Fréttir

true

Háskólinn á Bifröst útskrifaði 76 nemendur

Í gær voru 76 nemendur útskrifaðir frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn. Útskriftarhópurinn samanstóð af nemendum úr viðskiptadeild, félagsvísinda- og lagadeild, námi í verslunarstjórnun og úr Háskólagátt. Í hátíðarræðu  Vilhjálms Egilssonar rektors vék hann að gildum skólans sem eru frumkvæði, samvinna og ábyrgð. „Af þessum gildum leiðir að áhersla er í náminu á hvatningu…Lesa meira

true

Sparnaður ríkisins tíu milljarðar af að Hvalfjarðargöng voru gerð

Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi hefur fengið svar við fyrirspurn sem hún beindi til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sparnað ríkissjóðs af Hvalfjarðargöngum. „Hver er áætlaður sparnaður ríkisins af minni snjómokstri, viðhaldi vega og vegaframkvæmdum í Hvalfirði eftir opnun Hvalfjarðarganga,“ spurði Halla sem og hver er áætlaður sparnaður ríkisins af því að hætta siglingum…Lesa meira

true

Valdís Þóra í toppbaráttu í Ástralíu

Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, er í fjórða sæti eftir tvo hringi á Ladies Classic Bonvilee mótinu, sem fram fer í Ástralíu. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Hún lék frábærlega á fyrsta hring mótsins í gær, kom í hús á 69 höggum, þremur höggum undir pari og var jöfn í öðru sæti.…Lesa meira

true

Rótarýklúbbur fjallar um netnotkun á fræðsludegi

Rótarýhreyfingin á Íslandi hefur frá árinu 2015 haldið rótarýdag um allt land. Rótarýklúbbur Borgarness hefur tekið þátt í þessum degi og boðið upp á opinn fræðslufund um mismunandi málefni. „Við höfum verið að fá til okkar fólk með mjög góða fyrirlestra til að kynna fyrir íbúum í héraðinu,“ segir Guðmundur Brynjúlfsson, meðlimur í Rótarýklúbbi Borgarness…Lesa meira

true

Sækja þarf um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum

Opnað hefur fyrir umsóknir á Bændatorginu vegna framkvæmda við vatnsveitur á lögbýlum á framkvæmdaárinu 2018. Í fréttabréfi Búnaðarsamtaka Vesturlands kemur fram að sækja verði um fyrir 1. mars nk. vegna framkvæmda á þessu ári. Aðeins er tekið við rafrænum umsóknum á Bændatorginu. „Með umsókn þarf að fylgja kostnaðaráætlum og umsögn ráðunauts (BV eða RML). Þeir…Lesa meira

true

Uppboð á morgun hjá Samskip á ýmsum varningi

Ósóttar vörur sem dagað hafa uppi í vörumiðstöð Samskipa verða seldar á uppboði á morgun, laugardaginn 24. febrúar. Uppboðið er haldið af Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í aðstöðu vörumiðstöðvar Samskipa í Kjalarvogi 7-15 í Reykjavík og hefst klukkan ellefu árdegis. Gengið er inn um inngang milli hurða 22 og 23 sem merktur er „móttaka fyrir vörumiðstöð“.…Lesa meira

true

Varað við veðri í kvöld

Nú er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á vegum á Vesturlandi. Veðurfræðingar benda á að um leið og hvessir eftir miðjan daginn megi reikna með snjókomu og skafrenningi á fjallavegum. Suðvestanlands á milli kl. 12 og 15, en síðan hlánar upp í 600-900 m hæð. Á Kjalarnesi og við Hafnarfjall hvessir einkum frá klukkan 17 og…Lesa meira

true

Kanna hvort íbúar vilji persónukjör eða listakosningu

Kanna á hug íbúa Hvalfjarðarsveitar til fyrirkomulags í komandi sveitarstjórnarkosningum, þ.e. hvort þeim hugnist betur persónukjör eða listakosning. Sveitarstjórn hefur falið skrifstofu sveitarfélagsins að annast skoðanakönnunina. Frá þessu segir á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar í gær, í tilkynningu sem sveitarstjórn ritar undir. Skoðanakönunin verður framkvæmd þannig að öllum kjörgengum íbúum sveitarfélagsins er sent bréf þar sem þeim…Lesa meira

true

Hundrað ára og upptekinn að fylgjast með Vetrarólympíuleikunum

Snæbjörn Gíslason verkamaður á Akranesi varð 100 ára í gær, 22. febrúar. Hann hefur síðustu árin búið á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða og er við þokkalega heilsu miðað við aldur og fyrri störf. Snæbjörn fylgist vel með og mætir í mat á hverjum degi; „þótt hann gefi sér varla tíma til þess núna þessa dagana,…Lesa meira

true

Styttist í að hrognavinnsla geti hafist

Talsvert virðist vera af loðnu austan við landið, en einnig vestan við það, þar sem veðrið hefur verið afleitt að undanförnu. Skip HB Granda hafa verið að veiðum austan við land og fékk Víkingur AK afla í Meðallandsbuktinni og var honum landað til frystingar í gær á Vopnafirði. Hrognafyllingin í henni reyndist 16-18%. ,,Það eru…Lesa meira