Fréttir

true

Vinna við Esjubraut hafin að nýju

Gatnaframkvæmdir við Esjubraut á Akranesi hófust að nýju í dag. Götunni hefur því verið okað fyrir umferð. Eins og áður hefur verið greint frá var gert hlé á framkvæmdum í febrúar vegna frosts í jörðu og óhagstæðrar veðurspár. Þá var opnað tímabundið fyrir umferð um götuna milli Smiðjuvalla og Þjóðbrautar og áformað að halda vinnu…Lesa meira

true

Vigdís Finnbogadóttir er níutíu ára í dag

Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands fagnar í dag, 15. apríl, 90 ára afmæli sínu. Vigdís var kjörin forseti Íslands árið 1980 og gegndi því embætti í fjögur kjörtímabil, eða til ársins 1996. Vigdís varð fjórði forseti Íslands eftir lýðveldisstofnun. Hún var jafnframt fyrsta konan í heiminum sem valin var í lýðræðislegum kosningum til að…Lesa meira

true

Fimm dagar án smits

Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist á Vesturlandi undanfarinn sólarhring, fimmta daginn í röð. Enn hafa því 39 smit greinst í landshlutanum, að því er fram kemur í tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Í dag eru 49 manns í landshlutanum í sóttkví en voru 109 á föstudaginn langa. Þá voru 28 í…Lesa meira

true

Góður rekstrarafgangur í Borgarbyggð annað árið í röð

Rekstur Borgarbyggðar skilaði 429 milljóna króna afgangi á síðasta ári. Ársreikningur sveitarfélagsins og undirstofnana var lagður fram á fundi sveitarstjórnar 8. apríl síðastliðinn. Rekstrartekjur A og B hluta sveitarsjóðs voru 4.457 milljónir króna, rekstrargjöld 3.844 milljónir. Rekstrarniðurstaða var því jákvæð um 429 milljónir króna á síðasta ári en árið 2018 var reksturinn sömuleiðis jákvæður þá…Lesa meira

true

Losum álíka mikið af gróðurhúsalofttegundum

Hámarki á losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi var náð árið 2007. Eftir hrun gætti töluverðs samdráttar en síðan 2011 hefur losun verið tiltölulega stöðug. Losun sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda var svo gott sem óbreytt milli áranna 2017 og 2018, minnkaði um 0,1%. Þetta kemur fram í skýrslu Umhverfisstofnunar. Þróun losunar Íslands, sem…Lesa meira

true

Stóri plokkdagurinn verður á degi umhverfisins

Stóri plokkdagurinn verður haldinn á Degi umhverfissins laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Það er von skipuleggjenda að sem flest sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki hvetji almenning til þátttöku og auðveldi hreinsun umhverfisins með hverskyns aðkomu og aðstoð. „Samkomubann er alveg upplagt til að taka á því í plokkinu. Frábær útivera og hreyfing um leið og við finnum…Lesa meira

true

Rifu upp hellur við dvalarheimilið

Körfuknattleiksdeild Snæfells tók að sér garðvinnu á lóð Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi á mánudaginn. Um er að ræða samstarfsverkefni Stykkishólmsbæjar, Snæfells og KPMG. Gunnlaugur Smárason, þjálfari mfl. kvenna, er einn þeirra sem tók þátt í vinnunni á mánudaginn ásamt leikmönnum meistaraflokka Snæfells og stjórnarmönnum körfuknattleiksdeildar. Að sögn hans er um að ræða styrk KPMG til…Lesa meira

true

Skólastarf með eðlilegum hætti frá 4. maí

Fyrirkomulag skólastarfs og annarloka á öllum skólastigum í vor var til umfjöllunar á samráðsfundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra með fulltrúum skólasamfélagsins í gær. Í samráðshópi lykilaðila í menntakerfinu, sem fundað hefur reglulega síðustu vikur, eru m.a. fulltrúar leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, framhaldsfræðslu, skólastjórnenda, sveitarfélaga, kennaraforystunnar og nemenda. Aflétting takmarkana á skólastarfi var kynnt…Lesa meira

true

Ölvunarakstur í sóttkví

Ökumaður var stöðvaður á Akranesi um kl. 23 á laugardagskvöld, grunaður um ölvun við akstur. Var hann látinn blása og mældist áfengi í útöndun yfir refsimörkum. Kom þá í ljós að maðurinn hafði ekki lokið sóttkví, átti tvo daga eftir af henni. Þurfti lögregla því að grípa til varúðarráðstafana áður en maðurinn var handtekinn og…Lesa meira

true

Samkomuhald verður áfram í lágmarki en hömlum að hluta aflétt 4. maí

Nú er gert ráð fyrir að fjöldatakmarkanir verði áfram á samkomur, jafnvel út þetta sumar, vegna Covid-19 faraldursins. Áfram mun fólk þurfa að halda tveggja metra fjarlægð og gæta ítrustu varkárni og tillitsemi í samskiptum, jafnvel út þetta ár. Talið er að faraldurinn sé í rénun hér á landi og hefur sóttvarnalæknir lagt á það…Lesa meira