safnkost Kvikmyndasafns Íslands. Þarna er að finna mikinn fróðleik um verklag í landbúnaði og sjávarhætti auk ómetanlegra myndskeiða frá einhverjum merkustu atburðum Íslandssögunnar. Á vefnum www.islandafilmu.is er hægt að skoða myndefni úr fórum Kvikmyndasafns…Lesa meira

true

Óvissa um hátíðarhöld á Akranesi í sumar

Sem kunnugt er hefur sóttvarnalæknir sent heilbrigðisráðherra minnisblað þess efnis að 4. maí verði slakað á samkomubanninu úr 20 í 50 manns. Þar var jafnframt lagt til að frekari takmörkunum samkomubanns verði aflétt í skrefum á þriggja til fjögurra vikna fresti næstu mánuði á eftir. Sóttvarnalæknir hefur síðan gefið út að næsta skref yrði að…Lesa meira