Fréttir

true

Sala Neyðarkalls björgunarsveitanna að hefjast

Í dag og næstu tvo daga munu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar standa fyrir fjáröflun um allt land með sölu á Neyðarkallinum. Björgunarsveitafólk mun við söluna standa vaktina á fjölförnum stöðum. Hagnaður af sölunni rennur beint til björgunarsveita og verður notaður til að efla búnað og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna víðsvegar um landið. Í gegnum tíðina hefur almenningur…Lesa meira

true

Tveir Ásmundar troða upp á skemmtikvöldi Skallagríms

Nafnarnir og þingmennirnir Ásmundur Einar Daðason og Ásmundur Friðriksson munu stýra skemmtikvöldi körfuknattleiksdeildar Skallagríms laugardaginn 10. nóvember næstkomandi. Ásmundur Einar er öllum hnútum kunnugur hjá Skallagrími, enda tekið virkan þátt í starfi félagsins undanfarin ár. Nú hefur hann fengið kollega sinn á þingi til að aðstoða sig við skemmtunina. Mun þetta vera frumraun þeirra félaga…Lesa meira

true

Vel mætt á Veturnætur á Byggðasafninu í Görðum

Veturnætur voru haldnar hátíðlegar á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi í gærkvöldi. Þegar viðburðurinn var haldinn í fyrsta sinn á sama tíma á síðasta ári var mætingin góð, en ekki nærri eins mikil og í ár. „Við tippum á að það hafi mætt um 2.500 manns í ár,“ segir Ella María Gunnarsdóttir forstöðumaður menningar-og safnamála…Lesa meira

true

Gagntekin áhuga fyrir íslenska þjóðbúningnum

Margrét Skúladóttir datt niður á nýtt áhugamál fyrir 14 árum og segist í dag nánast vera orðin heltekin af því, en hún hefur áhuga á þjóðbúningum og flestu því sem þeim viðkemur. „Ég hef ekki hugmynd um hvaðan þessi áhugi kom. Það er engin þjóðbúningahefð í fjölskyldunni og ég sá aldrei konur í fjölskyldunni klæðast…Lesa meira

true

Ljóðabókin Tíbrá Deild 32a

Sigríður Valdís Finnbogadóttir ljóðskáld og listakona í Borgarnesi gaf nýverið út sína fyrstu ljóðabók. Bókin fékk nafnið Tíbrá Deild 32a en stór hluti ljóðanna í bókinni voru samin þegar Sigríður dvaldi á móttökugeðdeild 32a. Í tilefni útkomu ljóðabókarinnar heimsótti blaðamaður Skessuhorns Sigríði og Ármann, eiginmann hennar, skömmu fyrir helgi. Aðspurð hvenær hún hafi byrjað að…Lesa meira

true

Sögusýning um gömlu Hvítárbrúna opnuð á afmælisdeginum

Í dag eru rétt 90 ár frá vígslu Hvítarbrúarinnar við Ferjukot í Borgarfirði. Í kvöld klukkan 19:30 verður í Safnahúsi Borgarfjarðar opnuð yfirgripsmikil sýning um brúna og er verkefnið helgað minningu Þorkels Fjeldsted í Ferjukoti. Sýningarstjóri er Helgi Bjarnason blaðamaður frá Laugalandi og hönnuður er Heiður Hörn Hjartardóttir á Bjargi.Lesa meira

true

Árið 1918 í Borgarfirði – sýning og fyrirlestur í Snorrastofu

Snorrastofa í Reykholti býður til sýningar um fullveldisárið í hátíðarsal Snorrastofu, héraðsskólahúsinu, laugardaginn 3. nóvember kl. 14. Á sýningunni raðast saman munir og minningar; ljósmyndir, sendibréf og önnur slík minningarbrot sem skapa stemningu – tilfinningu fyrir tíðaranda ársins. Brugðið er upp myndum af bæjum og búendum, mennt og menningu, lífsbaráttu og tómstundum Borgfirðinga. Fréttir ársins…Lesa meira

true

Jókur kynntu sér starfsemi Café Kaju

Annar fundur Jóku kvenna, félags kvenna í atvinnurekstri á Akranesi og í nágrenni, var haldin þann 24. september síðastliðinn á Café Kaju. Tekið var á móti Jóku konum með nýrstárlegum engiferdrykkjum og öðru góðgæti. Fundurinn hófst á kynningu á fyrirtækinu Kaja organic ehf en það sérhæfir sig í lífrænum matvælum og má skipta starfsemini í…Lesa meira

true

Markmiðið að allir fái verkefni við sitt hæfi

Á undanförnum árum hafa íslensk dvalarheimili tekið umtalsverðum breytingum. Fæst eru þau lengur eingöngu rekin sem dvalarheimili í þeim skilningi sem margir þekkja, heldur hafa þau flest verið skilgreind sem hjúkrunarheimili að stórum hluta eða jafnvel öllu leyti. Hjúkrunarrýmum hefur verið fjölgað á kostnað dvalarrýma, en þau kalla á mun meiri og kostnaðarsamari þjónustu heilbrigðisstarfsfólks.…Lesa meira