Fréttir

true

Kvenfélagskonum finnst komið nóg um ástand Hvítársíðuvegar

Kvenfélag Hvítársíðu hefur sent opið bréf til Vegagerðarinnar þar sem bágborið ástand malarvegarins um Hvítársíðu er fært í tal. Afrit af bréfinu er jafnframt sent á sveitarstjórn Borgarbyggðar, þingmenn Norðvesturkjördæmis, samgönguráðherra, vegamálastjóra og Skessuhorn. Í upphafi er það rifjað upp í bréfi kvenfélagskvenna að á árunum 1930-1933 gengu konur í Kvenfélaginu Heklu í Skagahreppi í…Lesa meira

true

Dvöl í sumarhúsum hefur aukist til muna

Sú spurning hefur vaknað hvort einhverjar reglur séu í gildi hér á landi um hvort heimilt sé að dvelja í sumarhúsum meðan fólki er gert að vera í sóttkví vegna Covid-19 veirunnar. Í almennum reglum um sóttkví, sem lesa má um á covid.is segir m.a.: „Einstaklingur í sóttkví á að halda sig heima við og…Lesa meira

true

Frumvarp um samvinnuverkefni í vegagerð

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Ef lögin verða samþykkt verður Vegagerðinni gert heimilt, að undangengnu útboði, að eiga samvinnu við einkaaðila um fjármögnun, hönnun, undirbúning og framkvæmdir við sex afmörkuð verkefni ásamt viðhaldi og rekstri í tiltekinn tíma. Þá verður heimilt að fjármagna samvinnuverkefni…Lesa meira

true

Þrír landshlutar enn án staðfests smits

Undanfarinn sólarhringur var sá stærsti í fjölgun smitaðra af Covid19 veirunni hér á landi, eða 80 manns. Nú hafa 330 smitaðir verið greindir hér á landi. 3718 eru í sóttkví, en 532 hafa lokið sóttkví. Þrír liggja á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Hér á Vesturlandi eru nú 49 einstaklingar í sóttkví, talan hefur tvöfaldast á skömmum…Lesa meira

true

Margvíslegar breytingar lagðar til á lögum um kosningar

Í samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið lögð fram drög að frumvarpi til nýrra kosningalaga. Lagt er til að lögin gildi um kosningar til Alþingis og sveitarstjórna, um framboð og kjör forseta Íslands og um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. „Markmið frumvarpsins er að styrkja lýðræði með því að viðhalda trausti á framkvæmd kosninga og tryggja að beinar, frjálsar…Lesa meira

true

Smávirkjanakostir á Vesturlandi hafa nú verið kortlagðir

Smávirkjanakostir á Vesturlandi hafa verið kortlagðir af verkfræðistofunni Vatnaskilum, sem vann verkið fyrir Orkustofnun. Markmið kortlagningarinnar var að finna virkjanakosti á Vesturlandi á stærðarbilinu 100 kW til 10 MW og veita frummat á þeim. Til stendur að kortleggja smávirkjanakosti um allt land og athugun á kostum á Vesturlandi var aðeins fyrsti áfangi verkefnisins. Smávirkjanakostir í…Lesa meira

true

Hafa opið til víxl á veitingastöðunum

Veitingahúsin Narfeyrarstofa og Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi hafa tekið höndum saman og hafa opið á víxl aðra hverja viku. Þetta er gert í hagræðingarskini meðan lítið er af ferðafólki og þannig reynt að bregðast við því fordæmalausa ástandi sem nú ríkir. Fjöldi starfsfólks á veitingastöðunum er nú í lágmarki. Þessi ráðstöfun gerir það að verkum að…Lesa meira

true

Búnir að grafa vélageymslu í jökulinn

Borgfirskir verktakar hafa með hléum frá því síðasta haust unnið við að grafa nýjan íshelli í Langjökul sem ætluð er til geymslu fyrir tæki og tól sem fylgja útgerð jöklaskoðunarfyrirtækisins Into the Glacier. Verkið var unnið þannig að nýtt op var grafið inn í jökulinn skammt frá opinu sem ferðamenn fara um. Eftir að búið…Lesa meira

true

Eldri borgarar á útskurðarnámskeiði

Í vetur hefur staðið yfir útskurðar- og tálgunarnámskeið í handverksaðstöðu Félags eldri borgara í Snæfellsbæ. Í húsnæðinu er góð aðstaða sem alltaf er þó verið að endurbæta. Þar hafa sex konur verið að læra að skera út og tálga undir handleiðslu Jóns Guðmundssonar. Nýverið bættist svo einn karlmaður í nemendahópinn sem þá telur sjö. Jón…Lesa meira

true

Bræður byggja hlið við hlið

Tvö ný hús í gömlum stíl eru nú í byggingu í gamla bænum á Akranesi, nánar til tekið við Vesturgötu 49 og 51. „Við bræður erum að byggja þarna hlið við hlið,“ segir Björn Ólafur Guðmundsson í samtali við Skessuhorn. Hann ætlar að flytja inn í húsið að Vesturgötu 51 ásamt Guðnýju Rós Þorsteinsdóttur og…Lesa meira