Fréttir

true

Rósa Gréta Ívarsdóttir ný forstöðukona Markaðsstofu Vesturlands

Rósa Gréta Ívarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Markaðsstofu Vesturlands en forveri hennar, Kristján Guðmundsson, hefur verið ráðinn markaðsstjóri Ferðaþjónustunnar Húsafelli. Rósa Gréta var valin úr hópi 30 umsækjenda og kemur hún til starfa 1. apríl. Vesturland er henni vel kunnugt en hún ólst upp í Borgarnesi, Búðardal, Varmalandi og á Kleppjárnsreykjum en er nú búsett…Lesa meira

true

Gæðaeftirlit með félagsþjónustu

Sigríður Jónsdóttir sérfræðingur í velferðarráðuneytinu hefur verið skipuð til að fara með stjórn nýrrar gæða- og eftirlitstofnunar á sviði félagsþjónustu. Nýja stofnunin mun annast stjórnsýslu og eftirlit með félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga. Undir félagsþjónustu sveitarfélaga heyrir meðal annars ýmis þjónusta sem snýr að börnum, fjölskyldum, fötluðu…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir að hvessi verulega síðdegis og í kvöld

Á vegum á Vesturlandi er nú snjóþekja, hálka eða hálkublettir, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Bröttubrekku. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á suðvestanverðu landinu. Þannig er t.d. þæfingsfærð á Kjósarskarði og ófært á Lyngdalsheiði. Athygli er vakin á því að um leið og hvessir í dag má reikna með snjókomu og…Lesa meira

true

Spænskur markvörður til Víkings

Knattspyrnufélagið Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska markvörðinn Francisco Miguel Marmolejo Mancilla um að spila með liðinu í sumar. Francisco, sem er öflugur markvörður, er þrítugur að aldri. Hann spilaði seinast með liði Jönköping í Svíþjóð þar sem hann var liðsfélagi Árna Vilhjálmssonar. „Víkingur Ó. lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa náð samningum við…Lesa meira

true

Háskóladagurinn verður 3. mars

Háskóladagurinn 2018 fer fram laugardaginn 3. mars nk. frá kl. 12 – 16. Allir háskólar landsins standa að deginum og er tilgangur hans að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er hér á landi. Kynningarnar fara fram í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Boðið verður upp á fríar strætóferðir milli staða. Á…Lesa meira

true

Ungir Vestlendingar á leið í landsliðsverkefni

Efnilegir knattspyrnumenn af Vesturlandi hafa verið valdir til þátttöku í verkefnum yngri landsliða Íslands á næstunni. Bergdís Fanney Einarsdóttir, leikmaður meistaraflokks ÍA, hefur verið valin í hóp U19 landsliðsins sem leikur tvo æfingaleiki á Spáni 28. febrúar og 7. mars. Brynjar Snær Pálsson, sem leikur með ÍA, var valinn í hóp U17 landsliðsins sem keppir…Lesa meira

true

Forsætisnefnd skerpir reglur um akstur þingmanna

Á fundi forsætisnefndar Alþingis í dag voru samþykktar samhljóða breytingar á reglum um þingfararkostnað. Er þetta svar nefndarinnar við harðri gagnrýni í fjölmiðlum m.a. um greiðslur aksturspeninga, notkun einkabíla þingmanna og búsetustyrki. Í þessum reglum sem samþykktar eru nú felast þrjár efnisbreytingar:  Í fyrsta lagi eru ákvæði um bílaleigubíla gerð skýrari, einkum fyrir þá þingmenn…Lesa meira

true

Telja að lax hafi ekki sloppið úr skemmdum kvíum

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi hf. 12. febrúar síðastliðinn um tjón á tveimur sjókvíum fyrirtækisins, annarri í Tálknafirði en hinni í Arnarfirði á Vestfjörðum. „Álit stofnunarinnar út frá þeim gögnum og ljósmyndum sem hún hefur fengið frá Arnarlaxi er að fyrirtækið hafi brugðist rétt við til að fyrirbyggja frekara tjón. Jafnframt telur Matvælastofnun að litlar…Lesa meira

true

Upphaf hátíðarhalda vegna aldarafmælis skólans á Bifröst

Háskólinn á Bifröst var upphaflega stofnaður á grunni Samvinnuskólans í Reykjavík 3. desember árið 1918 og fagnar því aldarafmæli á þessu ári. Skólinn var fluttur að Bifröst árið 1955, þar sem hann hefur verið starfræktur allar götur síðan, fyrst á framhaldsskólastigi en síðar sem háskóli. Í tilefni aldarafmælisins hefur verið sett saman afmælisdagskrá sem dreifist…Lesa meira

true

Skallagrímur krækti í mikilvæg stig

Skallagrímur vann góðan útisigur á Stjörnunni, 64-73, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Stjörnukonur voru sterkari í fyrsta leikhluta og komust sjö stigum yfir, 15-8, eftir sex mínútna leik. Þær héldu þeirri forystu næstu mínúturnar en með góðri rispu undir lok leikhlutans minnkaði Skallagrímur muninn í tvö stig, 21-19. Skallagrímskonur komust síðan…Lesa meira