
Hópferðabíllinn sem fauk útaf Borgarfjarðarbraut austan við Kvígsstaði í Andakíl fyrir réttum þremur sólarhringum síðan liggur enn í vegkantinum. Ökumenn sem leið hafa átt um þjóðveginn undanfarin kvöld segja stórhættu stafa að þessu enda nær horn rútunnar inn á aðra akreinina og vegurinn er þröngur á þessum stað. Einkum sé akstur þarna varhugaverður í myrkri.…Lesa meira







