Fréttir

true

Kalla eftir tilnefningum um menningarverðlaun

Hin árlegu menningarverðlaun Akraneskaupstaðar verða afhent á menningarhátíðinni Vökudögum sem haldin verður 25. október til 4. nóvember næstkomandi. Á vef Akraneskaupstaðar er búið að opna fyrir tilnefningar og er hægt að tilnefna til og með 7. október. „Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að nýta sér þetta tækifæri til að hafa áhrif á það hver fái menningarverðlaunin…Lesa meira

true

Fjölgun í málum þar sem akstur undir áhrifum á í hlut

Þó enn séu rúmir þrír mánuðir eftir af árinu hafa svipað margir verið teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíknefna í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi og allt síðasta ár. Í yfirliti lögreglu kemur fram að 107 hafa með þessum hætti komist í kast við lögin það sem af er ári, en voru 112 allt…Lesa meira

true

Fyrirmyndadagurinn verður 5. október

Vinnumálastofnun stendur fyrir Fyrirmyndardeginum í fimmta skipti föstudaginn 5. október næstkomandi. Markmið dagsins er sem fyrr að atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fái að vera gestastarfsmenn í boði fyrirtækja og stofnana í einn dag eða hluta úr degi. „Þennan dag hafa atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fengið tækifæri til að kynna sér ýmiskonar störf og starfsvettvang. Um…Lesa meira

true

Kanna hækkun til lífeyrisþega

Hækkun á viðmiðunartekjum elli- og örorkulífeyrisþega í Snæfellsbæ var til umræðu á síðasta fundi bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúar J-listans lögðu fram tillögu þess efnis að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega í bæjarfélaginu verði hækkuð. Hámarksafsláttur verði hækkaður úr 70 þús. krónum í 100 þús. krónur. Bæjarstjórn samþykkti að láta reikna út kostnað sveitarfélagsins við hækkanir þessar og vísaði…Lesa meira

true

Göngunum skilað hreinum líkt og stássstofu í aðdraganda jólaboðs

Í síðustu viku voru Hvalfjarðargöngin lokuð í fjórar nætur vegna árlegrar hreingerningar og viðhalds mannvirkisins. Venjulega hefur Spölur framkvæmt þessa hreinsun í október en þar sem nú stendur til að afhenda göngin íslenska ríkinu til eignar í lok vikunnar, var verkinu flýtt. Auk hreinsunar var að þessu sinni skipt um blásara í loftinu á einum…Lesa meira

true

Svavar Örn er Norðurlandameistari í klassískum kraftlyftingum

Svavar Örn Sigurðsson úr Kraftlyftingafélagi Akraness varð um helgina Norðurlandameistari unglinga í klassískum kraftlyftingum í -74 kg flokki, en Norðurlandamótið var haldið á Akureyri. Svavar gerði sér lítið fyrir og lyfti 210 kg í hnébeygju, 140 kg í bekkpressu og 222,5 kg í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti Svavar því 572,5 kg og skilaði það honum Norðurlandameistaratitlinum.…Lesa meira

true

Fyrsta heimsókn Jóku kvenna var til Ritari.is

Jókur – félag kvenna í atvinnurekstri á Akranesi og nágrenni var stofnað fyrr á þessu ári. Nafn félagsins er með vísun í tröllskessuna Jóku, en félagið er fyrir konur sem eru stjórnendur eða leiðtogar í sínum fyrirtækjum/stofnunum. Tilgangur félagsins er að skapa tengslanet fyrir konur á eða frá Akranesi og úr nærsveitum, styrkja þær í…Lesa meira

true

Eggert Kjartansson er nýr formaður SSV

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fór fram á Bifröst í lok síðustu viku. Um þrjátíðu sveitarstjórnarmenn af Vesturlandi tóku þátt í þinginu, auk gesta og starfsmanna SSV.  Þinghald stóð að þessu sinni yfir í tvo daga, en áformað er að það verði venja í upphafi nýs kjörtímabils. Á þinginu var kosin ný stjórn samtakanna og…Lesa meira

true

Tryggingagjald veikir samkeppnisstöðu

Samtök iðnaðarins lýsa yfir vonbrigðum með að í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar skuli ekki vera gert ráð fyrir meiri lækkun tryggingagjalds en raun ber vitni. Reiknað er með að gjaldið skili ríflega 100,8 milljörðum króna á næsta ári sem er tæplega 3,5 milljörðum krónum meira en á þessu ári. Tryggingagjaldið mun því þrátt fyrir boðaða 0,25 prósentustiga…Lesa meira

true

Hjáleið við Leirvogstungu

Í dag, mánudaginn 24. september, hefst viðgerð á brú yfir Vesturlandsveg við Leirvogstungu í Mosfellssveit og verður umferð af Vesturlandsvegi færð á hjáleið á meðan viðgerð stendur. Viðgerðin mun standa yfir í fjóra daga. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira