Fréttir

true

Snjallgámar á allar starfsstöðvar HB Granda

Fyrsti snjallgámurinn varð að veruleika í lok árs 2017 í Kistunni, sorpflokkunarstöð HB Granda á Akranesi. Snjallgámurinn skráir rauntíma upplýsingar um sorpflokkun félagsins og skilar rafrænt inn í umhverfisgagnagrunn þess. Gámurinn sendir daglega frá sér skýrslur þar sem fram kemur móttekið magn skilgreint niður á tegund úrgangs og starfstöðvar og lætur jafnframt vita þegar gámurinn…Lesa meira

true

Dagur leikskólans er í dag

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í dag, 6. febrúar. Þetta er í ellefta skipti sem haldið er upp á daginn en 6. febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Tilgangur Dags leikskólans er að vekja athygli á hlutverki leikskóla og…Lesa meira

true

Rakel Pálsdóttir keppir í Söngvakeppninni

Söngvakeppnin 2018 hefst laugardaginn 10. febrúar með fyrra undanúrslitakvöldi. Seinna undankvöldið fer fram viku síðar og að lokum verður úrslitakeppni í Laugardalshöll 3. mars. Þar mun ráðast hver verður fulltrúi Íslands í Eurovison í Lissabon í maí. Tólf atriði bítast um sæti í Eurovision að þessu sinni. Eitt þeirra er atriði Skagakonunnar Rakelar Pálsdóttur. Hún…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 6. febrúar frá kl. 10:00 – 17:00. Allir eru velkomnir og hvattir til að gefa blóð.Lesa meira

true

Um rafrettur gildi sömu reglur og um reyktóbak

Heilbrigðisráðherra mun leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um rafrettur sem felur í sér heildstæðar reglur um innflutning, sölu og markaðssetningu á rafrettum og áfyllingum fyrir þær, auk ákvæða um eftirlit og skorður við notkun þeirra. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi ríkissstjórnar í liðinni viku. Frumvarpið felur meðal annars í sér að óheimilt verður…Lesa meira

true

Slæmur þriðji leihluti varð Skallagrími að falli

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Keflavík, 98-69, þegar liðin mættust í 19. umferð Domino‘s deildar kvenna á laugardag. Leikið var suður með sjó. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tók Keflavík öll völd á vellinum í þeim síðari og sigraði að lokum örugglega. Keflavíkurliðið byrjaði betur og komst í 18-8 um miðjan upphafsfjórðunginn. Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Snæfellskonur stjórnuðu ferðinni

Snæfell vann öruggan sigur á Stjörnunni, 83-64, í 19. umferð Domino‘s deildar kvenna kvenna á laugardag. Leikið var í Stykkishólmi og áttu heimakonur afbragðsgóðan leik. Snæfell byrjaði af miklum krafti en gestirnir virtust áhugalausir í upphafi leiks. Snæfellskonur leiddu 13-10 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður og þá settu þær í fluggírinn. Næstu mínúturnar skoruðu þær…Lesa meira

true

„Samgönguráðherrar verða að standa sig betur“

Undir liðnum umræður um störf Alþingis í síðustu viku, vakti Bjarni Jónsson varaþingmaður VG í Norðvesturkjördæmi máls á ástandi vega og skattheimtu. Benti hann á að verulega skorti upp á að tekjur sem ríkissjóður hefur af bifreiðaeigendum skili sér í uppbyggingu samgöngukerfisins. „Víða um land liggja vegir undir skemmdum vegna vanrækslu undanfarinna ára í viðhaldi…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki í gegnum síðari niðurskurð

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, lauk keppni eftir þriðja hring á Oates Vic Open mótinu í Ástralíu um helgina. Eftir góðan seinni hluta á öðrum hring komst Valdís í gegnum fyrsta niðurskurð, þá í 30. sæti. Hún náði sér ekki á strik á þriðja hringnum, fékk þrjá skolla og einn skramba á fyrstu…Lesa meira

true

Skagamenn fengu skell á heimavelli

Skagamenn töpuðu stórt, 54-112, gegn Hamri þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Jafnt var á með liðunum fyrstu mínútur leiksins en leiðir skildu um miðjan upphafsfjórðunginn. Í stöðunni 8-10 settu gestirnir í fluggírinn, skoruðu 18 stig það sem eftir lifði leikhlutans gegn aðeins tveimur stigum Skagamanna.…Lesa meira