Fréttir

true

Öflugur jarðskjálfti á Reykjanesi

Jarðskjálfti upp á 5,2 á Richterskvarða varð klukkan 10:26 í morgun á Reykjanesi. Skjálftavirkni á þessu slóðum hófst klukkan 10:15, en tveir skjálftar voru mældir þá upp á 2,7 og 3,0 stig. Öflugasti skjálftinn varð svo klukkan 10:26. Áfram er skjálftavirkni á þessum slóðum og hafa eftirskjálftar upp á 3,2 til 3,8 mælst eftir þann…Lesa meira

true

Stjórn VR varar við sömu hagstjórnarmistökum og eftir bankahrunið

„Stjórn VR skorar á stjórnvöld að hefja tafarlaust vinnu við að bregðast við mögulegum áhrifum niðursveiflunnar á fjárhag heimilanna og tryggja að sömu mistökin og gerð voru eftir hrun endurtaki sig ekki,“ segir í yfirlýsingu frá stjórninni. „Stjórn VR fagnar því að stjórnvöld grípi til mótvægisaðgerða vegna COVID-19 veirunnar en gerir alvarlegar athugasemdir við það…Lesa meira

true

Fýluferð í Vesturbæinn

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn KR á útivelli í gær. KR-ingar réðu ferðinni nánast frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum með 15 stigum, 65-50. Skallagrímskonur skoruðu fyrstu stigin í leiknum og voru yfir þegar sex mínútur voru liðnar af leiknum, 8-9. Þá tóku KR-ingar góða rispu og leiddu með níu stigum eftir fyrsta…Lesa meira

true

Öruggur sigur Snæfells

Snæfellskonur unnu Grindavík örugglega, 79-65, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi og það voru Snæfellskonur sem höfðu yfirhöndina nánast frá fyrstu mínútu. Leikurinn fór heldur rólega af stað. Snæfellskonur leiddu 6-5 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Eftir það náðu þær góðum kafla, skoruðu 13 stig gegn…Lesa meira

true

Skeljahátíð í Hólminum um páskana

Skeljahátíð verður haldin í Stykkishólmi um páskana, nánar til tekið dagana 9. til 12. apríl næstkomandi. Hátíðin hefst á skírdag en flestir viðburðir eru á föstudaginn langa og laugardeginum. Dagskráin er fjölbreytt og eðli málsins samkvæmt eru viðburðir tengdir skelfisknum áberandi. Smiðjur verða haldnar, listasýning opnuð og blásið verður til tónleika. Smakkbar verður á laugardagskvöld…Lesa meira

true

Þórdís í landsliðsþjálfarateymið

Nýverið greindi Fimleikasamband Íslands frá þjálfarahópi landsliðsins fyrir Evrópumótin í hópfimleikum 2020. Þórdís Þráinsdóttir, yfirþjálfari Fimleikafélags Akraness, er þar á meðal þjálfara í teymi blandaðs liðs unglinga. Evrópumótið verður haldið í Ballerup Super Arena í Kaupmannahöfn dagan 14.-17. október næstkomandi. Fimleikasamband Íslands stefnir að því að senda tvö fullorðinslið til keppni; kvennalið og blandað lið,…Lesa meira

true

„Fráleitt að láta heilt landsvæði sitja á hakanum“

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni voru fyrr í mánuðinum kynntar tillögur átakshóps um úrbætur í innviðum. Fela þær meðal annars í sér að flýta jarðstrengjavæðingu raforkukerfisins að langmestu leyti til 2025 í stað 2035 og flýta framkvæmdum við svæðisflutningskerfi raforku sem ekki eru á tíu ára kerfisáætlun. Einnig að varaafl fyrir raforku…Lesa meira

true

Sýknað af kröfu um vangoldin laun

Fyrirtækið Ragnar og Ásgeir ehf. var í Héraðsdómi Vesturlands sýknað af kröfu tæplega 3,2 milljóna króna í vangoldin laun, ásamt vöxtum. Maðurinn sem stefndi fyrirtækinu byggði kröfu sína á því að hann hefði starfað sem verkstjóri en ekki bílstjóri hjá fyrirtækinu á tímabilinu maí 2016 þar til hann lét af störfum í apríl 2018. Því…Lesa meira

true

Boðið verður upp á fermingar á Akranesi í september

Séra Þráinn Haraldsson sóknarprestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli hefur tekið ákvörðun um að bjóða upp á fermingarathafnir í september. Verða þær sem valkostur fyrir þær fjölskyldur sem kjósa að fresta athöfn. Fyrstu fermingar á Akranesi eru fyrirhugaðar 22. mars næstkomandi. Áfram verður í boði að fermast þá, komi ekki til samkomubanns. Um það ríkir hins…Lesa meira

true

Skáluðu í fyrstu alíslensku byggmjólkinni

Byggmjólk sem Kaja Organic á Akranesi hefur byrjað framleiðslu á er fyrsta alíslenska jurtamjólkin sem fer á markað hér á landi. „Þegar ég segi íslensk byggmjólk þá erum við að tala um íslenskt bygg en sú jurtamjólk sem gerð var tilraun með að framleiða áður var úr erlendum höfrum blönduð íslensku vatni. Hér erum við…Lesa meira