Fréttir

true

Árétting – Fyrirtækjakynningu frestað

Fyrirtækjakynningu á vegum Rótarýklúbbs Borgarness, sem fara átti fram í Hjálmakletti laugardaginn 14. mars, hefur verið frestað fram á haust. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi Rótarýklúbbs Borgarness í síðustu viku. „Ákveðið var að grípa til þessara varúðarráðstafana vegna þeirra aðstæðna sem eru í samfélaginu vegna kórónaveirunnar,“ segir í tilkynningu frá Rótarýklúbbi Borgarness. Til…Lesa meira

true

Velferðarstefna Vesturlands er komin út

Í dag er útgáfudagur Velferðarstefnu Vesturlands. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa í auknum mæli farið í stefnumótunarvinnu fyrir landshlutann og eru velferðarmál hluti af þeim verkefnum. Við vinnslu velferðarstefnunar var skipaður starfshópur aðila í velferðarmálum á Vesturlandi. Í honum sitja fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, dvalar- og hjúkrunarheimilum, æskulýðs-, tómstunda- og forvarnarfulltrúar, frá stjórnsýslunni, stjórn SSV…Lesa meira

true

Frumvarp til að tryggja að sveitarstjórnir geti starfað við neyðarástand

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp um breytingu á sveitarstjórnarlögum sem ætlað er að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild að til víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við…Lesa meira

true

Einangrun innfluttra hunda stytt í tvær vikur

Landbúnaðarráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um innflutning hunda og katta. Lágmarkstími fyrir einangrun dýranna við innflutning verða nú tvær vikur í stað fjögurra. Reglugerðin heimilar einnig að einangrun tiltekinna hjálparhunda fari fram í heimaeinangrun. Reglugerðin hefur það að markmiði að tryggja heilbrigði dýra og manna með því að fyrirbyggja að smitsjúkdómar berist til landsins. Reglugerðin…Lesa meira

true

VÍS tryggir fyrir Borgarbyggð

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 5. mars síðastliðinn var samþykkt að ganga að tilboði tryggingafélagsins VÍS í tryggingar fyrir sveitarfélagið. Endanlega ákvörðun tekur sveitarstjórn á fundi sem er á dagskrá á morgun. VÍS bauð 17,015 milljónir króna í tryggingapakkann fyrir sveitarfélagið en tilboð frá Sjóvá og TM voru 19,3 milljónir og 19,9 milljónir. Eins og fram…Lesa meira

true

Fleiri en hundrað smitaðir

Frá því í gærkvöldi hafa 15 ný tilfelli af COVID-19 kórónaveirunni verið staðfest hérlendis. Samtals hafa nú 109 einstaklingar greinst með veiruna hér á landi. Af þeim tengjast langflest smit ferðum erlendis en 24 eru smit hér innanlands. Uppruna flestra smitanna má rekja til Norður-Ítalíu og skíðasvæða í Ölpunum en þrjú smit eru rakin til Bandaríkjanna.…Lesa meira

true

Snjókomu og jafnvel bylur í kvöld

Síðdegis í dag þykknar upp sunnan- og suðvestanlands og fer að snjóa á Vesturlandi í kvöld. Spáð er austan 10-18 m/sek með snjókomu í flestum landshlutum með kvöldinu, en slydda eða rigning verður við suðvesturströndina. Lægir og styttir víða upp í fyrramálið, fyrst vestantil, en lengst af hvassviðri eða strekkingur og snjókoma norðaustanlands og á…Lesa meira

true

Bakvarðasveit heilbrigðisstarfsfólks er að eflast

Um 180 heilbrigðisstarfsmenn voru búnir að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar um hádegisbil í dag. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að Lyfjafræðingafélag Íslands hafi boðið fram aðstoð sína um að biðla til sinna félagsmanna um að skrá sig í bakvarðasveitina og eru lyfjafræðingar þegar farnir að skrá sig í grunninn. Eins og fram kom í…Lesa meira

true

Rýmt fyrir nýjum þjónustukjarna í Ólafsvík

Fyrr í vikunni hófst niðurrif á íbúðarhúsi og bílskúrum við Ólafsbraut 62 og Ólafsbraut 64 í Ólafsvík. Á vef Snæfellsbæjar segir að áætlað sé að vinna við niðurrif standi næstu vikurnar og verði lokið í fyrri hluta aprílmánaðar. Fyrirhugað er að nýta lóðina til byggingar á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk, eins og greint hefur verið…Lesa meira

true

Fyrirhuguðu samkomuhaldi á vegum Snorrastofu slegið á frest

Starfsfólk Snorrastofu í Reykholti hefur ákveðið að fresta öllum mannamótum í nafni stofnunarinnar frá og með miðvikudeginum 11. mars og að minnsta kosti fram yfir miðjan apríl á yfirstandandi ári. Þetta var ákveðið í ljósi veirufaraldursins, sem nú herjar, og þeirra tilmæla, sem út eru gefin varðandi smit og smitleiðir. Þetta þýðir að tveir fyrirlestrar…Lesa meira