Fréttir

true

Hvassri suðaustan átt spáð í dag

Í dag hvessir smám saman að nýju af suðaustri. Hviður gætu orðið 35-40 m/s við Hafnarfjall og í þessari vindátt verða þær ekki síst norðan við fjallið, á þeim slóðum sem meðfylgjandi mynd er tekin. Þá er spáð byljóttu veðri á norðanverðu Snæfellsnesi. Það tekur svo ekki að lægða að gagni fyrr en síðdegis og…Lesa meira

true

Nýr framkvæmdastjóri hjá Norðuráli

Steinunn Dögg Steinsen hefur verið ráðin framkvæmdastjóri öryggis- og umhverfissviðs Norðuráls á Grundartanga. Hún hefur unnið hjá Norðuráli frá 2011 og gegndi síðast stöðu deildarstjóra umhverfismála á umhverfis- og verkfræðisviði. Steinunn er með M.Sc. í efnaverkfræði frá Denmarks Tekniske Universitet og lauk diplómanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskóla Ísland árið 2010.Lesa meira

true

Arion banki hyggst endurreisa United Silicon

„Samkomulag hefur náðst á milli skiptastjóra þrotabús United Silicon og Arion banka um að bankinn fái að ganga að sínum veðum og taka yfir allar helstu eignir félagsins,“ segir í tilkynningu frá bankanum um verksmiðjuna í Helguvík á Reykjanesi sem fór í gjaldþrot á síðasta ári eftir viðvarandi erfiðleika og að hafa ekki getað staðið…Lesa meira

true

Þórdís Kolbrún lýsir yfir framboði til varaformanns

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra og þingmaður í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Landsfundur flokksins verður haldinn 16.-18. mars nk. Hún er ein um að hafa lýst yfir framboði en ýmsir fleiri Sjálfstæðismenn verið orðaðir við slíkt. Ekki hefur verið kosið í embætti varaformanns frá því Ólöf Nordal…Lesa meira

true

Útskrift frá Stóriðjuskóla Norðuráls

Þrjátíu og þrír nemendur útskrifuðust nýverið frá Stóriðjuskóla Norðuráls, sautján  úr grunnnámi og sextán úr framhaldsnámi. Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2012 og hafa hundrað nemendur útskrifast frá honum síðan. Tilgangur námsins er meðal annars sá að auka verðmætasköpun og styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækisins, auka öryggi starfsfólks við vinnu og efla starfsánægju. „Þetta er fimmti…Lesa meira

true

Njóta aðhlynningar í fjöldahjálparstöð í Menntaskóla Borgarfjarðar

Farþegar í rútunni sem fauk út af í Andakíl á fimmta tímanum í dag njóta nú aðhlynningar heilbrigðisstarfsfólks og viðbragðsaðila í fjöldahjálparstöð sem sett var upp í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Farþegar í rútunni voru 32 talsins, 27 franskir skólanemendur auk fjögurra kennara og bílstjóra. Einn var fluttur tafarlaust frá vettvangi undir læknishendur á Akranesi.…Lesa meira

true

Rúta fauk út af í Andakíl

Hópferðabíll lenti í sviptivindi með þeim afleiðingum að hann fauk út af og valt skammt austan við Kvígsstaði í Andakíl á fimmta tímanum í dag. Einn slasaðist og var fluttur undir læknishendur. Samkvæmt heimildum af vettvangi voru um 30 manns í rútunni þegar slysið varð. Aðstæður á slysstað eru erfiðar, miklir sviptivindar og ekkert ferðaveður.…Lesa meira

true

Krapaflóð skemmdu tæki til norðurljósarannsókna

Krapaflóð féll úr bæjarlæknum ofan við Augastaði í Hálsasveit í Borgarfirði aðfararnótt laugardags og olli skemmdum. Flóðið hafnaði meðal annars á gámi sem stendur skammt austan við íbúðarhúsið á bænum, en gámur þessi hýsir viðkvæm rannsóknatæki sem Japanir eiga til að mæla norðurljós. Íbúðarhúsið slapp við flóðið, að sögn Snorra Jóhannessonar bónda, en vatn náði…Lesa meira

true

Hvessir um tíma síðdegis og snarpar hviður við Breiðafjörð

Í dag gengur í suðaustan 15-23 m/s vestantil á landinu. Hvassast verður á Snæfellsnesi, en hægara eystra. Veðurfræðingar búast við snörpum vindhviðum við fjöll við Faxaflóa og Breiðafjörð síðdegis. Rigning verður sunnan- og vestanlands og sumsstaðar slydda, en úrkomuminna með kvöldinu. Lengst af bjartviðri fyrir norðan og austan. Heldur hægari suðaustanátt á morgun og lítilsháttar…Lesa meira

true

Valdís Þóra jafnaði besta árangur sinn

Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í þriðja sæti á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu sem lauk snemma í morgun. Þar með jafnaði hún besta árangur íslensks kylfings á sterkustu mótaröð Evrópu, en þeim árangri náði hún sjálf á móti í Kína á síðasta ári. Valdís Þóra lék á sjö höggum undir pari á mótinu og…Lesa meira