Fréttir

true

Naumt tap Snæfells gegn FSu

Snæfell tapaði naumlega á heimavelli gegn FSu, 100-101, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Mikið jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn. Liðin skiptust á að skora á upphafsmínútum leiksins en eftir það leiddu gestirnir með tveimur stigum. Snæfell komst síðan yfir seint í leikhlutanum áður en FSu jafnaði í…Lesa meira

true

Íslenskt lambakjöt verður fyrsta verndaða afurðaheitið

Íslenska lambið er nú komið í sérstakan heiðursflokk á borð við Parma-skinku, Kampavín, Camembert de Normandie ost og Kalix Löjrom kavíar. Ekkert minna. Þetta helgast af því að Matvælastofnun hefur skráð íslenskt lambakjöt sem verndað afurðaheiti á grundvelli laga nr. 130 frá 2014 um vernd afurðaheita sem geta vísað til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.…Lesa meira

true

Spáð er vestan snjókomu í dag – færð gæti spillst

Á Vesturlandi er nú snjóþekja, hálka eða hálkublettir á vegum. Þæfingsfærð er á Holtavörðuheiði og víða éljagangur. Þá er vakin á að Veðurstofan hefur sent frá sér gula viðvörun fyrir allt vestanvert landið í dag. Við Faxaflóa gengur í suðvestan og vestan 10-18 m/s með ört kólnandi veðri og dimmum éljum, en samfelld snjókoma verður…Lesa meira

true

Bæta 77 þúsund tonnum við loðnukvótann

Í september og október á síðasta ári fóru fram mælingar á stærð loðnustofnsins. Þá fannst kynþroska loðna aðallega á og við landgrunnið við Austur Grænland. Í þeim leiðangri mældust samtals 945 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Í framhaldi þeirra mælinga var, í samræmi við gildandi aflareglu, úthlutað 208 þúsund tonnum en jafnframt kom fram að…Lesa meira

true

Verulegar breytingar lagðar til á safnamálum í Borgarbyggð

Vinnuhópur sem sveitarstjórn Borgarbyggðar skipaði á síðasta ári til að vinna tillögur um framtíðarskipan safnamála í Borgarbyggð hefur skilað skýrslu til byggðarráðs. Í skýrslunni er fjallað um þau söfn sem rekin eru á ábyrgð sveitarfélagsins. Verkefni vinnuhópsins samkvæmt erindisbréfi var einnig að greina stöðu safna sem rekin eru á ábyrgð sveitarfélagsins og með stuðningi þess,…Lesa meira

true

Varðskip ferjaði smala í Loðmundarfjörð

Þau eru mörg og ólík verkefni starfsmanna Landhelgisgæslunnar sem meðal annars gerir út varðskip, þyrlur og flugvél til björgunarstarfa. Óvenjulegt verkefni var á borði gæslunnar um liðna helgi. Þá flutti varðskipið Týr fjóra röska smala og þrjá smalahunda frá Seyðisfirði yfir í Loðmundarfjörð. Í firðinum er talsvert af fé sem ekki tókst að smala til…Lesa meira

true

Varað við skipulagðri svikastarfsemi á netinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við þaulskipulagðri glæpastarfsemi sem fram fer á netinu, oft í gegnum samskiptasíður eins og Facebook og með falsfréttum. „Við höfum verið að fá tilkynningar um svikamyllur sem auglýsa mikið á samfélagsmiðlum og miða að því að veiða inn grandalausa einstaklinga til að hafa af þeim peninga,“ segir lögreglan í tilkynningu á…Lesa meira

true

Hálka á vegum

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Flughálka er í uppsveitum Borgarfjarðar og á Laxárdalsheiði. Þungfært er í Álftafirði.Lesa meira

true

Upphaf hátíðarhalda vegna aldarafmælis skólans á Bifröst

Háskólinn á Bifröst var upphaflega stofnaður á grunni Samvinnuskólans í Reykjavík 3. desember árið 1918 og fagnar því aldarafmæli á þessu ári. Skólinn var fluttur að Bifröst árið 1955, þar sem hann hefur verið starfræktur allar götur síðan, fyrst á framhaldsskólastigi en síðar sem háskóli. Í tilefni aldarafmælisins hefur verið sett saman afmælisdagskrá sem raðast…Lesa meira

true

Borgarnesblótið verður 10. febrúar

Borgarnesingar blóta þorra næstkomandi laugardagskvöld, en Borgarnesblótið verður sem haldið í Hjálmakletti. Þetta er í níunda skipti sem blótið er haldið og að vanda er það í höndum Körfuknattleiksdeildar Skallagríms og mun allur ágóði renna til íþróttastarfs innan deildarinnar. „Þetta er stærsta fjáröflunin hjá deildinni og hefur blótið því töluvert að segja fyrir okkur,“ segir…Lesa meira