Fréttir

true

Leiðrétting: Kynningarfundur um skipulagsbreytingar vegna skotæfingasvæðis er næsta miðvikudag

Starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar verða með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar miðvikudaginn 19. desember næstkomandi milli kl. 17:00 og 18:00. Þar munu þeir kynna tillögur að breytingum á aðal- og deiliskipulagi vegna skotæfingasvæðis í landi Hamars. Í frétt sem birtist í Skessuhorni í dag var dagsetning kynningarfundarins misrituð. Hið rétta er að fundurinn er næsta…Lesa meira

true

Sjúkrabílabangsar teknir til starfa í Snæfellsbæ

Konur úr félagsstarfi eldri borgara í Snæfellsbæ afhentu í síðustu viku sjúkraflutningamönnum hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands 20 stykki af svokölluðum sjúkrabílaböngsum. Verkefni þetta hefur staðið í nokkur ár hér á landi og byggir á því að prjóna bangsa og afhenda sjúkra- og/eða slökkviliðsmönnum til að færa ungum skjólstæðingum. Bangsarnir taka að sér hlutverk félaga til að…Lesa meira

true

Samstarfsyfirlýsing undirrituð um landbúnað og náttúruvernd

Síðastliðinn fimmtudag undirrituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, yfirlýsingu um að vinna saman að málefnum landbúnaðar og náttúruverndar. Fram kom hjá ráðherra að þessa yfirlýsingu megi rekja til átaks í náttúruvernd sem byggir á sáttmála ríkisstjórnarinnar. Samstarfinu er ætlað að ná til verkefna í náttúruvernd á jörðum bænda.…Lesa meira

true

Bríet er nýtt opinbert leigufélag á landsbyggðinni

Íbúðalánasjóður mun stofna nýtt opinbert leigufélag sem fengið hefur nafnið Bríet. Það mun taka við flestum þeim fasteignum sem eru á hendi sjóðsins í dag og reka hagkvæma leiguþjónustu með sérstaka áherslu á landsbyggðina. Bríeti er ekki ætlað að fara í samkeppni við einkarekin leigufélög á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðalánasjóður tekur fram að enginn núverandi leigutaka þarf…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Borgarnesi í kvöld

Skallagrímur tekur á móti Snæfelli í Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum, eins og alltaf þegar þessi tvö lið mætast. Vesturlandsliðin hafa átt misjöfnu gengi að fagna í deildinni það sem af er vetri. Snæfell er í harðri toppbaráttu, hefur 18 stig í öðru sæti, jafn mörg…Lesa meira

true

Fuglarnir eru hennar einkennismerki

Kolbrún Sveinsdóttir Kjarval verður með opna vinnustofu og vísi að galleríi á miðvikudögum og fimmtudögum í desember milli klukkan 13 og 18. Hún hefur síðustu vikur unnið að því að koma upp lager til að geta selt gestum og gangandi verkin sem hún er hvað þekktust fyrir, leirfuglana. Hún verður með allskyns leirverk til sölu…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Akraness fagnar áformum um stórátak í samgöngumálum

„Bæjarstjórn Akraness fagnar þeirri viðhorfsbreytingu sem orðið hefur á Alþingi Íslendinga til stórfelldra samgöngubóta sem fyrirhugaðar eru á næstu árum og verða fjármagnaðar með álagningu flýtigjalda,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Akraness síðastliðinn þriðjudag. „Akurnesingar hafa verið í fararbroddi í þessari hugsun á Íslandi í yfir 20 ár eins og bygging…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns í næstu viku

Jólablað Skessuhorns kemur út miðvikudaginn 19. desember. Blaðið verður stútfullt af spennandi efni. Sökum stærðar er vinnslutími blaðsins lengri en venjulega. Auglýsendur eru því beðnir að panta auglýsingar á netfanginu auglysingar@skessuhorn.is eigi síðar en föstudaginn 14. desember. Innsent efni til ritstjórnar þarf að berast í síðasta lagi 16. desember á skessuhorn@skessuhorn.is Minnt er á símann…Lesa meira

true

Vestfirðingur datt í lukkupottinn

Það var kátur fjölskyldufaðir af Vestfjörðum sem heimsótti Íslenska getspá með vinningsmiðann í EuroJackpot frá síðasta föstudegi. Maðurinn hafði verið að kaupa jólagjafir í Kringlunni í Reykjavík og ákvað að skella sér á miða í Happahúsinu. Miðinn skilaði honum 2. vinningi upp á rúmlega 131 milljón króna og er þetta langstærsti vinningur í EuroJackpot sem…Lesa meira

true

Þar geta verðandi bændur æft sig á tækjunum

Verslunarfólk í Kaupfélagi Borgfirðinga í Borgarnesi er komið í sannkallað hátíðarskap líkt og Stekkjastaur sem gladdi þæg börn liðna nótt. Í Kaupfélagið hefur nú borist risasending af Bruder leikföngum og er verslunin nú orðin sú stærsta á Vesturlandi í leikföngum. „Við bjóðum líklega upp á landsins stærsta úrval af æfingatækjum fyrir verðandi bændur og ætlum…Lesa meira