Fréttir

true

Heitavatnslaust á hluta Akraness í dag

Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust á Akranesi í dag norðan Merkigerðis, vestan Kirkjubrautar/Kalmansbrautar, frá Kirkjubraut 40 til 60 og Stekkjarholti. Þá má búast við þrýstingsleysi á heitu vatni sunnan við Merkigerði og Skagabraut. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veitna. Þar er gert ráð fyrir því að heita vatnið verði komið á að nýju kl.…Lesa meira

true

Að jafnaði einn húsbruni í mánuði

Það sem af er þessu ári hefur Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar farið í 38 útköll af ýmsu tagi. Flest útköllin hafa verið vegna elds í byggingum, eða ellefu talsins á jafn mörgum mánuðum. Meðal annarra verkefna má nefna að fimm sinnum fóru slökkviliðsmenn í vatnsdælingu, jafn oft stóðu þeir öryggisvaktir, farið var í þrjú útköll…Lesa meira

true

Brynhildur hlaut verðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright

Borgfirðingurinn Brynhildur Davíðsdóttir frá Arnbjargarlæk, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, hlaut á föstudaginn heiðurverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright. Verðlaunin eru veitt fyrir brautryðjendastarf í rannsóknum í vist- og hagfræði, sjálfbærni, þróun orkukerfa og á sviði loftslagsmála. Það var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem afhenti Brynhildi verðlaunin við hátíðlega athöfn í…Lesa meira

true

Æsispennandi Vesturlandsslagur

Skallagrímur sigraði Snæfell, 90-87, í æsispennandi framlengdum Vesturlandsslag í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu. Liðin fylgdust að hvert fótmál í upphafsfjórðungnum og Skallagrímur leiddi með einu stigi að honum loknum, 28-27. Snæfell náði góðum spretti um miðjan annan leikhluta og…Lesa meira

true

Kostar 26 milljónir að rífa strompinn

Samkomulag um niðurrif á semtentsstrompnum á Akranesi var lagt fram á fundi skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar á mánudagsmorgun. Niðurstaða fundarins var sú að skipulags- og umhverfisráð lagði til við bæjarráð að samþykkt verði samkomulag við Work North ehf. um niðurrif strompsins að fjárhæð 26.180 þúsund krónur.Lesa meira

true

Jólaævintýri framundan í Garðalundi

Ævintýraheimur jólanna mun ráða ríkjum í Garðalundi á Akranesi næstkomandi laugardagskvöld, frá klukkan 19:00 til 21.00. Þar geta börn og fullorðnir komið saman, gengið um skógræktina og hitt fyrir alls kyns ævintýraverur sem verða á ferðinni. Mæðgurnar Margrét Blöndal og Sara Hjördís Blöndal skipuleggja viðburðinn ásamt Hlédísi Sveinsdóttur. „Undirbúningurinn hefur gengið vel og það er…Lesa meira

true

Nemendur í FSN könnuðu eigin svefnvenjur

Lokaverkefnavika Fjölbrautaskóla Snæfellinga fór fram dagana 3. – 7. desember. Nemendur í fimm áföngum við skólann sameinuðust um að vinna að svefnrannsókn. Rannsóknin fór þannig fram að nemendur söfnuðu gögnum um svefnvenjur sínar og skoðuðu meðal annars klukkan hvað þeir fóru að sofa, hvenær þeir vöknuðu, hvort þeir fengu sér orkudrykk/kaffibolla og ef svo væri,…Lesa meira

true

Dæmdur fyrir tvær líkamsárásir á hóteli

Maður var í Héraðsdómi Vesturlands í síðustu viku dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á sambýliskonu sína á hóteli í Borgarbyggð, sem og mann sem reyndi að koma henni til varnar. Manninum var gert að greiða konunni samtals rúmar 990 þúsund krónur með vöxtum í bætur. Fram kemur að árásarmaðurinn hafði náð…Lesa meira

true

Týndi kókaíninu sínu og hefur ekki vitjað þess enn

Poki fannst inni á gangi í fjölbýlishúsi á Akranesi í liðinni viku. Þeim sem fann pokann þótti hann eitthvað dularfullur og gerði því Lögreglunni á Vesturlandi viðvart. Reyndist pokinn innihalda kókaín og virðist sem eigandinn hafi einfaldlega týnt efninu. Enginn hefur haft samband og gefið sig fram sem eiganda kókaínsins, að sögn lögreglu. Síðastliðinn föstudag…Lesa meira

true

R-leið vænlegust samkvæmt valkostagreiningu

Niðurstaða valkostagreiningar á leiðarvali fyrir veg um Gufudalssveit í Reykhólahreppi er sú að R-leið, tillaga norsku verkfræðistofunnar Multiconsult, sé vænlegasti kosturinn. Sem kunnugt er gerir sú leið ráð fyrir Vestfjarðavegi um Reykhóla og brú yfir Þorskafjörð. Eins og áður hefur verið greint frá ráðlagði Skipulagsstofnun stjórnendum Reykhólahrepps að láta gera valkostagreiningu á leiðarvali Vestfjarðavegar. „Þetta…Lesa meira