Fréttir

true

Soffanías Cecilsson hf gefur fartölvur

Grunnskóli Grundarfjarðar fékk veglega gjöf á dögunum þegar Mjöll Guðjónsdóttir færði skólanum fimm fartölvur að gjöf fyrir hönd Soffaníasar Cecilssonar hf. í Grundarfirði. Tölvurnar eru allar búnar svokölluðu Windows 10s stýrikerfi en þær keyra Office 365 þar sem allt er vistað í skýi. Tölvurnar eru ekki með hefðbundinn harðan disk fyrir gögn því allt er…Lesa meira

true

Alzheimerkaffi er hluti af starfi samtakanna

Alzheimersamtökin á Íslandi vinna að hagsmunamálum fólks með heilabilunarsjúkdóma með stuðningi, ráðgjöf og fræðslu. Samtökin hafa verið að efla tengslanet sitt að undanförnu og hafa nú allmarga fulltrúa á Vesturlandi. Meðal þeirra eru Guðný Bjarnadóttir og Ólöf S Gunnarsdóttir í Borgarbyggð. Skessuhorn ræddi stuttlega við þær, en framundan er að halda Alzheimerkaffi í Félagsbæ í…Lesa meira

true

Íslandsmótið í atskák verður haldið í Stykkishólmi

Íslandsmótið í atskák 2018 verður haldið í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi helgina 17. til 18. nóvember næstkomandi. Það er Skáksamband Íslands sem stendur fyrir mótinu. Tefldar verða tíu umferðir, fimm á hvorum degi og hefst keppni klukkan 13:00 báða dagana. Fyrsti keppandinn til að skrá sig til leiks á Íslandsmótið í atskák var stórmeistarinn Friðrik Ólafsson.…Lesa meira

true

Vel heppnuð Norðurljósahátíð í Stykkishólmi

Menningarhátíðin Norðurljósin var haldin í fimmta sinn í Stykkishólmi um liðna helgi. Dagskráin í ár var að vanda þétt skipuð og fjölbreytt en lagt var upp úr því að allir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin var sett með opnunartónleikum í Stykkishólmskirkju á fimmtudagskvöldinu. Þar komu fram þær Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir…Lesa meira

true

Lögðu hald á vopn og rjúpur

Lögreglan á Vesturlandi hafði afskipti af tveimur rjúpnaskyttum sem voru að koma af fjalli í liðinni viku, fyrstu rjúpnaveiðihelgi ársins. Reyndist skotvopnaleyfi annarrar skyttunnar útrunnið. Var því lagt hald á vopnin. Hin skyttan reyndist ekki vera með veiðikort en í því tilfelli var lagt hald á rjúpurnar. Næsti leyfilegi rjúpnaveiðidagur er á morgun, föstudag.Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við tap á útivelli gegn Breiðabliki í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Borgnesingar fundu taktinn aldrei almennilega í leiknum og urðu því að sætta sig við tíu stiga tap, 93-83. Blikar réðu lögum og lofum á vellinum í upphafi leiks en Skallagrímsmenn voru heillum horfnir. Einkum var varnarleikur Borgnesinga…Lesa meira

true

Naumt tap Skallagrímskvenna

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir KR á útivelli, 65-63, í sjöttu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en þegar leið á upphafsfjórðunginn náði KR undirtökunum og hafði sjö stiga forskot eftir leikhlutann, 19-12. Skallagrímskonur sneru dæminu við í öðrum fjórðungi, tóku forystuna um miðbik hans og leiddu með…Lesa meira

true

Vörubílar bremsa vel

Lögreglumenn á Vesturlandi tóku allmarga vöruflutningabíla í hemlapróf í liðinni viku. Á síðasta ári keyptu umdæmin á Vesturlandi, Norðurlandi eystra og Suðurlandi færanlegan hemlaprófara í sameiningu. Búnaðurinn var á Vesturlandi í síðustu viku og voru margir bílar prófaðir. Að sögn lögreglu reyndist ástand hemla bifreiðanna nokkuð gott. Lýsir lögregla ánægju sinni með það, enda um…Lesa meira

true

Snæfell lagði Íslandsmeistarana í framlengdum leik

Snæfell lagði Íslandsmeistara Hauka, 85-90, í æsispennandi framlengdum leik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Hafnarfirði í gærkvöldi. Haukakonur byrjuðu af miklum krafti og komust í 14-0 áður en Snæfell komst á blað. En eftir að Snæfellskonur skoruðu fyrstu stigin sín léku þær afar vel og náðu að minnka muninn niður í…Lesa meira

true

Skemmtun á Skammhlaupi í FVA

Hið árlega Skammhlaup Fjölbrautaskóla Vesturlands stendur yfir í dag. Þá er hefðbundin kennsla felld niður og nemendum skipti niður í sjö lið sem keppa svo sín á milli í ýmsum greinum. Dagurinn hófst á skrúðgöngu í lögreglufylgd frá skólanum niður í íþróttahúsið við Vesturgötu. Þar kepptu nemendur í ýmsum greinum svo sem stígvélasparki, kaðlaklifri, blöðrublæstri…Lesa meira