Fréttir

true

Sýning opnuð á níræðisafmæli Hvítárbrúarinnar

Í gærkvöldi var opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi sýning um Hvítárbrú við Ferjukot. Þennan dag fyrir réttum níutíu árum var brúin formlega vígð og tekin í notkun. Sögusýningin er samin af Helga Bjarnasyni blaðamanni frá Laugalandi í Stafholtstungum sem jafnframt átti hugmyndina að verkefninu, safnaði ljósmyndum auk mynda sem hann sjálfur hefur tekið í…Lesa meira

true

Hannaði og selur hleðslukassa fyrir rafmagnsbíla

Skagamaðurinn Guðlaugur Hjartarson vélfræðingur og rafvirki keypti í sumar tvinnbíl af Outlander gerð. „Mér fannst ekki nógu gott að hleðslutæki bílsins þyrfti alltaf að liggja fyrir framan bílskúrshurðina í öllum veðrum og fékk fljótlega leið á því að opna bílskúrinn til þess að hlaða bílinn,“ segir hann. „Ég ákvað því að hanna sjálfur hleðslukassa og…Lesa meira

true

Innleyst var greiðslumark frá fimm búum

Á fjórða og síðasta innlausnardegi þessa árs fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. nóvember sl. var greiðslumark fimm búa innleyst og 116 framleiðendur lögðu inn kauptilboð. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 122 krónur á lítra á árinu 2018 og annast Matvælastofnun innlausn greiðslumarks. Á innlausnardeginum nú var innleyst greiðslumark á 175.850 lítrum af mjólk að upphæð 21.453.700…Lesa meira

true

Amerískur fótboltaleikur á Akranesi á laugardag

Leikinn verður amerískur fótbolti á Akranesi á morgun, laugardag, þegar Einherjar mæta sænska liðinu Tyreso Royal Crowns. Mun þetta verða fyrsti keppnisleikur í amerískum fótbolta sem leikinn er á Akranesi. Amerískur fótbolti nokkuð vaxandi vinsælda um heim allan og æ fleiri utan Bandaríkjanna fylgjast með gangi mála í NFL deildinni bandarísku. Haldið er úti deildarkeppni…Lesa meira

true

Sala Neyðarkalla í fullum gangi

Björgunarsveitarfólk um allt land stendur nú vaktina og selur Neyðarkallinn í verslunum og á öðrum fjölförnum stöðum. Salan hófst síðdegis í gær. Á sama augnabliki seldi Guðni Th Jóhannesson forseti fyrsta Neyðarkallinn í Smáralind í Reykjavík og Arnþór Gíslason, félagi í Björgunarfélagi Akraness, seldi fyrsta Neyðarkallinn við Bónus á Akranesi. Sigurður Jónsson sést hér þakka…Lesa meira

true

Friðbjörn tekur við framkvæmdastjórn Fisk Seafood

Friðbjörn Ásbjörnsson aðstoðarframkvæmdastjóri Fisk Seafood hefur tekið við sem framkvæmdastjóri félagsins. Í tilkynningu frá Þórólfi Gíslasyni stjórnarformanni fyrirtækisins er Friðbirni óskað velfarnaðar í nýju starfi. Jafnframt er fráfarandi framkvæmdastjóra, Jóni E Friðrikssyni, þakkað vel unnin störf, en hann hefur látið að störfum sem framkvæmdastjóri FISK Seafood ehf. Jón starfaði hjá félaginu í 22 ár og;…Lesa meira

true

Borgarnesdagatalið væntanlegt

Borgarnes dagatalið 2019 er að koma út, en sem fyrr er það Þorleifur Geirsson sem gefur það út og tekur myndirnar sem prýða það. Þetta er níundi árgangur dagatalsins sem notið hefur vaxandi vinsælda, ekki síst til tækifærisgjafa um jól og áramót. Dagatalið prýða þrettán myndir úr Borgarnesi teknar í öllum 12 mánuðum ársins. Þrettánda…Lesa meira

true

Sérfræðingar Þjóðminjasafnsins greina forngripi

Sunnudaginn 4. nóvember klukkan 14-16 gefst fólki kostur á að koma með eigin gripi til greiningar hjá sérfræðingum Þjóðminjasafns Íslands í Reykjavík. Greiningin er ókeypis og fer fram í fyrirlestrasal safnsins á 1. hæð. Á tjaldi í fyrirlestrasal er sýnt fræðsluefni um meðhöndlun gripa inni á heimilinu. „Athugið að hámarksfjöldi gripa til greiningar eru þrír…Lesa meira

true

Hálka á vegum

Hálka eða hálkublettir eru  á flestum leiðum á Vesturlandi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálka og éljagangur að auki er á Holtavörðuheiði.Lesa meira

true

Ungmennafélagið Snæfell áttatíu ára

Fjölmenni var í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi síðastliðinn laugardag þegar fagnað var 80 ára afmæli ungmennafélagsins Snæfells. Ellert Kristinsson hélt hátíðarræðu í tilefni dagsins. Þá voru þeir Sigurþór Hjörleifsson, Gissur Tryggvason, Gretar Daníel Pálsson og Ingi Þór Steinþórsson heiðraðir með gullmerki Snæfells fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. „Þetta er í fyrsta skipti í sögu…Lesa meira