Fréttir

true

Hvassviðri í kvöld og nótt um vestanvert landið

Spáð er hvassviðrið í kvöld og fyrramálið og viðvörun í gangi frá Veðurstofunni. Það verður norðan 5-13 m/s og él norðan- og austantil, annars víða bjart. Norðvestan 15-23 suðaustanlands í fyrstu, en lægir þar þegar kemur fram á daginn. Austlægari og úrkomulítið eftir hádegi. Frost 0 til 9 stig. Gengur í suðaustan storm á sunnan-…Lesa meira

true

Undankeppnir fyrir SamVest standa yfir

Miðvikudaginn 7. febrúar munu fulltrúar félagsmiðstöðva á Vesturlandi etja kappi í söngkeppninni SamVest í Borgarnesi. Þar keppa til úrslita sigurvegarar í undankeppnum söngkeppna félagsmiðstöðva víðsvegar af Vesturlandi. Tveir sigurvegarar úr þeirri keppni verða fulltrúar Vesturlands í söngvakeppninni Samfés sem fer fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík helgina 24.-25. mars. Undankeppnin á Akranesi fór fram í gærkvöldi…Lesa meira

true

Stofnuðu Femínistafélagið Bríeti í FVA

Þær Halla Margrét Jónsdóttir og Hanna Louisa Guðnadóttir, nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, stofnuðu á dögunum femínistafélag við skólann. Blaðamaður hitti þær stöllur á heimili Höllu á Akranesi og ræddi við þær um félagið. „Við gáfum félaginu nafnið Bríet eftir kvenskörungnum Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Okkur þótti þetta nafn einfaldlega mjög viðeigandi. Bríet átti stóran þátt…Lesa meira

true

Sinnir vogaþjónustu um allt land og auk þess rafþjónustu

Sigurður Axel Axelsson er eigandi fyrirtækisins Vogir og lagnir ehf. á Akranesi. Hann stofnaði fyrirtækið árið 2011 á grunni fyrirtækis sem faðir hans hafði rekið í fjölmörg ár. „Í upphafi var þetta eingöngu vogaþjónusta og viðgerðir á vogum en pabbi var með vogaþjónustu frá því ég var lítill polli. Þegar ég tók við fyrirtækinu stækkaði…Lesa meira

true

„Höfum fengið rosalega góð viðbrögð“

Systkinin Helgi Eyleifur og Halldóra Lóa Þorvaldsbörn frá Brekkukoti í Reykholtsdal stofnuðu Laufeyju ísgerð síðastliðinn vetur. Í sumar var unnið að því að koma upp vinnslurými í hluta útihúsanna og sala á ísnum hófst síðan í desembermánuði. „Á jólamarkaði í Nesi í Reykholtsdal, sem haldinn var 9. desember, þá seldum við Laufeyjarísinn í fyrsta sinn.…Lesa meira

true

Forathugun í gangi vegna upplifunargarðs Latabæjar í Borgarnesi

Magnús Scheving frumkvöðull og höfundur bókanna og sjónvarpsþáttanna um Latabæ færði á síðasta ári sínum gamla heimabæ Borgarnesi, til geymslu bíla- og búnaðarsafn Latabæjar. Hluti safngripa var svo í fyrravor settur upp í húsnæði Fornbílafjelags Borgarfjarðar í Brákarey í tengslum við stórsýningu félagsins og Raftanna í maí. Tækin vöktu verðskuldaða athygli enda bílar, búnaður og…Lesa meira

true

Rafbílaeigendur þurfa nú að borga fyrir hleðslurnar hjá ON

Á hleðslusöðvum Orku náttúrunnar, sem fyrirtækið kallar hlöð, verður byrjað að selja þjónustuna frá og með morgundeginum 1. febrúar. ON hefur boðið rafbílaeigendum þessa þjónustu frítt allt frá árinu 2014 en hún verður nú seld á 19 krónur á mínútu auk 20 króna fyrir hverja kílóvattstund sem bíllinn hleður inn á sig. Rafbílaeigendur sem hyggjast…Lesa meira

true

Stuttmyndin Donor fjallar um skipulagðan líffæraþjófnað

Stuttmyndin Donor er nýjasta verk kvikmyndagerðarmannsins Guðna Líndal Benediktssonar frá Staðarhúsum í Borgarfirði. Um er að ræða níundu myndina sem hann leikstýrir og skrifar í samstarfi við framleiðslufyrirtæki sitt, Fenrir Films. Það er rekið af hópi kvikmyndagerðarmanna sem hafa unnið að fjölda verkefna innan geirans undanfarin ár, meðal annars Game of Thrones og Star Wars:…Lesa meira

true

Björgunarsveitarfólk á Vesturlandi kom saman

Síðastliðinn mánudag voru níutíu ár liðin frá stofnun Slysavarnafélags Íslands, en stofnun þess markaði upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs á Íslandi. Í tilefni tímamótanna fögnuðu félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og hjá slysavarnadeildunum tímamótunum um allt land og meðal annars hér á Vesturlandi. Um kvöldið var haldin veisla í húsnæði þeirra, sem endaði á því að…Lesa meira

true

Flest sveitarfélög hækka verð fyrir skóladagsvist og mat

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám frá árinu 2017 – 2018 fyrir skóladagvistun, hressingu og hádegismat í skólum í fimmtán sveitarfélögum víða um land. Mikill munur reyndist á kostnaði en hæst eru gjöldin fyrir skóladagvistun ásamt hádegismat og hressingu hjá Garðabæ eða 37.114 kr. en lægst í Vestmanneyjum eða 24.360 kr. Verðhækkanir sveitarfélaganna fyrir eitt…Lesa meira