Fréttir

true

Tré ársins baðað nýföllnum sjó

Í morgun snjóaði víða á Vesturlandi og er nú nokkuð jólalegt um að litast. Hlynurinn á meðfylgjandi mynd varð býsna fallegur þegar nýfallin mjöllin sat á greinum hans. Hlynur þessi má vera montinn, því nýverið var hann valinn tré ársins á Akranesi þegar umhverfis- og skipulagsnefnd bæjarfélagsins veitti honum sérstaka viðurkenningu. Tréð stendur á mótum…Lesa meira

true

Snæfellingar úr leik í bikarnum

Snæfell tók á móti Þór Þ. í fyrstu umferð Geysisbikars karla í körfuknattleik á laugardag. Gestirnir frá Þorlákshöfn, sem leika deild ofar en Snæfellingar, tóku öll völd á vellinum í öðrum leikhluta. Eftir það var leikurinn þeim auðveldur og þeir sigruðu að lokum með 90 stigum gegn 61. Þór Þ. skoraði fyrstu stigin í leiknum…Lesa meira

true

Borgnesingar áfram í bikarnum

Skallagrímur sigraði 1. deildar liði Hattar, 74-97, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Geysisbikars karla í körfuknattleik. Leikið var á Egilsstöðum á laugardag. Skallagrímur hafði yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með nokkrum stigum framan af fyrsta leikhluta. En heimamenn gáfu Borgnesingum ekkert eftir, jöfnuðu metin og komust yfir áður en upphafsfjórðungurinn var úti, 19-17.…Lesa meira

true

Athöfn þar sem Bragi Þórðarson var gerður að heiðursborgara

Fimmtudaginn 1. nóvember síðastliðinn færði bæjarstjórn Akraness Braga Þórðarsyni nafnbótina heiðursborgari Akraness við hátíðlega athöfn á Bókasafni Akraness. Um 150 gestir voru viðstaddir. Bragi er áttundi einstaklingurinn sem hlýtur þessa nafnbót en á undan honum hafa verið: Einar Ingjaldsson, sr. Friðrik Friðriksson, Ólafur Finsen læknir, Guðrún Gísladóttir ljósmóður, sr. Jón M. Guðjónsson, Þorgeir Jósefsson og…Lesa meira

true

Snjóþekja og hálka á Vesturlandi

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er nú snjóþekja, hálka eða hálkublettir á öllum leiðum á Vesturlandi. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Hálka og éljagangur er í Svínadal. Nú eru él víða í landshlutanum, en því spáð að dragi úr þeim í dag.Lesa meira

true

Fullveldisfernur komnar í verslanir

Nú í nóvemberbyrjun lítur dagsins ljós afrakstur samstarfs afmælisnefndar fullveldis Íslands og Mjólkursamsölunnar þegar sérstakar fullveldisfernur koma í verslanir. Sex mismunandi textar prýða fernurnar og myndskreytingar um markverða atburði sem áttu sér stað árið 1918. Fróðleiksmolarnir um fullveldisárið verða á mjólkurfernunum út afmælisárið.Lesa meira

true

Leggja til að gengið verði að lægsta boði

Eins og frem hefur komið voru opnuð tilboð um lagningu ljósleiðara í dreifbýli Borgarbyggðar hjá Ríkiskaupum 9. október sl. Á fundi byggðarráðs síðastliðinn fimmtudag lagði Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri fram minnisblað þar sem farið er yfir niðurstöður Ríkiskaupa á mati á framkomnum tilboðum. Byggðarráð samþykkti að leggja það til að sveitarstjórn samþykki að taka tilboði…Lesa meira

true

Leggja til afnám prestakalls og búsetuskyldu í Saurbæ

Fyrir kirkjuþingi sem hófst í dag liggur tillaga um að Saurbæjarprestakall og prestssetrið í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd verði lagt niður þegar frá næstu mánaðamótum og búsetuskylda prests jafnframt aflögð á staðnum. Tillöguna flytur Stefán Jónsson kirkjuráðsmaður. Lagt er til að Saurbæjarsókn, Innra-Hólmssókn og Leirársókn verði sameinaðar Garðaprestakalli á Akranesi meðal annars til að starfsálag presta…Lesa meira

true

CrossFit Ægir opnað í Borgarnesi

Ríflega þrettán mánuðir eru liðnir frá því bræðurnir Gunnar Smári og Jóhann Örn Jónbjörnssynir ásamt Sunnefu Burgess opnuðu CrossFit stöðina CrossFit Ægi á Akranesi. „Það er óhætt að segja að fyrsta árið hafi gengið framar okkar björtustu vonum. Við erum alveg ótrúlega stolt af þessu litla samfélagi sem iðkendum okkar hefur tekist að skapa,“ segir…Lesa meira

true

Birta gögn er varða sölu Lauga

Dalabyggð hefur á vef sínum birt allítarlegt skjalasafn er varðar Lauga í Sælingsdal og sölu mannvirkja þar. Á fundi sveitarstjórnar 13. september síðastliðinn var samþykkt að gögn sem varða sölu Lauga verði birt með fundargerðum svo fólk geti kynnt sér málið í aðdraganda þess að þriðjudaginn 6. nóvember fer fram íbúafundur um málið. Við því…Lesa meira