Fréttir

true

Framkvæmdir hafnar við leiguíbúðir Bjargs á Akranesi

Fyrsta skóflustungan að íbúðum sem Bjarg íbúðafélag byggir á Akranesi var tekin núna laust eftir kl. 10:00 í morgun. Íbúðirnar verða 33 talsins og munu rísa við Asparskóga 12, 14 og 16. Við skóflustunguna voru saman komnir fulltrúar Akraneskaupstaðar, Bjargs íbúðafélags, verkalýðshreyfingarinnar og Modulusar. Allir sem kváðu sér hljóðs áður en skóflu var stungið í…Lesa meira

true

„Hreyfing og íþróttir var það leiðinlegasta sem ég gat hugsað mér“

Alexandrea Rán Guðnýjardóttir er 18 ára öflug stelpa úr Borgarnesi sem fyrir um einu og hálfu ári síðan gerði algjöra lífsstílsbreytingu. Hún skráði sig í fjarþjálfun og kynntist í gegnum það kraftlyftingum og hefur ekki litið til baka síðan. „Ég hafði ekkert verið að hreyfa mig, bara alls ekki neitt,“ segir Alexandrea Rán í samtali…Lesa meira

true

Akranes í Útsvari annað kvöld

Lið Akraness mun keppa við Fjarðabyggð í Útsvari annað kvöld. Fulltrúar Akraness í ár eru Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir kennari í Brekkubæjarskóla, Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir héraðsskjalavörður og bæjarfulltrúi en nýliðinn í liðinu er Hjalti Brynjar Árnason lögmaður. Þátturinn verður sýndur á RÚV annað kvöld og hefst bein útsending klukkan 19:45. Þátttakendur í vetur eru lið frá þeim sveitarfélögum…Lesa meira

true

Heimahagarnir toguðu í Kristján

Kristján Sturluson var í kjölfar auglýsingar ráðinn nýr sveitarstjóri í Dalabyggð og tók við starfinu 1. september síðastliðinn. Kristján er uppalinn í Búðardal en fluttist þaðan fyrir rúmlega þrjátíu árum en snýr nú heim að nýju. Kristján hefur lokið námi í félagsráðgjöf, sálfræði og er með meistaragráðu í viðskiptafræði. Hann hefur starfað víða og má…Lesa meira

true

Hvetja börn af erlendum uppruna til að taka þátt í íþróttum

Í síðustu viku var tilkynnt um styrki til fimm íþróttafélaga og -sambanda til að standa fyrir verkefnum sem ætlað er að hvetja börn af erlendum uppruna til þátttöku í íþróttastarfi. Verkefnið er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands. Af félögunum fimm sem hljóta styrk eru tvö á Vesturlandi; Íþróttabandalag Akraness og Héraðssamband Snæfells-…Lesa meira

true

Flestir fundu ástina fyrst á unglingsárum

Hér á vef Skessuhorns í síðustu viku var spurt: „Hvenær varðstu fyrst ástfangin/n?“ Langflestir kynntust ástinni fyrst í byrjun unglingsáranna, 12-15 ára, eða 29% svarenda. 28% svarenda sögðust hafa orðið ástfangnir 16-18 ára. 10% voru komnir nálægt tvítugsaldrinum, 19-20 ára, þegar ástin lét fyrst sjá sig. Svarmöguleikinn „22 ára eða eldri“ og „barn, yngra en…Lesa meira

true

Kona hætt komin í Kirkjufelli

Björgunarsveitarfólk af Snæfellsnesi, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk víðar af Vesturlandi ásamt þyrlusveit Landhelgisgæslunnar náðu fyrr í kvöld að bjarga tvítugri franskri konu úr hlíðum Kirkjufells í Grundarfirði. Að sögn björgunaraðila sem Skessuhorn ræddi við í kvöld voru aðstæður til leitar og björgunar mjög varasamar; krapi í hlíðum fjallsins og mjög hált. Konan mun hafa slasast á…Lesa meira

true

Björgunaraðgerðir í gangi í Kirkjufelli

Björgunarsveitir Landsbjargar á Snæfellsnesi og víðar á Vesturlandi voru snemma í kvöld kallaðar út til björgunar konu sem féll í hlíðum Kirkjufells í Grundarfirði síðdegis. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út vegna slyssins. Konan er erlendur ferðamaður. Náði hún sjálf að gera vart við sig í gegnum síma. Aðgerðir eru nú í gangi í…Lesa meira

true

Átján mánaða fangelsi fyrir þjófnaði víða um land

Karlmaður sem braust inn í fjölda ólæstra húsa á landsbyggðinni í sumar og haust og stal þaðan verðmætum hefur verið verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands. Maðurinn er af erlendu bergi brotinn og hefur áður komist í kast við lögin víða um Evrópu, að því er kemur fram í frétt RÚV um…Lesa meira

true

Gatnaframkvæmdir í gangi á Akranesi

Hafnar eru framkvæmdir við endurgerð Kalmanstorgs á Akranesi, en það er hringtorgið á mótum Esjubrautar, Kalmansbrautar og Akranesvegar. Er torgið í daglegu tali stundum kallað spæleggið. Útbúinn verður nýr göngustígur norðan við Esjubraut og lagfæra á yfirborð götunnar til austurs að Esjutorgi, á mótum Esjubrautar, Innnesvegar og Þjóðbrautar. Samhliða gatnaframkvæmdunum munu Veitur endurnýja hitaveitu, vatnsveitu,…Lesa meira