Fréttir

true

Guðjón segir reiðina liðna tíð

Guðjón Skarphéðinsson, fyrrum sóknarprestur í Staðastaðarprestakalli á Snæfellsnesi og einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segist ánægður með sýknudóm Hæstaréttar síðastliðinn fimmtudag. „Það er gott hvað frá er,“ segir Guðjón í samtali við Skessuhorn. Guðjón var á sínum tíma dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa, ásamt þeim Sævari Ciesielski og Kristjáni Júlíussyni, orðið…Lesa meira

true

Æfingabúðir í glímu um síðustu helgi

Um helgina voru haldnar æfingabúðir í glímu að Laugum í Sælingsdal fyrir 7.-10. bekk og landsliðið í glímu. Rúmlega 30 iðkendur tóku þátt í æfingunum, frá UÍA, Umf. Njarðvík, GFD, UMSE, HSK og HSÞ. Helginni var varið í fræðsluerindi og fyrirlestra í bland við æfingar þar sem farið var yfir hin ýmsu tæknilegu atriði glímunnar.…Lesa meira

true

Tvö ný smáhýsi byggð á Stóra-Vatnshorni

„Ég hef tekið eftir því síðustu tvö til þrjú ár að þeir gestir sem koma hingað eru að leita eftir því að komast út fyrir þessa helstu túristastaði. Hingað sækir fólk í ró og næði og það heillar einmitt marga að sjá hversu lítil og fámenn ferðaþjónustan er hjá okkur,“ segir Valberg Sigfússon ábúandi á…Lesa meira

true

Eldur kom upp í bíl á Snæfellsnesi

Nú rétt í þessu kom upp eldur í bílaleigubíl sem erlendir ferðamenn óku á Snæfellsnesvegi, á móts við Rauðkollsstaði í Eyja- og Miklaholtshreppi. Vegfarandi sem kom að slökkti eldinn sem þá logaði glatt upp undan vélarhlífinni. Fólkið komst út og sakaði ekki. Náði það auk þess að forða farangri sínum úr bílnum sem var byrjaður…Lesa meira

true

Áttatíu og einn hefur þegar sótt um leiguíbúð á Akranesi

Alls hefur 81 umsókn borist um leiguhúsnæði í íbúðunum sem Bjarg íbúðafélag byggir við Asparskóga 12, 14 og 16 á Akranesi. Opnað var fyrir umsóknir um íbúðir um miðjan síðasta mánuð, en íbúðirnar í húsunum verða samtals 33 talsins. Þá mun Akraneskaupstaður hafa til ráðstöfunar 25 íbúðanna, samkvæmt samkomulagi bæjaryfirvalda við íbúðafélagð Bjarg. Framkvæmdir hófstu…Lesa meira

true

Botninn datt úr leik Skallagríms í síðari hálfleik

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Val, 71-51, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í gær. Leikurinn á Hlíðarenda fór hægt af stað og liðin höfðu skorað sjö stig hvort þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta. Eftir það náðu Skallagrímskonur góðri rispu og leiddu með átta stigum fyrir annan fjórðung,…Lesa meira

true

Skemmdarverk við Skýjaborg

Skemmdarverk voru unnin á útibekk við leikskólann Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit um síðustu helgi. Bekkurinn var brotinn og virðast skemmdirnar vera af mannavöldum, fremur en vegna veðurs. Einnig var rúða brotin í leikskólanum fyrr í vor. Leikskólastjóri biðlar til samfélagsins að standa saman og gæta að eigum annarra og eigum sveitarfélagsins.Lesa meira

true

Hálka á fjallvegum

Á Suðvestur- og Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og á Fróðárheiði. Krapi er á Nesjavallaleið og á Bláfjallavegi. Á Vestfjörðum er hálka á Hálfdán, krapi á Gemlufallsheiði, í Súgandafirði og í Önundarfirði. Snjóþekja er á Dynjandisheiði en þæfingur er á Hrafnseyrarheiði. Hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði, Kleifaheiði, Mikladal, Klettshálsi, Hjallahálsi og á Ódrjúgshálsi. Óveður er á…Lesa meira

true

Fyrirmyndardagurinn er á morgun

Á morgun, föstudaginn 5. október, stendur Vinnumálastofnun fyrir Fyrirmyndardeginum í fimmta skiptið. „Með Fyrirmyndardeginum vekjum við athygli á atvinnumálum fatlaðra og þörfinni á því að atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fái aukin tækifæri á vinnumarkaði. Þá bjóða fyrirtæki og vinnustaðir til sín atvinnuleitendum með fötlun eða skerta starfsgetu til að kynnast nýjum störfum og verkefnum á…Lesa meira

true

Snæfellskonur sigruðu í tvíframlengdum leik

Snæfell vann góðan útisigur á Breiðabliki, 80-93, í tvíframlengdum leik í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í gær. Snæfellskonur náðu sér alls ekki á strik í upphafi leiks og skoruðu aðeins sex stig í fyrsta leikhluta. Á meðan skoraði Breiðablik 14 stig og áttu eftir að bæta þremur við forskotið í upphafi annars fjórðungs. Þá…Lesa meira