Fréttir

true

Rannsakar samfélagsgerð út frá dánarbúsuppskriftum

Ung fræðakona úr héraði kveður sér hljóðs í Snorrastofu í Reykholti í kvöld, þriðjudag. Anna Heiða Baldursdóttir doktorsnemi í sagnfræði flytur fyrirlesturinn: „Dánarbúsuppskriftir og munasöfn. Íslenskt samfélag á 19. öld í gegnum efnismenningu.“ Snorrastofa býður til fyrsta fyrirlestrar ársins. Í honum fjallar Anna Heiða um íslenskt samfélag á 19. öld og hvaða mynd megi fá…Lesa meira

true

Telja forsendur kjarasamninga brostnar

Fulltrúar samninganefndar ASÍ hafa að undanförnu, og nú síðast í gær, fundað með Samtökum atvinnulífsins og stjórnvöldum vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna endurskoðunar kjarasamninga. “Fulltrúar ASÍ í forsendunefnd telja að forsendur kjarasamninga sé brostnar, en þegar sú staða kemur upp ber aðilum að leita viðbragða hjá gagnaðila og/eða stjórnvöldum til að kanna…Lesa meira

true

Úrkomutíð og óveðurslægðir

Síðustu daga hefur hver lægðin á fætur annarri gengið yfir vestanvert landið með tilheyrandi roki og rigningu. Á Snæfellsnesi er ekki vitað um teljandi tjón á mannvirkjum í þessum óveðurslægðum, en útköll björgunarsveita og slökkviliða hafa verið nokkur til aðstoðar íbúum. Skólabílar fóru ekki í akstur í dag vegna veðursins, hvorki frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga né…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Vesturlandsslaginn örugglega

Snæfell vann öruggan sigur á ÍA, 108-80, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærdag. Leikið var í Stykkishólmi. Snæfell hóf leikinn af krafti og komst í 14-5 þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. Skagamenn minnkuðu muninn í 17-10 en Snæfell svaraði með góðum kafla og leiddi 28-14 að loknum fyrsta leikhluta. Skagamenn héldu…Lesa meira

true

Skallagrímskonur lágu gegn Haukum

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar á heimavelli gegn sterku liði Hauka, 66-80, þegar liðin mættust í Domino‘s deildinni í gærkvöldi. Eftir hálf brösulega byrjun náðu Skallagrímskonur að minnka muninn í eitt stig eftir miðjan upphafsfjórðunginn, 10-11. Skallagrímur komst síðan yfir seint í leikhlutanum en Haukar jöfnuðu í 17-17 áður en leikhlutinn var úti. Gestirnir komust…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Gnúpverja naumlega

Skallagrímur vann sigur á Gnúpverjum, 95-96, í miklum spennuleik í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Fagralundi í gærdag. Gnúpverjar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 9-0 áður en Borgnesingar komust á blað. Skallagrímsmenn voru ekki lengi koma sér upp að hlið gestanna eftir að þeir skoruðu fyrstu stigin sín. Seint í…Lesa meira

true

Skipulögð innbrot í heimahús – lögregla hvetur til aukinnar aðgæslu

Tilkynningar um tvö innbrot í heimahús á Akranesi voru tilkynnt til lögreglunnar á Vesturlandi í gær, sunnudaginn 25. febrúar. Að sögn lögreglu báru innbrotin það með sér að vera vel skipulögð. Þjófarnir fóru í báðum tilfellum í gegnum glugga á svefnherbergjum og svo virðist vera að leitað sé eftir skartgripum, peningum og verðmætum smáhlutum. Í…Lesa meira

true

Snæfell valtaði yfir Breiðablik

Snæfell vann stórsigur á Breiðabliki, 44-79, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Viðureign liðanna fór fram í Kópavogi. Leikurinn fór rólega af stað og jafnræði var með liðunum í upphafi. Snæfell leiddi með einu stigi, 4-5, skömmu áður en fyrsti leikhluti var hálfnaður. En þá skildu leiðir og Snæfellskonur stungu af. Þær…Lesa meira

true

Hótel Húsafell nú meðal úrvalshótela National Geographic

Hótel Húsafell er fyrst hótela hótelið hér á landi til að vera valið eitt af hótelum National Geographic Unique Lodges of the World, sem framúrskarandi gististaður á heimsvísu. Hótelið vilja samtökin hafa innan sinna raða. Í ljósi þess hversu skilyrðin til að uppfylla þennan úrvalshóp eru ströng er útnefningin markaðslega mjög sterk fyrir Hótel Húsafell…Lesa meira

true

Bók um aflaskipið Víking AK-100 komin út

Bókaútgáfan Hólar hefur nú gefið út bókina; „Víkingur, sögubrot af aflaskipi og skipverjum,“ sem rituð er af Haraldi Bjarnasyni blaðamanni. Í bókinni er sagt frá aðdraganda að smíði togarans Víkings AK-100 en hann kom nýr til Akraness 21. október 1960 og skipinu er fylgt í gegnum árin. Í bókinni eru mörg viðtöl við skipverja, sem…Lesa meira