Fréttir

true

Stofna Pílufélag Akraness

Stofnfundur Pílufélags Akraness verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 12. desember klukkan 20, í Keilusal Íþróttahússins við Vesturgötu. Á fundinum verður farið yfir starf þessa nýja félags, framtíðarsýn og tekið á móti hugmyndum fyrir starfið. Allir áhugasamir eru velkomnir, segir í tilkynningu frá stofnfélögum.Lesa meira

true

Leggja til gjaldtöku á stofnbrautum frá Reykjavík og í öllum jarðgöngum

Samkvæmt breytingartillögu við samgönguáætlun sem meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis stendur á bakvið, er gert ráð fyrir því tekin verði upp veggjöld á öllum stofnbrautum frá höfuðborginni og í öllum jarðgöngum landsins, sem og að stórauka framkvæmdir í samgöngumálum. Tillagan var unnin nefndinn í nánu samráði við samgönguráðherra og gæti hlotið samþykki á Alþingi fyrir…Lesa meira

true

Jólatónleikar með hljómsveit Rósu Guðrúnar

Rósa Guðrún Sveinsdóttir heldur jólatónleika með hljómsveit sinni mánudagskvöldið 17. desember klukkan 20:30 í anddyri Tónlistarskólans á Akranesi. Rósa Guðrún er fædd og uppalin á Akranesi en býr í Reykjavík. „Ég hélt jólatónleika á Akranesi fyrir nokkrum árum, þá með gítarleikara og ég hef alltaf verið á leiðinni aftur. Svo ákvað ég að slá til…Lesa meira

true

Erfið færð fyrir Stekkjastaur

Stekkjastaur er væntanlegur til byggða í nótt, fyrstur bræðranna þréttán sem kalla sig jólasveina. Þetta þekkja allir sem vita að þeir Grýlu- og Leppalúðasynir eru til. Tíðindamaður blaðsins náði tali af Stekkjastaur nú í morgun þar sem hann var að klöngrast niður hlíðar Skessuhorns í Borgarfirði, þar sem þeir bræður búa ásamt foreldrum sínum. „Já,…Lesa meira

true

Bygging þjónustumiðstöðvar gengur vel

Framkvæmdir standa sem hæst á þúsund fermetra þjónustumiðstöð sem verið er að byggja í Borgarnesi við Digranesgötu 4, milli Bónushússins og Arionbanka. Húsið er fyrra af tveimur sem Borgarland ehf, dótturfélag Kaupfélags Borgarfjarðar byggir á lóðinni, en framkvæmdir eru í höndum Trésmiðju Eiríks J Ingólfssonar ehf. Að sögn Eiríks miðar verkinu vel og húsið nú…Lesa meira

true

Árleg bókaveisla í Félagsheimilinu Klifi

Hvorki höfundar né gestir létu hvassviðri og rigningu á sig fá og skelltu sér á árlega Bókaveislu í Félagsheimilinu Klifi í gærkvöldi. Bókaveislan er einn af stóru viðburðum aðventunnar í Snæfellsbæ og undanfarin ár hafa nemendur 10. bekkjar Grunnskóla Snæfellsbæjar haft veg og vanda af henni ásamt kennurum sínum og foreldrum. Áður en hin eiginlega…Lesa meira

true

Misstu gestina fram úr sér á lokasprettinum

Skallagrímur og Valur áttust við í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi og var góð stemning á pöllunum að vanda. Leikurinn var jafn og spennandi en í lokafjórðungnum sigu gestirnir fram úr og tryggðu sér að lokum níu stiga sigur, 96-105. Leikurinn hófst á mikilli þriggja stiga skotsýningu beggja liða,…Lesa meira

true

Hvassviðri fram yfir hádegi í dag

Talsvert er hvassara suðvestanlands en spáð hafði verið samhliða seinni lægðabylgjunni sem nú gengur yfir. Hviður allt að 45 m/s eru á veginum við Hafnarfjall og verður áfram svipað hvasst fram yfir hádegi, en 35 m/s eftir það. Á norðanverðu Snæfellsnesi nær vindhraði hámarki um hádegi í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun eru…Lesa meira

true

Garnaveiki greindist í Austfjarðahólfi

Garnaveiki hefur greinst í sauðfé á búinu Þrándarstöðum á Fljótsdalshéraði. Búið er innan Austfjarðahólfs en þar var garnaveiki á árum áður en ekki hefur verið staðfest garnaveiki í hólfinu í rúm 30 ár. Síðasta staðfesta tilvikið var á Ásgeirsstöðum í Fljótsdalshéraði árið 1986. Sjúkdómurinn uppgötvaðist þegar sjö vetra kind drapst skyndilega. Ekki er vitað hvernig…Lesa meira

true

Borgfirðingi færður farandbikar

Fyrsti aðalfundur Hestamannafélagsins Borgfirðings var haldinn þriðjudaginn 27. nóvember síðastliðinn í félagsheimilinu Vindási. Félagið varð sem kunnugt er til í janúar síðastliðnum eftir sameiningu félaganna Faxa og Skugga. Haukur Bjarnason, fyrir hönd Skáneyjarbúsins, færði Borgfirðingi farandbikar að gjöf. Verður bikarinn veittur þeim keppanda félagsins sem nær bestum samanlögðum árangri í keppnum hvers árs. Fyrsti handhafi…Lesa meira