Fréttir

true

Atvinnutekjur á Vesturlandi eru undir landsmeðaltali

Meðalatvinnutekjur á Vesturlandi voru rétt undir landsmeðaltali árið 2016. Innan landshlutans eru þær þó afar mismunandi. Á suðursvæðinu með Akranes og Hvalfjarðarsveit sem og á Snæfellsnesi voru meðalatvinnutekjur aðeins yfir landsmeðaltali en langt undir landsmeðaltali í Borgarbyggð, Dalabyggð og Skorradalshreppi, þar sem þær voru aðeins ríflega 80% af meðaltalinu. Langstærsta atvinnugreinin á Akranesi og í…Lesa meira

true

Skóli sem frá fyrstu tíð var ætlað að mennta fólk til forystu í íslensku atvinnulífi

Boðið var til hátíðardagskrár við Háskólann á Bifröst síðastliðinn fimmtudag og markaði viðburðurinn upphaf fjölbreyttrar dagskrá allt þetta ár vegna hundrað ára afmsælis Samvinnuskólans sem síðar þróaðist á háskólastig og varð að endingu Háskólinn á Bifröst. Ráðstefnunni á Bifröst stýrði Gísli Einarsson fréttamaður og einn af fyrrum nemendum. Þar voru flutt allmörg erindi þar sem…Lesa meira

true

Stefna á aðalfund í Sigurfara

„Það hefur ekki farið mikið fyrir starfsemi Sigurfara – siglingafélags Akraness síðustu vikur. Það þýðir þó ekki að málefni félagsins séu í dvala, þvert á móti. Félagið er í uppbyggingu og margt farið fram sem lítið hefur farið fyrir út á við. Við höfum verið í samskiptum við yfirvöld Faxaflóahafna og Akranesbæjar vegna aðstöðu. Sendar…Lesa meira

true

Fálki talinn hafa flogið á rúðu

Anna Guðrún Aðalsteinsdóttir matráður við Fjölbrautaskóla Snæfellinga gekk nýverið fram á dauðan fálka við skólann. „Ég sá eitthvað fiðrað þarna undir veggnum og fór að athuga með þetta og sá þá þennan fálka-ræfil þarna,“ sagði Anna í stuttu spjalli við fréttaritara. Líklegast hefur fálkinn flogið á rúðu en fuglinn fannst undir einni slíkri á norðurhlið…Lesa meira

true

Rútan enn í vegkantinum

Athygli vegfarenda um Borgarfjarðarbraut er vakin á því að rútan sem fauk út af veginum og á hliðina síðastliðinn sunnudag er enn á sama stað, tveimur dögum eftir óhappið. Vegfarendum, sem leið hafa átt um veginn í myrkri hefur brugðið nokkur, enda nær horn hennar lítið eitt inn á vegbrúnina. Einn vegfarandi orðaði svo að…Lesa meira

true

Karlmenn og metoo byltingin

Magnús Orri Schram, stjórnarmaður í UN Women, verður með fyrirlestur í Tónbergi Akranesi á morgun, miðvikudaginn 28. febrúar, klukkan 19:30. Hann ætlar að fjalla um ábyrgð karlmanna í breyttum heimi vegna metoo byltingarinnar. Í byrjun janúar var Magnús Orri með vinnustofu fyrir stjórnendur Akraneskaupstaðar þar sem fólk var mjög ánægt með framtakið og kallaði eftir…Lesa meira

true

Úrslit í fjórgangskeppni Vesturlandsdeildarinnar

Siguroddur Pétursson og Steggur frá Hrísdal höfðu nokkuð öruggan sigur í Vesturlandsdeildar-fjórgangi Borgarverks 2018, en keppt var í gær eftir að mótinu hafði verið frestað vegna veðurs á föstudaginn. Leiddu Siguroddur og Steggur eftir forkeppni og héldu forystunni allan tímann í úrslitum. Lið Leiknis/Skáneyjar varð hlutskarpast í liðakeppninni en allir þrír liðsmennirnir komust í úrslit…Lesa meira

true

Ályktanir aðalfundar Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð

Umhverfisvaktin við Hvalfjörð hélt aðalfund sinn síðastliðinn sunnudag. Þar voru samþykktar ályktanir sem snerta umhverfismál og vöktun frá stóriðju. Meðal annars var þeim tilmælum beint til umhverfisráðherra að beita sér fyrir því að aðskilin verði framkvæmd umhverfisvöktunar vegna mengandi iðjuvera á Íslandi og greiðsla fyrir umhverfisvöktunina. „Umhverfisvaktin við Hvalfjörð telur að það fyrirkomulag sem notað…Lesa meira

true

Prjónað af kappi undir Jökli

Þær létu veðrið ekki hafa áhrif á sig konurnar sem mættu á „Prjónað undir Jökli“ um síðustu helgi á Hótel Hellissandi. Þetta var í þriðja skipti sem verkefnið fór fram en um er að ræða prjónahelgi þar sem konur koma saman til að prjóna, læra eitthvað nýtt og hafa gaman. Það voru þær Katrín Gísladóttir,…Lesa meira