Fréttir

true

Skákin notuð til að draga nemendur frá símunum

Bragi Þorfinnsson, stórmeistari í skák, sótti Grunnskóla Stykkishólms nýverið heim og bauð upp á tveggja daga skákkennslu í öllum bekkjum skólans. Skákkennslunni lauk svo með taflmóti. Forsaga skákkennslunnar í grunnskólanum er sú að Íslandsmeistaramótið í atskák var haldið í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í desember síðastliðnum. Safnið er sem kunnugt er sambyggt grunnskólanum. Þar buðu fulltrúar…Lesa meira

true

Leikflokkur Húnaþings vestra frumsýnir Hárið í apríl

Síðastliðið haust sameinuðust Leikdeild ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka og Leikflokkurinn á Hvammstanga undir nafninu Leikflokkur Húnaþings vestra. Eftir sameininguna var farið af stað með barnasýninguna Snædrottningin undir leikstjórn Gretu Clough, í þýðingu Sigurðar Líndals Þórissonar. „Heppnaðist sú sýning mjög vel og má geta þess að með sýningunni var vígður ljósabúnaður sem leikflokkurinn og Félagsheimilið Hvammstanga…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst ekki áfram á Australian Ladies Classic mótinu sem hófst í Ástralíu fyrir helgi. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi. Valdís lék fyrstu tvo hringina í mótinu á samtals níu höggum yfir pari og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Einkum náði…Lesa meira

true

Kútmagakvöld Lions var haldið í Grundarfirði

Lionsklúbbur Grundarfjarðar hélt árlegt kútmagakvöld í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga laugardaginn 23. febrúar. Tilgangurinn með kútmagakvöldinu var fyrst og fremst að safna fé fyrir viðbyggingu Dvalarheimilisins Fellaskjóls sem nú er í byggingu. Frábær mæting var á viðburðinn enda Lionsmenn þekktir fyrir að bera fram dýrindis fiskmeti ásamt kútmögunum alræmdu. Einnig voru hinir ýmsu lukkuleikir á dagskrá…Lesa meira

true

Á fimmta hundrað mál á skrifstofu byggingafulltrúa

Á skrifstofu byggingafulltrúa Borgarbyggðar eru fjölmörg verkefni til afreiðslu og dreifast þau um allt sveitarfélagið. Sem dæmi um stór verkefni sem nú eru í gangi, eða langt komin á byggingarstigi, er fjölbýlishús og hótel við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi, stækkun og endurbætur á Grunnskóla Borgarness, stækkun Hótel Hamars, nýtt verslunarhús við Digranesgötu 4 og stækkun…Lesa meira

true

Kepptu í fyrsta sinn í A deild meistaraflokks

Bikarmótið í hópfimleikum var haldið á Selfossi um síðustu helgi. Fimleikafélag Akraness sendi meistaraflokk kvenna til keppni í mótinu og var þetta í fyrsta sinn sem lið frá ÍA keppir í A deild meistaraflokks. Fór svo að lokum að ÍA hafnaði í 4. sæti á mótinu með 42.500 stig. Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari með…Lesa meira

true

Brianna Banks hætt hjá Skallagrími

Bandaríska körfuknattleikskonan Brianna Banks hefur yfirgefið Skallagrím. Mun hún því ekki leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild kvenna það sem eftir lifir tímabils. Það er Karfan.is sem greinir frá. Þar er haft eftir Ragnheiði Guðmundsdóttur, sem situr í meistarflokksráði hjá Skallagrími, að Brianna hafi gerst sek um samningsbrot. Í framhaldi af því hafi hún…Lesa meira

true

Töfrandi tónleikar Óperutöfra

Gunnar Sigurðsson mætti á tónleikana Óperutöfrar, sem fóru fram í Tónbergi í gærkvöldi. Eftirfarandi er umsögn hans um þá: Óperutöfrar var svo sannarlega réttnefni tónleikanna sem Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir og Elmar Gilbertsson héldu ásamt Kirkjukór Akraneskirkju og Sinfóníettu Vesturlands í Tónbergi á Akranesi síðastliðinn sunnudag. Hlutur heimamannsins Hönnu Þóru var afar ánægjulegur…Lesa meira

true

Brautskráð frá Háskólanum á Bifröst

Á laugardaginn voru 80 nemendur úr viðskiptadeild, félags- og lagadeild og Háskólagátt brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst. Útskriftarverðlaun í grunnnámi hlutu Vera Dögg Höskuldsdóttir í viðskiptadeild og Pétur Steinn Pétursson í félagsvísinda- og lagadeild. Í meistaranámi hlutu útskriftarverðlaun þau Axel Guðni Úlfarsson í viðskiptadeild og Einar Örn Gunnarsson og Soffía Vagnsdóttir í félagsvísinda- og lagadeild.…Lesa meira

true

Snæfell lá gegn Hamri

Snæfell og Hamar mættust í Stykkishólmi í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik tóku gestirnir öll völd á vellinum í þeim síðari. Fór svo að lokum að Hamar vann stórsigur, 63-99. Gestirnir frá Hveragerði voru öflugri í fyrsta leikhluta og leiddu með 27 stigum gegn 13 að honum loknum. Snæfellingar…Lesa meira