Fréttir

true

Efla geðheilbrigðisþjónustu á landinu

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í síðustu viku hvernig 630 milljónum króna af fjárlögum ársins verður ráðstafað til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu. Fénu verður varið til að fjölga stöðugildum sálfræðinga í heilsugæslu annars vegar og til að efla og byggja upp geðheilsuteymi um allt land. Til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands renna 46 milljónir króna til þessa verkefnis.…Lesa meira

true

Einstefna í Stykkishólmi

Snæfellskonur náðu sér ekki á strik gegn Val þegar liðn mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Gestirnir náðu yfirhöndinni snemma leiks og stjórnuðu ferðinni allan tímann. Að lokum fór svo að Valur sigraði með 80 stigum gegn 65 stigum Snæfells. Snæfellskonur fundu sig ekki í upphafsfjórðungnum, skoruðu aðeins…Lesa meira

true

Búist við hvassviðri í fyrramálið

Veðurstofa Íslands spáir því að gangi í austan- og suðaustan hvassviðri eða storm með rigningu í kvöld. Snýst í suðvestan 23-30 m/sek seint í nótt og fyrramálið, en mun hægari vindur verður á Vestfjörðum. Fer að lægja síðdegis vestantil og um kvöldið austanlands. Appelsínugul viðvörun er fyrir landið norðaustanvert, Austurland og Suðausturland.  Þar sem veðrið…Lesa meira

true

Eitt leyfisbréf fyrir alla kennara

Frumvarpsdrög nýrra laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla eru nú aðgengileg í Samráðsgátt stjórnvalda. „Með kennarafrumvarpinu er ráðgert að framvegis verði gefið út eitt leyfisbréf til kennslu hér á landi í stað þriggja. Ennfremur verður í fyrsta sinn lögfest ákvæði um hæfni sem kennarar þurfa að búa…Lesa meira

true

Sjóðir til að styrkja barnabókmenntir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í tvo nýja styrktarsjóði sem tengjast íslenskri barnamenningu; Barnamenningarsjóð Íslands og sjóð til útgáfu barna- og ungmennabóka. „Stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á að efla menningu barna og ungmenna og stuðla að því að þau séu virkir þátttakendur í menningarlífinu og er það eitt leiðarstefja í núgildandi menningarstefnu,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Telja að með hvalveiðum sé meiri hagsmunum fórnað fyrir minni

„Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir vonbrigðum með að sjávarútvegsráðherra hafi í vikunni [sem leið, innsk. blm.] undirritað reglugerð sem heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu til næstu fimm ára, eða til ársins 2023. Frá því veiðar á langreyði hófust á nýjan leik árið 2009 hafa veiðarnar ekki verið sjálfbærar og taprekstur verið á starfseminni. Veiðar…Lesa meira

true

Grundarfjörður sigraði Kormák örugglega

Grundarfjörður tók á móti liði Kormáks frá Hvammstanga í körfunni á laugardaginn. Heimamenn höfðu töluverða yfirburði í leiknum og voru miklu ákveðnari í öllum sínum aðgerðum. Grundfirðingar leiddu með töluverðum mun í hálfleik og það sama var uppi á teningnum í þeim síðari. Stigabilið jókst jafnt og þétt og að endingu var staðan 85-60 heimamönnum…Lesa meira

true

Hefur opnað síðuna „Á sigurslóð“

Jón Gunnlaugsson áhugamaður um íslenska knattspyrnu fyrr og síðar hefur opnað síðu á Facebook með heitinu „Á sigurslóð.“ Hún er ætluð fyrir áhugafólk um knattspyrnu og aðra þá sem hafa gaman af sögum, myndum og ýmsu sem tengist íslenskri knattspyrnu. „Síðan á að vera vettvangur skoðanaskipta og umræðu. Um árabil hef ég tekið saman ýmislegt…Lesa meira

true

Hvassviðri hefur fylgt lægðunum að undanförnu

Röð lægða hefur gengið yfir landið að undanförnu. Síðastliðið föstudagskvöld gerði snarvitlaust veður á Snæfellsnesi og vindhviður í Ólafsvík fóru allt upp í 43 metra á sekúndu. Að sögn lögreglu var götum að hafnarsvæðinu lokað tímabundið þar sem fiskikör voru á fleygiferð og ekki óhætt fyrir ökumenn að fara um svæðið af þeim sökum. Ekki…Lesa meira

true

Frumsýna í kvöld Fullkomið brúðkaup í Lyngbrekku

Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms frumsýnir í kvöld gamanleikinn Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í þýðingu Arnar Árnasonar í félagsheimilinu Lyngbrekku. Verkið er eftir sama höfund og skrifaði leikgerðina á Sex í sveit sem er ein fjölsóttasta leiksýning hér á landi frá upphafi. Verkið Fullkomið brúðkaup var fyrst fært á fjalirnar í Menningarhúsinu Hofi 2005 og naut…Lesa meira