Fréttir

true

Mokuðu völlinn til að geta æft

Víkingur Ólafsvík æfir af kappi þessa dagana eins og önnur knattspyrnulið enda undirbúningstímabilið byrjað. Fyrsta æfingin var á gervigrasvellinum þegar var hláka og létu strákarnir ekki úrkomu á sig fá og æfðu undir stjórn þjálfara síns Jóns Páls Pálmasonar. Völlurinn var þó ekki lengi snjólaus, enda vetur og allra veðra von. Næsta dag hafði snjóað…Lesa meira

true

Ofsaveðri spáð á föstudaginn

Spár gera ráð fyrir að sérlega djúp lægð nálgist landið úr suðvestri og skelli á landinu aðfararnótt næsta föstudags. Veður tekur svo að ganga niður á föstudagskvöld. Gul viðvörun er nú í gildi fyrir föstudaginn, en reiknað er með að hún breytist í appelsínugula viðvörun þegar línur taka frekar að skýrast um gang lægðarinnar sem…Lesa meira

true

Búið að opna fyrir umferð um Esjubraut

Í dag var opnað fyrir umferð um Esjubraut á Akranesi á malarkafla milli Smiðjuvalla og Þjóðbrautar. Sem kunnugt er hafa framkvæmdir staðið yfir á götunni frá því haustið 2018. Seinni áfanga framkvæmdanna, frá gatnamótum Smiðjuvalla og Dalbrautar að hringtorginu við Þjóðbraut, átti að ljúka 1. desember síðastliðinn. Verkið hefur hins vegar tafist, meðal annars vegna viðbóta…Lesa meira

true

Minningarskjöldur um Guðmund Kristinsson afhjúpaður

Í gær var afhjúpaður minningarskjöldur um Guðmund Kristinsson á slökkvistöðinni í Stykkishólmi. Við athöfnina sýndi slökkviliðið einnig tæki sem keypt voru fyrir gjafafé sem safnað var til minningar um Guðmund. Um frjáls framlög var að ræða og safnaðist á aðra milljón króna til tækjakaupa fyrir slökkviliðið. Peningarnir voru notaðir til kaupa á tveimur loftpúðasettum, bæði…Lesa meira

true

Rótarýklúbburinn stefnir á fyrirtækjadag í Borgarbyggð

Laugardaginn 14. mars næstkomandi ætlar Rótarýklúbbur Borgarness að standa fyrir fyrirtækjakynningu í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þetta er í þriðja skipti sem klúbburinn stendur fyrir slíkri kynningu en þær hafa áður verið haldnar 2012 og 2014. Að sögn Margrétar Vagnsdóttur forseta klúbbsins er markmiðið með verkefninu að gefa öllum rekstraraðilum á starfssvæðinu tækifæri til að kynna…Lesa meira

true

Blikur á lofti í rekstri orkufrekrar stóriðju hér á landi

Fram kemur í fjölmiðlum í dag að starfsfólk álversins í Straumsvík í Hafnarfirði var boðað til starfsmannafundar í morgun. Rio Tinto, sem á og rekur álverið, hyggst hefja sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins til að meta rekstrarhæfi þess til frambúðar og leita leiða til að bæta samkeppnisstöðu þess. Dregið var úr framleiðslunni á síðasta ári…Lesa meira

true

Bikarslagur á morgun

Skallagrímskonur mæta Haukum í undanúrslitum Geysisbikars kvenna í körfuknattleik á morgun, fimmtudaginn 13. febrúar. Leikið verður í Laugardalshöllinni og hefst leikurinn kl. 20:15. Báðir undanúrslitaleikirnir fara fram sama kvöld, og er viðureign Skallagríms og Hauka sú síðari af tveimur. Í hinni fyrri mætast KR og Valur. Sigurvegararnir úr undanúrslitaviðureignunum mætast síðan í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll…Lesa meira

true

Stjórnvöld tryggi að ekki verði dregið úr snjómokstri

Á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í síðustu viku var rætt um snjómokstur á Vesturlandi og mikilvægi þess að ekki verði dregið úr mokstri þrátt fyrir að fjárveitingar hafi ekki tekið mið af þeim aðstæðum sem verið hafa í vetur. Stjórn SSV samþykkti bókun þess efnis: „Stjórn SSV skorar á Vegagerðina og samgöngu- og…Lesa meira

true

Glussinn hreinsaður upp

Fyrir hádegi í dag sprakk glussaslanga á bíl Frumherja þegar unnið var við stillingu á hafnarvoginni á Akranesi. Talsvert magn af olíu lak við óhappið á götuna. Vaskir menn frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar mætti á staðinn, vopnaðir vikri og strákústum, enda afleitt að bílar aki yfir glussamengaðar götur. Þeir Styrmir, Sigurður Þór og Björn…Lesa meira