Fréttir

true

Ferðamönnum fækkaði umtalsvert í janúar

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 121 þúsund í nýliðnum janúar eða um 18 þúsund færri en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í talningu Ferðamálastofu. Fækkun milli ára nemur 13%. Er þetta annað árið í röð sem brottförum farþega fækkar í janúar. Bretar voru fjölmennastir í janúar eða fjórðungur ferðamanna…Lesa meira

true

Kross þar sem hugsanlega rís Þjóðgarðsmiðstöð

Glöggir vegfarendur um Hellissand hafa tekið eftir því að búið er að setja að nýju upp kross á malarhaug sem stendur á svæðinu þar sem fyrirhugað er að reisa nýja Þjóðgarðsmiðstöð. Er þetta í annað skipti sem krossinn er settur upp en í fyrra skiptið var hann settur upp þar sem framkvæmdir við þjóðgarðsmiðstöðina gengu…Lesa meira

true

Grasrótarfundir Bændasamtakanna á Vesturlandi

Bændasamtökin, í samstarfi við Búnaðarsamtök Vesturlands, boða til þriggja funda sem hér segir: Vegamótum á Snæfellsnesi á morgun, miðvikudaginn 12. febrúar kl. 13.30, Þverholtum á Mýrum (bústjórahúsinu) miðvikudaginn 12. febrúar kl. 20.30 og í fjárhúsunum á Hesti fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13.00. „Guðrún Tryggvadóttir, formaður Bændasamtakanna mætir á fundina en þeir eru fyrst og fremst…Lesa meira

true

Viðburðir framundan í Safnahúsi

Fimmtudaginn 13. febrúar kl. 10.00 verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafnsins í Borgarnesi, þar sem gestir aðstoða safnið við greiningu ljósmynda. Sama dag kl. 19.30 flytur Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur fyrirlestur um veiðinýtingu, líffræði og framtíð laxastofna í Borgarfirði. Fyrirlesturinn tekur um klukkustund og að honum loknum verður kaffispjall. Laugardaginn 15. febrúar kl. 13.00 til 15.00 verður…Lesa meira

true

Loðnubrestur setur mark á viðskiptalönd

Nokkur breyting varð á hlutdeild stærstu viðskiptalanda Íslendinga með sjávarafurðir á árinu 2019 frá fyrra ári. Það má meðal annars rekja til loðnubrests á síðasta ári. Var því talsverður samdráttur í útflutningi til þeirra landa sem flytja inn mikið af loðnuafurðum, en þar eru Noregur og Japan fremst í flokki. Afurðirnar sem fluttar eru út…Lesa meira

true

Margir teknir á of miklum hraða

Lögreglan á Vesturlandi sinnti sem fyrr hefðbundnu eftirliti með ökuhraða í vikunni sem leið. Í hádeginu þriðjudaginn 4. febrúar var hraði 99 ókutækja mældur á Innnesvegi við Grundaskóla á Akranesi og reyndust tíu aka of greitt og fá því sekt í kladdann. Vekur lögregla athygli á að mikil umferð gangandi barna er á þessum stað…Lesa meira

true

Útaf við Fornahvamm

Bílvelta varð í ofanverðum Norðurárdal, á móts við Fornahvamm, í gærkvöldi. Lögreglu var tilkynnt um að bíll hefði runnið til á vegi, lent utan vegar og hafnað á hliðinni. Fólkið úr bílnum var flutt til aðhlynningar, fyrst á Heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi en síðan áfram á Akranes. Að sögn lögreglu var ekki talið að um…Lesa meira

true

Dansað gegn ofbeldi á föstudaginn

Dansbyltingin „Milljarður rís“ fer fram í Frystiklefanum í Rifi föstudaginn 14. febrúar klukkan 12.15-13.00. Þetta er í áttunda sinn sem viðburðurinn er haldinn hér á landi þegar fólk á öllum aldri kemur saman og dansar fyrir heimi þar sem allir, óháð kyni og kynhneigð, njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. „Það er óhugnanleg staðreynd…Lesa meira

true

Úrskurðarnefnd vísaði frá kæru sveitarfélaganna

Úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál vísaði 30. janúar sl. frá kæru Akraneskaupstaður sem kærði þá ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 11. júní 2019 að fyrirhugaðar framkvæmdir við breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háðar mati á umhverfisáhrifum. Að dæmi Akraneskaupstaðar fóru síðan önnur sveitarfélög á Vesturlandi sem kærðu niðurstöðu Skipulagsstofnunar. Ákvað úrskurðarnefndin (ÚUA) að slá kærunum saman í…Lesa meira

true

RÍM-verkefnið formlega hafið í Reykholti

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, skrifuðu síðastliðinn laugardag undir viðauka við rekstrarsamning Snorrastofu og ríkisins, sem gildir næstu fimm árin. Undirritunin staðfestir að mennta- og menningarmálaráðherra felur fyrir hönd ráðuneytis síns og ríkisstjórnarinnar Snorrastofu daglega umsýslu með verkefninu Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM). Stofnskrá þess var undirrituð í Reykholti í…Lesa meira